Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Blaðsíða 51
Skýringar við mynd 9 .
EæðinKatilkynninK.
!• Fullt nafn: Við fleirnefni skal undirstrika það nafn(þau nöfn),
sem venjulega er notað.
2. Nafnnúmer: 8 stafa tala, ritist eftir nafnskírteini.
3. Fæðingarnúmer: Ritist eftir nafnskírteini. Númer þetta er fremst
í miðlínu á nafnskírteini og f því eru 9 tölustafir: fæðingar-
dagur, - mánuður og - ár og að auki 3 telustafir, sem verða
að fylgja. Dæmi um ritun fæðingarnúmers: o5.o7.41-222, þ.e.
fædd 5.;júlí, 1941 og auðkennd frá öðrum fæddum þann dag, með
númerinu 222.
4. Aldur skal tilgreina f árum, t.d. 24 ára o.s.frv.
3. Ef lögheimili er í kaupstað eða kauptúni, ritast götunafn og
húsnúmer eða húsheiti, ásamt heiti kaupstaðar eða kauptúns.
Ef lögheimili er í strjálbýli, ritast heiti bæjar eða húss
og auk þess hreppur og sýsla.
12. Andvana fædd börn eru þau, sem fæðast án lífsmarks eftir
minnst 28 vikna meðgöngu.
15. Hér ritast meiri háttar afbrigði meðgöngu, t.d. fæðingareitrun,
blæðing á meðgöngutima eða í fæðingu o.s.frv. Einnig meiri
háttar aðgerðir, keisaraskurður, töng o.s.frv.
16. Eullt nafn: Sjá skýringu við reit 1.
17. Náfnnúmer: Ejá skýringu við reit 2.
18. Pyrir föður skal aðeins tilgreina fæðingardag, -mánuð og -ár,
en ekki raðnúmer, sbr. fæðingarnúmer móður í reit 3.
20.. Lögheimili: tíjá skýringu við reit 5.
49