Skessuhorn - 05.10.2022, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 202222
Í þessum lið leggjum við fyrir tíu
spurningar til íþróttamanna úr
alls konar íþróttum á öllum aldri
á Vesturlandi. Íþróttamaður vik-
unnar að þessu sinni er sundkonan
Guðbjörg Bjartey frá Hvalfjarðar-
sveit.
Nafn: Guðbjörg Bjartey Guð-
mundsdóttir
Fjölskylduhagir: Mamma mín
heitir Arnheiður og pabbi minn
Guðmundur, svo eigum við hund
sem heitir Kría og reyndar mörg
fleiri dýr þar sem við búum í sveit.
En núna bý ég reyndar hjá ömmu
og afa á Akranesi, þar sem ég er í
Fjölbraut.
Hver eru þín helstu áhugamál:
Ég eyði mesta frítímanum mínum
í sundlauginni svo ég myndi segja
að það væri mitt helsta áhugamál.
En annars finnst mér líka gaman
að vera uppi í sveit.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér um þessar mundir: Yfir-
leitt þá vakna ég á bilinu 5.20 -
7.20 til að fara á æfingu. Mæti svo
í skólann og eftir hann þá fæ ég
mér eitthvað að borða heima áður
en ég fer svo aftur á æfingu.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar: Minn helsti kostur er
að ég er ekki svo morgunfúl svo
morgunæfingarnar eru ekki það
versta sem til er, eins og sumir
halda. En minn helsti galli er að
ég nenni ekki að taka til og ég
kann ekki að elda.
Hversu oft æfir þú í viku: Ég æfi
ellefu sinnum í viku, þrjár þrekæf-
ingar og átta sundæfingar.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum: Mín fyrirmynd í
íþróttum er Sarah Sjöström,
sænsk sundkona. Svo kannski líka
Sebastian Vettel, hef hitt hann
og hann var mjög kurteis og næs
manneskja.
Af hverju valdir þú sund: Ég
æfði alltaf einhverja aðra íþrótt,
eins og fimleika, fótbolta, frjálsar
og fleira sem aðalíþrótt og svo
sund með þangað til ég var u.þ.b.
ellefu ára. Þá varð það bara sundið
sem stóð upp úr og ég valdi það
umfram aðrar íþróttir.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir: Ég verð að segja Arna
Rún frænka mín.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt: Ég
held að það skemmtilegasta og
leiðinlegasta við sund sé að keppa.
Það er gaman þegar þú bætir þig
og sérð framfarir, en alveg ofboðs-
lega leiðinlegt þegar þú æfir mikið
og leggur þig fram en ert samt frá
þínu besta.
Ekki morgunfúl
Íþróttamaður vikunnar
Um síðustu helgi var haldið
Norður landameistaramót Garpa í
sundi og var það haldið í Þórshöfn
í Færeyjum. Ísland átti 40 fulltrúa
frá fjórum félagsliðum en þar voru
fjórar sundkonur frá Sundfélagi
Akraness og tvær frá Ungmenna-
sambandi Borgarfjarðar. Anna Leif
Auðar Elídóttir, Arnheiður Hjör-
leifsdóttir, Kristín Minney Péturs-
dóttir og Silvia Llorens Izaguirre
kepptu fyrir SA og þær Guðmunda
Ólöf Jónasdóttir og Björg Hólm-
fríður Kristófersdóttir fyrir UMSB.
Alls tóku um 150 sundmenn þátt frá
öllum Norðurlöndunum og aldurs-
bilið var breitt, þar sem yngsta
sundfólkið var 25 ára en þeir elstu
um áttrætt. Sundkonurnar stóðu
sig með prýði á mótinu og náðu
virkilega góðum árangri.
Kristín Minney sigraði í 100
og 200 metra bringusundi, 50,
100 og 400 metra skriðsundi, 100
metra fjórsundi og 400 metra fjór-
sundi þar sem hún setti Íslands-
met Garpa, og hún varð önnur í 50
metra bringusundi í flokki 40-44
ára. Hún fékk því alls sjö gullverð-
laun og ein silfurverðlaun.
Silvía Llorens keppti einnig í
flokki 40-44 ára. Hún sigraði í 800
metra skriðsundi og 100 metra
flugsundi, hún varð önnur í 100 og
400 metra skriðsundi og þriðja í 50
metra skriðsundi. Hún fékk tvenn
gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun
og eitt brons.
Arnheiður varð þriðja í flokki
45-49 ára í 100 metra fjórsundi, hún
varð þriðja í 100 metra baksundi og
þriðja í 50 metra baksundi. Niður-
staðan því þrjú brons.
Anna Leif varð Norðurlanda-
meistari í 50 metra flugsundi og
önnur í 50 og 100 metra skriðsundi
og í flokki 50-54 ára og fékk því eitt
gull og tvenn silfurverðlaun. Að
auki synti kvennasveit Sundfélags
Akraness í tveimur boðsundum,
4x50m skriðsundi og 4x50m fjór-
sundi og vann til silfurverðlauna í
þeim báðum.
Björg Hólmfríður varð Norð-
urlandameistari í 50 og 100 metra
bringusundi í aldursflokknum
70-74 ára og vann til silfurverð-
launa í 50 metra skriðsundi.
Þá vann Guðmunda Ólöf silfur
í 100 metra skriðsundi og brons
í 50 metra skriðsundi. Þá setti
hún Garpamet í 50 og 100 metra
baksundi í aldursflokknum 70-74
ára. Alls unnu vestlensku konurnar
til 34 verðlauna á mótinu.
vaks/ Ljósm. aðsendar
Samkvæmt árlegri spá fyrirliða,
þjálfara og formanna félaganna
tíu í 1. deild karla í körfuknattleik
er Skallagrími úr Borgarnesi
spáð sjötta sætinu í deildinni en
liði Skagamanna er spáð fallsæti.
Álftanes fékk 327 stig af 360 mögu-
legum í spánni um lokastöðuna í 1.
deild og er þar af leiðandi spáð sæti
í efstu deild á næsta tímabili, í fyrsta
sinn í sögunni, undir stjórn þjálfar-
ans Kjartans Atla Kjartanssonar.
vaks
Borgnesingurinn Alexandrea Rán
Guðnýjardóttir var sigursæl á
bikar móti í klassískum kraftlyft-
ingum sem fram fór um helgina í
Garðabæ. Hún var bikarmeistari
kvenna í -63 kg flokki, bætti sig um
rúmlega 60 kíló og setti Íslandsmet
í opnum flokki þegar hún lyfti alls
113,5 kg í bekkpressu. Hún setti
alls átta Íslandsmet og lyfti alls í
þrílyftu 343,5 kílóum. Með þessu
er hún komin með alla titla sem
hægt er að vinna sér inn, Íslands-,
bikar-, Norðurlanda,- Evrópu- og
heimsmeistaratitilinn.
Skagamaðurinn Alexander Örn
Kárason sigraði í -93 kg flokki á
mótinu og einnig í opnum flokki
en þar var baráttan hörð fram á
síðustu lyftu. Alexander Örn og
Viktor Samúelsson áttu í hörku
baráttu og settu báðir nýtt Íslands-
met samanlagt. Alexander Örn lyfti
768 kg í -93 kg flokki og Viktor
811 kg í -105 kg flokki. Á end-
anum stóð Alexander Örn uppi
sem sigur vegari með 100,7 stig en
Viktor hlaut 100,4 stig.
Loks var Borgnesingurinn Sylvía
Ósk Rodriquez önnur í -76 kg flokki
en hún lyfti samanlagt 380 kílóum.
vaks
Vestlendingar sigursælir á
bikarmóti í kraftlyftingum
Alexander Örn ánægður með bikarinn.
Ljósm. Kári Steinn Reynisson.
Enn bætir Alexandrea Rán við
titlasafnið. Ljósm. gg.
Skallagrími og ÍA spáð misjöfnu gengi
Sundkonur af Vesturlandi stóðu sig
vel á Norðurlandameistaramóti
Það var góð stemning í íslenska hópnum. Kristín Minney með verðlaunin sín.