Fréttablaðið - 04.10.2022, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2022
T A R A M A R
Frítt Serum
Með hverju dagkremi
29. september - 9. október
www.taramar.is og Hagkaup
(Kringlunni, Smáranum, Garðabæ, Akureyri)
Vísindamenn sem rannsökuðu áhrif
Facebook í árdaga telja sig hafa
fundið tengsl við þunglyndi.
elin@frettabladid.is
Geta samfélagsmiðlar gert fólk
þunglynt? Samkvæmt rannsókn
sem gerð var af vísindamönnum
í Tel Avív geta samfélagsmiðlar
eins og Facebook, Instagram og
TikTok aukið þunglyndi, kvíða og
áhyggjur hjá ungu fólki. Rann-
sóknin var gerð við Harvard-
háskóla frá 2004 til 2006 í upphafi
Facebook og sænski vefmiðillinn
Expressen greinir frá.
Vísindamenn fundu marktæka
breytingu á andlegri líðan þeirra
nemenda sem fengu aðgang að
Facebook og frammistaða í námi
varð slakari. Ekki voru allir nem-
endur komnir með Facebook á
þessum tíma eða aðra samfélags-
miðla og þess vegna var heppilegt
að rannsaka áhrifin.
Ranghugmyndir aukast
Svo virðist sem kvíði og þunglyndi
þeirra sem ánetjuðust samfélags-
miðlum hafi aukist umtalsvert,
eða um 25%. Þá voru margir sem
töldu Facebook hafa haft neikvæð
áhrif á frammistöðu þeirra í námi.
Skuldsettir nemendur voru í meiri
hættu en þeir sem voru skuldlausir
til að fá kvíða og þunglyndi. Nem-
endur fengu sumir hverjir rangar
hugmyndir um líf samnemenda
og töldu þá jafnvel vera ríkari en
raunin var. Makarin prófessor, einn
vísindamannanna, segir erfitt að
sanna áhrif samfélagsmiðla á geð-
heilsu ungs fólks en margt bendi
til þess að þau geti verið neikvæð.
Facebook var stofnað árið 2004. n
Facebook getur
valdið kvíða
Hér klæðist Auður Björt Skúladóttir sjalinu Haustlilju en pilsið er brúðarpilsið hennar sem móðir hennar saumaði. MYND/CHRISTINE EINARSSON
Hálfgerð núvitund og galdur
Nýlega gaf Auður Björt Skúladóttur út sína aðra prjónabók. Prjónaskapurinn veitir henni
bæði andlega og líkamlega hvíld auk útrásar fyrir listsköpun sína. 2