Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 26
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Við seljum þýskar gæsadúnsængur
frá OBB sem er einn elsti og virtasti
sængurframleiðandi Þýskalands.
Þegar kemur að dúnsængum eru
Þjóðverjar gríðarlega kröfuharðir
og vilja aðeins það besta. Það eru
mörg fyrirtæki að berjast um hylli
kaupenda á þýska markaðnum og
gæðakröfurnar eru mjög miklar,“
segir Hildur innan um ómótstæði-
legar dúnsængur frá OBB.
„Aðrar búðir hér á Íslandi eru
líka að selja þýskar sængur en þær
passa sig bara á því að kaupa inn
ódýrustu sængurnar þótt þær selji
þær samt eins og um alvöru lúxus-
vöru sé að ræða. Það gerum við
ekki. Við pöntum bara það flottasta
sem til er. Sængur með 100 prósent
gæsadúni af hvítum kanadagæsum
og ytra byrði úr 460 þráða micro-
satíni með aloe vera-áferð sem gerir
sængurnar enn þá mýkri og æðis-
legri,“ greinir Hildur frá.
Handgerðar lúxus-sængur
Í sumar fóru Hildur og Björn Þór
Heiðdal, eigandi Rúmföt.is, í heim-
sókn til OBB í Þýskalandi.
„Þar fengum við að skoða alla
verksmiðjuna og sjá hvernig sæng-
urnar sem við seljum eru búnar
til. Verksmiðjan var endurbyggð
frá grunni eftir seinni heimsstyrj-
öldina og er gamli hlutinn allur frá
þeim tíma. Samkvæmt sölustjór-
anum eru öll tækin líka jafn gömul
en gera nákvæmlega sama gagn
og ný tæki og eru betri í sumum
tilvikum,“ segir Björn og heldur
áfram:
„Sum tækin þarna í gamla
hlutanum, sem flokka dúninn
eða blanda honum saman eftir
kúnstarinnar reglum, eru á stærð
við lítil sumarhús. Í nýja hlut-
anum, sem er töluvert stærri, eru
reyndar splunkunýjar græjur
sem gera framleiðsluna sjálf-
virkari en þar fer fram stærsti hluti
framleiðslunnar. Í okkar tilviki,
þegar við pöntum fáar sængur
úr Black Forest-línunni, eru þær
allar handgerðar frá a til ö í gamla
hlutanum. Við erum því að bjóða
Íslendingum upp á alvöru hand-
gerðar lúxus-sængur upp á gamla
mátann.“
Himneskir koddar
Rúmföt.is selur einnig guðdóm-
lega kodda sem fleyta hverjum
og einum mjúklega inn í drauma-
landið.
„Við látum sérframleiða fyrir
okkur alveg frábæra hágæða
kodda í annarri verksmiðju. Þeir
innihalda 100 prósent gæsadún
og fíngerðar smáfjaðrir til að gefa
réttan stuðning við háls og höfuð
og eru þriggja laga. Smáfjaðrir eru
í kjarnanum og síðan gæsadúnn
næst höfðinu,“ útskýrir Björn og
bætir við:
„Fólk hefur verið duglegt að
hrósa okkur fyrir þessa kodda sem
okkur finnst alltaf gaman.“
Ítalskir vefarar þeir flottustu
Björn segir hægt að kaupa rúmföt
frá milljón framleiðendum en að
enginn vefi jafn flott rúmföt og
bestu vefarar Ítalíu.
„Það hef ég látið reyna á síðan ég
byrjaði að flytja inn rúmföt fyrir
fimmtán árum. Það er ekki bara
það að bómullin sé í mjög háum
gæðaflokki heldur getur maður
valið munstrið sjálfur, hversu
marga þræði maður vill og í hvaða
lit. Ítölsku vefararnir gera allt fyrir
mann og vefa þetta í litlu magni
sem er ekki í boði annars staðar, til
dæmis í Asíu. Ef maður vill kaupa
500 metra af svo dýru damaski frá
Kína, þá er svarið alltaf það sama:
Þú verður að kaupa 5.000 metra.“
Þegar þau Björn og Hildur voru
búin að heimsækja OBB og rúm-
fataframleiðandann Curt Bauer
í Þýskalandi var brunað til Ítalíu
á 200 kílómetra hraða, sem þykir
víst ekki mikið á þýsku hraðbraut-
unum.
„Við vörðum síðan heilum degi í
að velja munstur og liti fyrir vetrar-
línuna okkar sem er væntanleg
mjög fljótlega,“ segir Björn.
Þakklát fyrir viðtökurnar
Björn og Hildur eru þakklát fyrir
viðtökurnar sem farið hafa fram úr
björtustu vonum síðan búðin var
opnuð.
„Það er ekki nóg að selja
vandaða vöru á sanngjörnu verði.
Þjónustan skiptir líka máli og að
hafa gott viðmót. Mér leiðist alveg
óskaplega að fara í búðir þar sem
starfsfólkið nennir ekki að sinna
manni. Einu sinni fór ég í bílaum-
boð og starfsmaðurinn faldi sig á
bak við gardínu svo hann þyrfti
ekki að afgreiða viðskiptavini. Það
er ekkert svoleiðis hjá okkur. Við
erum ekki einu sinni með gard-
ínur,“ segir Björn glettinn.
Jólagjafir fyrir þá sem eiga allt
Hágæða rúmföt eru fullkomin jóla-
gjöf handa þeim sem eiga allt.
„Það er nefnilega mjög lítið úrval
af hágæða rúmfötum til á Íslandi.
Við í Rúmföt.is höfum breytt því
og fólk getur keypt hina fullkomnu
jólagjöf hjá okkur. Síðan er lítið
mál að skipta eða gefa gjafakort.
Við seljum einnig guðdómleg
silkikoddaver, sloppa, franskar
diskaþurrkur og svuntur, svo fátt
eitt sé nefnt,“ segir Hildur, komin í
jólaskap. n
Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28 í
Kópavogi. Sími 565 1025. Opið alla
virka daga frá klukkan 12 til 17.30
og á laugardögum frá klukkan 11
til 15. Skoðið úrvalið á rumfot.is.
Hjá Rúmföt.is fást dásamlega falleg og sérsaumuð
barnasængurverasett í miklu úrvali fyrir hátíðarnar.
Rúmfatnaður með sérofnu munstri úr ítölsku damaski.
Hér má sjá stórkostlega vél hjá þýsku sængurgerðinni
OBB sem framleiðir lúxus-sængur upp á gamla mátann.
Stálgrá, röndótt rúmföt frá þýska gæðamerkinu Curt Bauer hitta í mark í jóla-
pakkann. Munstrið er sígilt og rúmfötin vönduð og ákaflega góð viðkomu.
Ómótstæðilegur rúmfatnaður með áprentuðu blómamynstri og úr 300
þráða bómullarsatíni sem heldur sér vel eftir marga þvotta og hnökrar ekki.
Gyllt bómullarsatín, undurfagurt og silkimjúkt á rúmin.
Mildir, ljúfir litir og falleg munstur tryggja ljúfan svefn.
Það er ekki nóg að
selja vandaða vöru
á sanngjörnu verði.
Þjónustan skiptir líka
máli og að hafa gott
viðmót.
Björn Þór Heiðdal
2 kynningarblað A L LT 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR