Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Side 26
Tafla 5
I reglugerð frá 1933, sera enn er í gildi, eru ákvæði um,
hvað telja skuli andvana fædd börn. Þar er harn talið andvana
ef engin öndun á sér stað, jafnvel þótt greindur verði hjart-
sláttur, æðasláttur í naflastreng og vöðvahreyfingar.
Skv. skilgreiningu WHO frá árinu 1950 er harn talið lifandi
fætt, ef slík einkenni eru til staðar. Má því vænta að einhver
þeirra barna, sem talin eru andvana fædd í töflu 3 skv. reglum
frá 1933 mundu talin lifandi fædd skv. reglum WHO.
Breytir jþetta engum tölum um burðarmálsdauða, þótt tölur andvana
fæddra barna lækkuðu aðeins, en börn látin á fyrstu viku yrðu að
sama skapi fleiri.
Á þessu tímabili hefur orðið lækkun burðarmálsdauða, sem er
marktæk með 0.1% marki ( p< o.ool - highly significant).
Einkum er áberandi lækkun frá og með árinu 1969, sem er marktæk
með 5% marki ( p<o.o5 - probably significant).
A árinu 1968-'69 voru undirbúnar Rhesus-varnir í landinu.
læknar Eæðingadeildar heimsóttu og héldu fundi með öllum starfandi
1jósmæðrum og læknum, sem við fæðingar fást. Á sömu árum voru
haldin 1jósmæðranámskeið I Fæðingadeild Landspítalans með góðri
þátttöku starfandi ljósmæðra. Þessi starfsemi skapaði nánari sam-
vinnu með ljósmæðrum og sjúkrastofnunum en áður hafði þekkst.
Þegar nýja fæðingatilkynningin, mæðraskrá og barnaskrá voru
kynnt ári síðar, svo sem lýst er 1 kafla I, 4, var þegar komin
náin samvinna með viðkomandi aðiljum um Rhesus-varnir.
Einnig má geta þess, að tækjabúnaður við rannsóknir og meðferð á
barnshafandi konum og nýburum hefur aukist verulega síðustu ár á
stærstu fæðingastofnunum landsins.
Mæðraverndareftirlit hefur aukist mjög sl. 3-4 ár um land allt.
Afbrigði á meðgöngutíma finnast fyrr, og konur með slík afbrigði
em sendar fyrr á sjúkrahús en áður var. Leiða má líkur að því, að
hér sé að leita ástæðu fyrir þeirri lækkun á burðarmálsdauða, sem
orðið hefur sl. 4 ár.
24