Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Blaðsíða 9
I samráði við Heilbrigðismálaráðuneytið ákvað landlæknir,
að Island skyldi táka þátt í Jjessari könnun og var einum okkar
( G.S.) falið að mæta á undirbúningsfundum í Genf varðandi skrán-
inguna. Var fyrsti fundurinn haldinn þar 5.4. - 7.4. 1971 undir
forsæti próf. Neville Butler frá Bristol í Englandi, sem stjórnað
befur umfangsmiklum könnunum á fæðingaupplýsingum í Bretlandi á
s-l. áratug.
Eyrir þessum fyrsta fundi lá uppkast af fæðingatilkynningum
um lágmarksupplýsingasöfnun samkvæmt óskum WHO. En jafnframt var
hverju þátttökulandi heimilað að bæta við upplýsingum á fæðinga-
.iilkynninguna til eigin úrvinnslu, eftir því sem heilbrigðisstjórn
viðkomandi lands óskaði eftir.
Sumarið 1971 komu dr. Logan og dr. Kupka í heimsókn til
Islands. Voru þá haldnir fundir með landlækni, hagstofustjóra,
fulltrúum Tryggingarstofnunar ríkisins og yfirmönnum fæðingastofn-
sna og að því búnu samþykkt drög að nýrri fæðingatilkynningu, sem
skyldi xeysa af hólmi eldri tilkynningar. Þessi nýja fæðingatil-
kynning fullnægði óskum WHO og tókst jafnframt að samræma þarfir
Hagstofu Islands, Tryggingarstofnunar ríkisins auk lögbundinnar
skráningar ljósmæðra í ]?æðingab<5k. Síðla sumars 1971 var uppkast
að þessari nýju fæðingatilkynningu reynt á Pæðingadeild Lsp. við
um það bil loo fæðingar. Samkvæmt reynslu þessarar könnunar var
endanleg gerð fæðingatilkynningar fyrir Island samin með smávægi-
legum breytingum og samþykkt á fundi í Genf haustið 1971.
Hönnun á hinni nýju fæðingatilkynningu annaðist Sverrir Júl-
íusson sérfræðingur í skjalafræði. Bæðingatilkynningin var samin
^ fjórriti.
Hyrsta eintak sendist prestum og síðan Hagstofu eins og áður hef-
ur tíðkast með mannfjöldaskýrslur í landinu.
^nnað eintak skyldi sent á Bæðingadeild Lsp. til úrvinnslu, þriðja
eintak til Tryggingastofnunar ríkisins eða Sjúkrasamlags vegna
gneiðslu á fæðingastyrk, en fjórða og síðasta eintakið skyldi leysa
af hólmi Pæðingabók ljósmæðra. Var þá um leið afnumin skráning
Hæðingabóka, sem gilt hefur hér á landi til fjölda ára.
7