Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Blaðsíða 11
látin á fyrstu 7 dögum eftir f«eðingu ( perinatal mortality ).
Reyndist Island því vera eina landið, sem tókst að afla slíkra
upplýsinga á fæðingatilkynningum, og þótti bað til eftirbreytni.
Enn liggja ekki fyrir ákvarðanir um, hvort framhald verður
á fyrrnefndri könnun á vegum \fRO, en úr því verður væntanlega
skorið síðar á þessu ári. Hvað sem verður um framhald slíkrar
samvinnu, ákváðu heilbrigðisyfirvöld og Hagstofan að nýja fæðinga-
tilkynningin verði áfram í gildi og könnun og úrvinnsla fari fram
á sama hátt áfram hér á landi. Náin samvinna er höfð við Hagstofu
Islands um úrvinnslu, en hér er fyrst og fremst lögð áherzla á
Þau atriði er lúta að heilbrigðismálum.
I, 3. ÖNNPR SAMVIMA VIB WHO.
Eftir að fulltrúar WHO höfðu heimsótt Island sumarið 1971
kynnst aðstæðum hér á landi, áttu þeir þátt I því, að fleiri at-
Þuganir voru gerðar á skyldu sviði eins og hér mun verða minnst á.
Haustið 1971 ákvað ein deild WHO (International Classifica-
tion of Diseases) að halda ráðstefnu í Genf 15.11. -19.11. það ár.
Hlutverk ráðstefnunnar voru umræður um lífseinkenni hjá nýfæddum
Hörnum og þá gagnrýni, sem komið hefur fram á þeim skilgreiningum,
sem nú eru notaðar vlðast hvar í heiminum. Jafnframt skyldi ráð-
stefnan gera tillögur um nýja reglugerð, sem kæmi í stað þeirrar
eldri (frá 1950), sem allar þjóðir heims gætu notað þrátt fyrir
^isjafnlega þróaða heilbrigðisþjónustu.
Einnig var það hlutverk ráðstefnunnar að gera tillögur um
skýrari mörk á nýburðartímabilinu (perinatal period) en verið hefur
til þessa, ásamt skilgreiningu á öllum hugtökum, sem þessu tíma-
bili tilheyra. Var einum okkar ( G.B.) boðin þátttaka í þessari
^áðstefnu. Af Islands hálfu þótti sérstaklega áhugavert að fylgj-
ast með þessum málum vegna þess, að fyrir dyrum stendur breyting
^ Islenzkum ljósmæðralögum og reglugerð og því mikilvægt fyrir
okkur að kynnast því, sem framundan er í þessum málum á alþjóða-
Vettvangi.
9