Skessuhorn - 05.10.2022, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 20228
Bleik slaufa til
forvarna
LANDIÐ: Í Bleiku slaufunni
í ár beinir Krabbameins-
félagið athyglinni að
forvörnum gegn krabba-
meinum hjá konum, hvað
hægt er að gera til að draga
úr áhættu á að fá krabba-
mein. Hjá konum spila
skimanir fyrir krabba-
meinum einna stærsta hlut-
verkið. „Við hvetjum konur
til að bóka tíma þegar þær
fá boð. Því fyrr sem krabba-
mein eða forstig þess grein-
ist því betri eru horfurnar.
Öll starfsemi Krabbameins-
félagsins byggir á söfnunarfé.
Með kaupum á Bleiku slauf-
unni gerir almenningur og
fyrirtækin í landinu Krabba-
meinsfélaginu kleift að vinna
að markmiðum sínum; að
fækka þeim sem greinast með
krabbamein, fjölga þeim sem
lifa af og bæta líf þeirra sem fá
krabbamein og aðstandenda
þeirra,“ segir í tilkynningu
frá félaginu. Bleika slaufan í
ár er hönnuð af Helgu Frið-
riksdóttur og Skagamann-
inum Orra Finnbogasyni hjá
Orrifinn Skartgripum. -mm
Landsmót Sam
fés að hefjast
STYKKISH: Landsmót
Samfés fer fram í Stykkis-
hólmi dagana 7. til 9.
október. Á mótinu koma
saman ungmenni á aldr-
inum 13-16 ára frá félags-
miðstöðvum um allt land.
Hver félagsmiðstöð getur
skráð fjóra þátttakendur til
leiks og er búist við að um
300-350 ungmenni sæki
mótið. Mótshaldara hverju
sinni gefst tækifæri til að
kynna sitt sveitarfélag fyrir
ungmennum og þá þjónustu
og afþreyingu sem þar er í
boði. Fram kemur á heima-
síðu Stykkishólms að dag-
skrá Landsmóts Samfés sé
þríþætt. Unnið er í fjöl-
breyttum smiðjum þar sem
markmiðið er að ungmennin
taki það sem þau læra með
sér heim og miðli reynslu
sinni og þekkingu í sinni
félagsmiðstöð. Auk þess er
lögð rík áhersla á mikilvægi
þess að hitta jafnaldra sína,
kynnast nýju fólki og að
allir skemmti sér sem best.
Smiðjurnar geta sem dæmi
tengst bakstri, framkomu,
ræðumennsku, FROLF,
fréttamennsku, ratleik,
ofbeldi, geðheilbrigði ung-
menna, sjálfsstyrkingu og
hreyfingu og lýðheilsu. Lýð-
ræðisleg vinnubrögð eru
allsráðandi á Landsmóti
Samfés en lokadagur móts-
ins er helgaður Landsþingi
ungs fólks. Það er Ung-
mennaráð Samfés sem hefur
veg og vanda af því að skipu-
leggja þennan viðburð. Á
Landsþinginu fær ungt fólk
tækifæri til að tjá sig um hin
ýmsu málefni þeim hug-
leikin. Í kjölfar Landsþings
tekur Ungmennaráð saman
niðurstöður og sendir álykt-
anir á ráðuneyti, sveitar-
stjórnir, fjölmiðla og aðildar-
félaga Samfés. -vaks
Lækka að nýju
LANDIÐ: Ferðakostnaðar-
nefnd ríkisins hefur ákveðið
dagpeninga til greiðslu gisti-
og fæðiskostnaðar ríkisstarfs-
manna á ferðalögum innan-
lands á vegum ríkisins sem hér
segir: Fyrir gistingu og fæði
í einn sólarhring greiðast nú
34.500 krónur, fyrir gistingu
í einn sólarhring 28.800 kr,
fyrir fæði hvern heilan dag,
minnst 10 tíma ferðalag
greiðast 13.600 krónur og
fyrir fæði í hálfan dag, minnst
6 tíma ferðalag 6.800 krónur.
Dagpeningar þessir gilda
frá og með 1. október 2022.
Ferðakostnaðar nefnd birti
síðast ákvörðun um dagpen-
inga í maí. Þá voru greiðslur
fyrir gistingu og fæði í sólar-
hring hækkaðar um allt
að þrjátíu prósent og voru
42.400 krónur. Sú hækkun
var rökstudd með því að eft-
irspurn eftir gistingu hér
á landi á sumrin er mikil.
Dagpeningar aðeins fyrir
gistingu, fæði fyrir heilan
dag og hálfan dag hald-
ast óbreyttir. „Nefndin fer
þess á leit við ráðuneyti og
stofnanir að viðmiðunarfjár-
hæðir um greiðslur dagpen-
inga um gistingu og veitingar
verði kynntar starfsfólki til
að útlagður kostnaður sé
sem næst viðmiðunarfjár-
hæðum. Athygli er vakin á
að meginreglan er að greiða
skal kostnað vegna ferðalaga
innanlands, s.s. fargjöld, fæði
og gistingu, eftir reikningi.“
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
24. – 30. september
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 14.786 kg.
Mestur afli: Ísak AK: 13.965
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 22.089 kg.
Mestur afli: Særif SH:
22.089 kg í einum róðri.
Grundarfjörður: 10 bátar.
Heildarlöndun: 556.758 kg.
Mestur afli: Sturla GK:
116.443 kg í tveimur
löndunum.
Ólafsvík: 13 bátar.
Heildarlöndun: 313.382 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
58.652 kg í einum róðri.
Rif: 10 bátar.
Heildarlöndun: 417.408 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
96.478 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 12.744 kg.
Mestur afli: Bára SH: 9.186
kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Viðey RE – GRU:
100.476 kg. 28. september.
2. Tjaldur SH – RIF:
96.478 kg. 26. september.
3. Akurey AK – GRU:
94.605 kg. 27. september.
4. Örvar SH – RIF: 84.402
kg. 27. september.
5. Valdimar GK – GRU:
72.156 kg. 26. september. -sþ
Síðastliðinn fimmtudag var því
fagnað að verslunin Módel við
Þjóðbraut 1 á Akranesi varð þrjá-
tíu ára. Kaupmennirnir eru þeir
sömu og í upphafi, hjónin Guðni
Tryggvason og Hlín Sigurðardóttir.
Þau ásamt starfsfólki sínu buðu fólk
velkomið en í tilefni afmælisins var
hægt að kaupa alla gjafavöru og
skartgripi með 30% afslætti.
mm
Dagana 10.-14. október næstkom-
andi verður opin vika í Tónlistar-
skólanum á Akranesi. Þá daga fellur
hefðbundin kennsla niður en nem-
endur skrá sig á alls kyns smiðjur,
fyrirlestra og skemmtilegheit.
Flestar smiðjurnar eru einungis ætl-
aðar nemendum skólans og t.d. geta
söngnemendur skráð sig á ukulele-
námskeið og gítarleikarar á söng-
námskeið, það verða trommu-
hringir, spurningakeppnir, kór, tón-
smíðakennsla og margt fleira og
allir nemendur ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi og áhugasvið.
Flestar smiðjurnar eru í umsjón
kennara skólans, en skólinn býr
yfir miklum mannauði. „Af tilefni
80 ára afmælis Akraneskaupstaðar
þá höfum við þó boðið nokkrum
góðum gestum til okkar og viljum
bjóða foreldrum og íbúum að koma
og njóta með okkur nokkurra opinna
viðburða þar sem allir eru velkomnir
svo lengi sem húsrúm leyfir,“ segir
í tilkynningu frá skólanum. Þessar
opnu smiðjur/fyrirlestrar eru:
Mánudaginn 10. október kl.
16:00 Tæpt á tónlistarsögu Akraness,
Ólafur Páll Gunnarsson tónlistar-
sérfræðingur Rásar 2.
Þriðjudaginn 11. október kl.
18:00 Framkoma og glíman við
framkomukvíðann, Hallgrímur
Ólafsson (Halli Melló) leikari.
Miðvikudaginn 12. október
kl. 16:00 Gítarinn og heimstónlist,
Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari og
sama dag kl. 17:00 opið harmon-
ikkuball í umsjón Rutar Berg og
Sporsins.
Við sláum svo botninn í opnu
smiðjurnar fimmtudaginn 13.
október kl. 18:00 með Tónlistar-
stund með spjalli með Davíð Þór
Jónssyni píanóleikara m.m.
„Við vonum að fólk sjái sér fært
að taka þátt í þessu með okkur
og hvetjum nemendur líka til að
vera duglegir að koma í opnu við-
burðina auk þeirra vinnustofa sem
eru bara fyrir þá.“
mm
Eins og kunnugt er lét sr. Þorbjörn
Hlynur Árnason af starfi sóknar-
prests í Borgarprestakalli nýverið,
en hann hefur um árabil jafn-
framt verið prófastur á Vesturlandi.
Biskup Íslands hefur útnefnt sr.
Gunnar Eirík Hauksson í Stykkis-
hólmi í hans stað. Sr. Gunnar segir
þessa breytingu á starfi sínu leggj-
ast vel í sig.
„Ég var skipaður prófastur frá
og með 1. október síðastliðnum og
hef því formlega tekið við störfum
prófasts í Vesturlandsprófasts-
dæmi en ekki hefur verið ákveðið
enn hvenær formleg innsetningar-
athöfn fer fram. Ég hef gegnt starfi
sóknarprests í 36 ár og þar af 30 ár
í Stykkishólmsprestakalli. Svo ég
þekki vel til alls þess góða starfs
sem unnið er í prófastsdæminu. Ég
þekki líka vel til starfsins sem ég er
að taka að mér því ég gegndi starfi
prófasts í Snæfellsnes- og Dalapró-
fastsdæmi í sex ár, áður en það var
sameinað Borgarfjarðarprófasts-
dæmi. Auk þess gegndi ég starfi
prófasts í Vesturlandsprófastsdæmi
í níu mánuði er fráfarandi prófastur
var í námsleyfi.“
Sr. Gunnar hefur einnig setið í
héraðsnefnd frá því prófastsdæmið
var stofnað og þekkir þær skyldur
vel sem prófastsstarfinu fylgja. „Ég
vona að mér takist að rækja þær af
alúð. Mér finnst persónuleg sam-
skipti mikilvæg, að hittast og ræða
málin, en öll samskipti hafa vissu-
lega orðið auðveldari með net-
væðingunni. Prestar og fólkið í
sóknunum á að geta leitað til pró-
fasts og prófasti ber að hlusta,
miðla upplýsingum og veita ráð.“
Innsetning prófasts fer venjulega
fram í messu í heimakirkju hans eða
í dómkirkju. Svo í þetta sinn mun
hún að líkindum fara fram í Stykk-
ishólmskirkju. Við innsetningu
er beðið fyrir nýjum prófasti og
biskup felur honum prófastsstarfið
með formlegum hætti.
gj
Séra Gunnar Eiríkur prófastur
Vesturlandsprófastdæmis
Sr. Gunnar við störf sín í Stykkishólmskirkju.
Opin vika framundan í
Tónlistarskólanum á Akranesi
Verslunin
Model fagnaði
þrjátíu ára
afmæli