Fréttablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 40
Elliðaárnar voru virkjaðar á árunum
1921–1933.
elin@frettabladid.is
Almenningsrafstöðvar á Íslandi eru
91. Það eru 28 vatnsaflsstöðvar, 6
jarðhitastöðvar og 57 eru elds-
neytisstöðvar sem yfirleitt brenna
dísilolíu.
Fyrsta vatnsaflsvirkjunin á
Íslandi var byggð árið 1904 þegar
Hamarskotslækur í Hafnarfirði var
virkjaður af Jóhannesi Reykdal.
Virkjunin sá fimmtán húsum og
fjórum götuljósum fyrir raf-
magni. Elliðaárnar voru virkjaðar
á árunum 1921–1933 og á árunum
eftir seinni heimsstyrjöld jókst
raforkunotkun mikið og fjölmargar
heimarafstöðvar voru byggðar.
Árið 1950 var búið að reisa 530
smávirkjanir um allt land, en fyrsta
virkjunin til að framleiða 10 MW
var Írafossvirkjun árið 1953. Lands-
virkjun var stofnuð árið 1965 og
hófst þá markaðssetning á raforku.
Í kjölfarið risu nokkrar stórar
vatnsaflsvirkjanir, en sú fyrsta til að
ná 200 MW var Búrfellsvirkjun árið
1969. Árið 2007 varð Kárahnjúka-
virkjun stærsta vatnsaflsvirkjun
landsins, en hún framleiðir 650
MW.
Samkvæmt Orkustofnun komu
um 70% af allri raforku á Íslandi frá
vatnsaflsvirkjunum árið 2018. n
Virkjanir stórar
og smáar
Það krefst orku að hjóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
sandragudrun@frettabladid.is
Hjólreiðar eru rík uppspretta
hreyfiorku. Hægt er að virkja
þessa orku með smá útsjónarsemi.
Ef hjólið er tengt við rafal getur
snúningskrafturinn sem fylgir því
að hjóla á reiðhjóli valdið því að
framleitt rafmagn er síðan er hægt
að geyma í rafhlöðu.
Vísindamenn í Kaupmannahöfn
hafa þróað tæki sem býr til raf-
magn úr snúningi hjólanna á reið-
hjóli. Varlega áætlað gæti svona
búnaður, ef hann er notaður á bæði
hjólin, framleitt 33,3 W/klst. af
orku eftir hálftíma hjólreiðar.
Það hefur verið reiknað út
hversu mikið rafmagn hægt
væri að búa til með því að tengja
reiðhjól við rafmagn og hjóla í
átta tíma á dag á meðalhraða í 30
daga. Sú raforka dugar ekki til að
framleiða nema um 2,4 prósent af
þeirra raforku sem meðalheimilið
í Bandaríkjunum notar mánaðar-
lega. Það er kannski ekki mikið, en
ef allir í heiminum sem geta hjólað
myndu hjóla nokkrar hálftíma-
ferðir á viku, þá væri hægt að fram-
leiða smá magn af raforku á mjög
umhverfisvænan hátt.
Ef fólk er hvort sem er að hjóla,
hvers vegna ekki að búa til smá raf-
magn í leiðinni? n
Hjólreiðavirkjun
starri@frettabladid.is
Samorka, samtök orku- og veitu-
fyrirtækja á Íslandi, heldur úti
hlaðvarpsþáttunum Lífæðar lands-
ins en fyrsti þátturinn fór í loftið í
ágúst. Í Lífæðum landsins er fjallað
um orku- og veitumál frá hinum
ýmsu hliðum enda af nógu að taka
að sögn Lovísu Árnadóttur, upplýs-
ingafulltrúa Samorku og umsjón-
armanns hlaðvarpsins. „Þarna má
finna blöndu af skemmtilegum
fróðleik og umfjöllun um þau
viðfangsefni sem orku- og veitu-
fyrirtæki fást við á hverjum degi.
Hlaðvarpið gefur einnig kost á því
að kynnast fólkinu sem vinnur
í geiranum, sem er upp til hópa
kraftmikið og vinnur að mikil-
vægum verkefnum.“
Í fyrstu þáttunum var fjallað
um það hvernig íslenska hita-
veitan varð til og um mikla grósku
í orkutengdri nýsköpun á Norður-
landi.
Stefnt er að því að hafa nýjan
þátt mánaðarlega. „Í næstu
þáttum verða fráveitumálin til
umfjöllunar, við ætlum að fjalla
um hvort nægt heitt vatn sé
til í landinu til að mæta eftir-
spurninni sem eykst í sífellu og
boðið verður upp á fróðleik um
vindorku.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið
á öllum helstu hlaðvarpsveitum,
Spotify, Apple Music og Google
Podcast en einnig á samorka.is. n
Hlaðvarp um orku- og veitumál
HUGUM AÐ HITAVEITUNNI
ER ALLTAF NÓG TIL?
Samorka býður til morgunfundar um málefni hitaveitna,
stöðu jarðhitaauðlindarinnar og forðamála.
Boðið verður upp á morgunhressingu frá 8:30.
Fram koma:
Hera Grímsdóttir, Veitur
Framkvæmdastýra Rannsókna og þróunar hjá OR
Sigurður Þór Haraldsson, Selfossveitur
Veitustjóri
Hjalti Steinn Gunnarsson, Norðurorka
Fagstjóri hitaveitu
Marta Rós Karlsdóttir, Orkustofnun
Sviðsstjóri sjálfbærrar orkunýtingar
Almar Barja, Samorka
Fagsviðsstjóri
Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.
Allir eru velkomnir á fundinn og aðgangur er ókeypis.
Fundinum verður einnig streymt.
Skráning er á samorka.is
Fimmtudaginn 17. nóvember
Kl. 9:00–10:30
Kaldalóni, Hörpu
16 kynningarblað 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURHREIN ORK A