Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Blaðsíða 22
Ef athugað er hlutfall fjölhurafæðinga (multiple birth
ratio, skammstöfun MBR), sem er fjöldi fleirhura miðað við looo
fædd börn, kemur í ljós, að þetta hlutfall hefur lækkað frá 35.2
árin 1881 - 1890, í 16.4 árið 1972.
Þessi fækkun fjölburafæðinga er sambærileg við reynslu Svía,
en hjá þeim hefur fjölburum einnig farið fækkandi á liðnum árum.
Þeir telja meginástæðuna vera minnkandi barnafjölda hjá hverri
konu. En alþekkt er, að tíðni fjölbura er meiri hjá konum, sem
fætt hafa fleiri börn.
Eðlilegt er að álykta, að sömuskýringa sé að leita hér á
landi. I Mannfjöldaskýrslum Hagstofunnar er fyrst á áratugnum
1951-1960 gefin upp í töflum fæðingaröð barna. Samanburður á
fæðingaröð barna áratuginn 1951-1960 og árinu 1972 er sýndur í
töflu 2.
Tafla 2.
1951 - 1960 1972.
Lifandi fædd börn % lifandi fædd börn %
1. barn 11.887 26.5 1.637 34.8
2. " 10.882 24.3 1.273 27.0
3. " 8.532 19.o 801 17.o
4. " 5.643 12.6 441 9.4
5. " 3.244 7.2 190 4.o
6.og fleiri 3.899 8.7 197 4.2
Otilgreint 749 1.7 170 3.6
Samtals 44.836 100. o 4.7o9 100. o
I töflu 2 kemur greinilega I ljós, að hlutfallslegur fjöldi
fyrsta og annars barns er verulega hærri árið 1972 en fyrra tíma-
bilið, sem sýnt er. Eins sést, að hlutfallstala barna, sem eru
ndmer sex eða meira í röðinni, hefur minnkað um helming.
20