Fréttablaðið - 04.10.2022, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 04.10.2022, Blaðsíða 25
INNlifun býður upp á eld- húsinnréttingar frá þýskum framleiðendum sem eru þekktir fyrir gæði, vönduð vinnubrögð og fjölbreyti- leika. Þar sem hver innrétt- ing er sérhönnuð fyrir hvert rými passar hún fullkom- lega inn í eldhúsið þitt og nýtir plássið til fullnustu. Guðrún Benediktsdóttir, innan- hússarkitekt FHÍ, er eigandi INNlifunar. Hún hefur selt innrétt- ingar í yfir aldarfjórðung og býr að mikilli reynslu í hönnun innrétt- inga. „Eldhúsinnréttingarnar frá INNlifun eru einstaklega vand- aðar og vel hannaðar. Þær koma í fjölbreyttum stíltegundum, efnum og litum þannig að þær henta fyrir afar breiðan hóp viðskiptavina,“ segir Guðrún. „Framleiðendurnir leggja mikla áherslu á hagkvæmni og að sjálf- sögðu gæði sem tryggir innrétt- ingar á góðu verði. Við veitum því ódýrari innréttingum á mark- aðnum verðuga samkeppni með hagstætt verð en jafnframt eru innréttingarnar samsettar sem er hluti af gæðum innréttinganna.“ Draumurinn verður að veruleika með INNlifun Í verslun INNlifunar starfa reynslumiklir og menntaðir innanhússarkitektar og arkitektar sem veita viðskiptavinum góða og vandaða þjónustu. Kosturinn við þjónustu INNlifunar segir Guðrún vera að farið er vandlega yfir óskir hvers viðskiptavinar og innréttingin síðan teiknuð upp í þrívídd. Vel er farið yfir allt og sjálfsagt að gera margar tillögur þar til draumaeldhústillagan er tilbúin. „Þú kemur með teikningu af rýminu sem um ræðir til okkar á Suðurlandsbraut 26 og starfsfólk okkar leiðir þig í gegnum mögu- leikana. Þú færð síðan þrívíðar teikningar þér að kostnaðarlausu til að sjá hvernig rýmið kemur til með að líta út. Allar innréttingar eru síðan sérsmíðaðar fyrir þig og þitt rými. Við sjáum líka til þess að allt ferlið sé skilvirkt og þægilegt fyrir viðskiptavini okkar og fylgjum eftir verkefnum allt frá fyrirspurn til uppsetningar. Eldhús þarf að lifa lengi og því skiptir það okkur máli að viðskiptavinir séu ánægðir með eldhúsið sitt eftir að það er sett upp,“ segir Guðrún. „Við viljum láta draumaeldhúsið þitt verða að veruleika,“ bætir hún við. Traust og fagmannleg þjónusta Að sögn Guðrúnar er góð og fag- mannleg þjónusta lykilatriði í rekstri INNlifunar. Innréttingar frá INNlifun koma samsettar og tilbúnar til uppsetningar til lands- ins og eru með fimm ára ábyrgð. „Einingarnar koma samsettar og búið er að setja skúffur í og fram- hliðar á og bora fyrir höldum eða þá að griplistar eru tilbúnir eða ásettir. Uppsetningartíminn stytt- ist þar af leiðandi um marga daga miðað við innréttingar sem eru afhentar algerlega ósamsettar.“ INNlifun hefur svo milligöngu um að útvega reynda og vandaða fagmenn til uppsetninga á inn- réttingunum. „Þeir fagmenn sem við mælum með og treystum hafa Eldhúsinnrétt- ingarnar frá INNlifun eru einstaklega vandaðar og vel hann- aðar. Þær koma í fjöl- breyttum stíltegundum, efnum og litum. Guðrún Benediktsdóttir Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is Nú getur þú eignast draumaeldhúsið INNlifun býður upp á fjölbreyttar innréttingar frá þýskum gæða- framleiðendum sem henta breiðum hópi viðskiptavina. Innréttingarnar koma uppsettar og það styttir uppsetninga- tíma til muna. Láttu draumaeldhúsið þitt verða að veruleika með INNlifun. Það skiptir máli að viðskiptavinurinn sé ánægður með nýja eldhúsið til lengri tíma. Allar eldhúsinnréttingar INNlifunar eru sérsmíðaðar. unnið lengi með uppsetningar á innréttingum frá okkur og þekkja hvernig best er að standa að og skila vönduðu verki. Flutningurinn er einnig í höndum vanra flutn- ingabílstjóra sem skila eldhúsinn- réttingunni á verkstað,“ segir Guðrún. Umhverfið í fyrirrúmi Innréttingarnar frá INNlifun eru umhverfisvottaðar af Umhverfis- stofnun og því eru þær viðurkennd- ar í Svansvottuð hús, sem Guðrún segir að sé mikill kostur á markaðn- um í dag. „Það eru margir að huga að umhverfisvernd og eru að byggja Svansvottuð hús og því eru innrétt- ingarnar frá okkur góður kostur,“ segir hún að lokum. n Nánari upplýsingar má finna á vef- síðu INNlifunar, innlifun.is. kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2022 ELDHÚS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.