Fréttablaðið - 04.10.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Bandaríski sálfræðingurinn Abra-
ham Maslow skilgreindi ákveðnar
grunnþarfir árið 1943. Skiptar
skoðanir hafa verið um þessar
kenningar í gegnum tíðina en hug-
myndin er góð að mínu mati. Flest
þekkjum við það hvernig ákveðin
undirstöðuatriði þurfa að vera
í þokkalegu lagi til að við náum
árangri.
Sjálfri finnst mér gott að nota
samlíkinguna við hús. Ákveðinn
grunnur þarf að vera sterkur til að
hægt sé að byggja ofan á. Helstu
grunnþarfirnar í mínum huga eru
vatn, matur, svefn, skjól, öryggi,
tengsl og hreyfing. Þegar þessi
atriði eru í lagi er hægt að byggja
ofan á það og uppfylla æðri þarfir
meðal annars um viðurkenningu
og að skila sínu hlutverki. Sumar
þarfir getum við sjálf uppfyllt á
meðan aðrar þarfir þarfnast meiri
samvinnu við annað fólk. Víða í
heiminum geta samfélög alls ekki
mætt þessum grunnþörfum þegna
sinna til dæmis um vatn, fæðu og
öryggi.
Hér á landi stöndum við betur
að vígi en engu að síður þá ógna
ákveðin atriði grunnþörfum okkar.
Rekstrarkostnaður heimila hefur
snarhækkað undanfarin misseri
meðal annars vegna mikillar hækk-
unar á kostnaði vegna matvæla,
ýmissa vara og húsnæðis. Breyttur
veruleiki hér á landi ógnar sömu-
leiðis tilfinningu okkar fyrir öryggi.
Ég hvet stjórnvöld og styð þau
í aðgerðum sem munu tryggja
þessar grunnþarfir. Draga þarf úr
kostnaði vegna húsnæðis, lækka
kostnað vegna matvæla og ann-
arra nauðsynjavara, tryggja hreint
vatn, tryggja orkugjafa og öryggi.
Ef ég væri þingkona í dag myndi
ég sömuleiðis styðja frumvarp um
forvirkar rannsóknarheimildir lög-
reglu til þess að tryggja betur öryggi
mitt, fjölskyldunnar og annarra. n
Grunnþarfir
Kristbjargar
Þórisdóttur
n Bakþankar
Áb. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali
520 9595
Við styrkjum Bleiku slaufuna
30-70% AFSLÁTTUR AF
ÖLLU Í OUTLET!
40% AFSLÁTTUR AF
SÆNGURVERUM
Í OUTLET
*Afsláttur á ekki við um vörur
í umboðssölu
LÆGSTA
ER Á REYKJAVÍKURVEGI
Í HAFNARFIRÐI
VERÐIÐ