Fréttablaðið - 04.10.2022, Page 25
INNlifun býður upp á eld-
húsinnréttingar frá þýskum
framleiðendum sem eru
þekktir fyrir gæði, vönduð
vinnubrögð og fjölbreyti-
leika. Þar sem hver innrétt-
ing er sérhönnuð fyrir hvert
rými passar hún fullkom-
lega inn í eldhúsið þitt og
nýtir plássið til fullnustu.
Guðrún Benediktsdóttir, innan-
hússarkitekt FHÍ, er eigandi
INNlifunar. Hún hefur selt innrétt-
ingar í yfir aldarfjórðung og býr að
mikilli reynslu í hönnun innrétt-
inga. „Eldhúsinnréttingarnar frá
INNlifun eru einstaklega vand-
aðar og vel hannaðar. Þær koma í
fjölbreyttum stíltegundum, efnum
og litum þannig að þær henta fyrir
afar breiðan hóp viðskiptavina,“
segir Guðrún.
„Framleiðendurnir leggja mikla
áherslu á hagkvæmni og að sjálf-
sögðu gæði sem tryggir innrétt-
ingar á góðu verði. Við veitum því
ódýrari innréttingum á mark-
aðnum verðuga samkeppni með
hagstætt verð en jafnframt eru
innréttingarnar samsettar sem er
hluti af gæðum innréttinganna.“
Draumurinn verður að veruleika
með INNlifun
Í verslun INNlifunar starfa
reynslumiklir og menntaðir
innanhússarkitektar og arkitektar
sem veita viðskiptavinum góða
og vandaða þjónustu. Kosturinn
við þjónustu INNlifunar segir
Guðrún vera að farið er vandlega
yfir óskir hvers viðskiptavinar og
innréttingin síðan teiknuð upp
í þrívídd. Vel er farið yfir allt og
sjálfsagt að gera margar tillögur
þar til draumaeldhústillagan er
tilbúin. „Þú kemur með teikningu
af rýminu sem um ræðir til okkar
á Suðurlandsbraut 26 og starfsfólk
okkar leiðir þig í gegnum mögu-
leikana. Þú færð síðan þrívíðar
teikningar þér að kostnaðarlausu
til að sjá hvernig rýmið kemur til
með að líta út. Allar innréttingar
eru síðan sérsmíðaðar fyrir þig og
þitt rými.
Við sjáum líka til þess að allt
ferlið sé skilvirkt og þægilegt fyrir
viðskiptavini okkar og fylgjum
eftir verkefnum allt frá fyrirspurn
til uppsetningar. Eldhús þarf að lifa
lengi og því skiptir það okkur máli
að viðskiptavinir séu ánægðir með
eldhúsið sitt eftir að það er sett
upp,“ segir Guðrún. „Við viljum
láta draumaeldhúsið þitt verða að
veruleika,“ bætir hún við.
Traust og fagmannleg þjónusta
Að sögn Guðrúnar er góð og fag-
mannleg þjónusta lykilatriði í
rekstri INNlifunar. Innréttingar
frá INNlifun koma samsettar og
tilbúnar til uppsetningar til lands-
ins og eru með fimm ára ábyrgð.
„Einingarnar koma samsettar og
búið er að setja skúffur í og fram-
hliðar á og bora fyrir höldum eða
þá að griplistar eru tilbúnir eða
ásettir. Uppsetningartíminn stytt-
ist þar af leiðandi um marga daga
miðað við innréttingar sem eru
afhentar algerlega ósamsettar.“
INNlifun hefur svo milligöngu
um að útvega reynda og vandaða
fagmenn til uppsetninga á inn-
réttingunum. „Þeir fagmenn sem
við mælum með og treystum hafa
Eldhúsinnrétt-
ingarnar frá
INNlifun eru einstaklega
vandaðar og vel hann-
aðar. Þær koma í fjöl-
breyttum stíltegundum,
efnum og litum.
Guðrún Benediktsdóttir
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is
Nú getur þú eignast
draumaeldhúsið
INNlifun
býður upp á
fjölbreyttar
innréttingar frá
þýskum gæða-
framleiðendum
sem henta
breiðum hópi
viðskiptavina.
Innréttingarnar
koma uppsettar
og það styttir
uppsetninga-
tíma til muna.
Láttu draumaeldhúsið þitt verða að veruleika með INNlifun.
Það skiptir máli að viðskiptavinurinn sé ánægður með
nýja eldhúsið til lengri tíma.
Allar eldhúsinnréttingar INNlifunar eru sérsmíðaðar.
unnið lengi með uppsetningar á
innréttingum frá okkur og þekkja
hvernig best er að standa að og
skila vönduðu verki. Flutningurinn
er einnig í höndum vanra flutn-
ingabílstjóra sem skila eldhúsinn-
réttingunni á verkstað,“ segir
Guðrún.
Umhverfið í fyrirrúmi
Innréttingarnar frá INNlifun eru
umhverfisvottaðar af Umhverfis-
stofnun og því eru þær viðurkennd-
ar í Svansvottuð hús, sem Guðrún
segir að sé mikill kostur á markaðn-
um í dag. „Það eru margir að huga
að umhverfisvernd og eru að byggja
Svansvottuð hús og því eru innrétt-
ingarnar frá okkur góður kostur,“
segir hún að lokum. n
Nánari upplýsingar má finna á vef-
síðu INNlifunar, innlifun.is.
kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2022 ELDHÚS