Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 34
Tíu ár eru liðin frá formlegum stofnfundi Pírata og fagna þeir tímamótunum með málþingi og balli. arnartomas@frettabladid.is Píratar fagna tíu ára afmæli sínu í dag en formlegur stofnfundur þeirra fór fram 24. nóvember 2012. Þar voru samþykkt drög að lögum flokksins og ákveðið að nafn hans skyldi vera Píratar. Halldóra Mogensen þingf lokksformaður segir góða stemningu fyrir tímamótunum. „Stemningin er bara mjög góð,“ segir hún. „Við erum nú orðin rótgróinn flokkur og það er auðvitað mjög spenn- andi áfangi.“ Flokkurinn sótti innblástur til sænsku Píratahreyfingarinnar sem stofnuð var 2006 og segir Halldóra að þegar Píratar á Íslandi voru stofnaðir hafi grunnhugsunin verið lýðræðið. „Píratar voru stofnaðir til þess að innleiða virkt lýðræði á Íslandi. Grunn- stefna flokksins hvílir á lýðræði og það hefur haft áhrif á öll okkar vinnubrögð frá upphafi,“ útskýrir hún. „Þetta snýr líka að tækniþróun í samfélaginu og hvaða breytingar hún hefur í för með sér. Hvernig við getum tryggt lýðræði, ekki bara í samfélaginu heldur líka í stafrænu umhverfi.“ Lýðræði og stafræn þróun Þegar litið er um öxl telur Halldóra að flokkurinn hafi haldið sig við þá grunn- stefnu sem lagt var upp með í upphafi. „Grunnstefnan litar allt okkar starf. Leiðarstefið er gagnsæi, ábyrgð, gagn- rýnin hugsun og upplýstar ákvarðanir. Þetta er grunnurinn sem við byggjum á,“ segir hún. „Það sem við höfum náð að gera umfram margar aðrar Píratahreyfingar er að við höfum náð að taka þessa upp- haf leg áherslu Pírata á hvernig við getum tryggt borgararéttindi og lýðræði í hinum stafræna heimi og yfirfæra hana á samfélagið allt.“ Gagnsæi og jaðarmál Á tíu árum f lokksins segist Halldóra stolt af mörgu sem hann hefur áorkað. „Það er svo margt, en það má kannski benda sérstaklega á hvernig þær áhersl- ur sem við leggjum á alvöru aðhald gegn valdi og gagnsæi hafa leitt til viðhorfs- breytingar, bæði í stjórnmálum og í samfélaginu öllu. Í dag er það sjálfsögð krafa,“ segir hún. „Svo er það áherslan á aðkomu fólks að ákvörðunartöku um málefni sem það varðar, ég finn að þessi nálgun hefur skipt sköpum í starfi okkar á þingi. Sam- ráðið, sem er hluti af erfðamengi Pírata, virðist vera eftiráhugsun hjá mörgum öðrum flokkum, því miður.“ Þá finnst Halldóru Píratar einnig hafa komið ýmsum jaðarmálum inn í umræðuna. „Til dæmis borgaralaunun- um, sem enginn vissi hvað var á sínum tíma áður en Píratar fóru að tala um það. Afglæpavæðing neysluskammta er annað málefni en með umræðu Pírata hefur stuðningur almennings við málið nánast tvöfaldast á stuttum tíma.“ Málþing og djamm Afmælisdagskrá f lokksins hófst fyrr í vikunni en nær hámarki um helgina með málþingi og afmælisballi. „Yfirskrift málþingsins er „Gagnsæi gegn spillingu og aðhald með valdi“ sem ég myndi segja að sé þungamiðjan í okkar starfi,“ segir Halldóra. „Um kvöldið ætlum við svo að djamma saman, og það er öllum boðið, ekki bara Pírötum, að koma og fagna með okkur.“ Málþingið fer fram á Kjarvalsstöðum klukkan 12 á morgun og afmælisballið fer af stað klukkan 20 á neðri hæð Kex hostels. n Píratar fagna tíu árunum Leiðarstefið er gagnsæi, ábyrgð, gagnrýnin hugs- un og upplýstar ákvarð- anir. Merkisatburðir 955 Játvígur sanngjarni verður Englandskonungur. 1407 Lúðvík af Orléans er myrtur, sem hrindir af stað stríði milli Orléans og Búrgunda. 1582 William Shakespeare giftist Anne Hathaway í Strat- fordupon-Avon. 1951 Þátturinn Óskalög sjúklinga hefur göngu sína í Ríkisútvarpinu. Stjórnandi er Björn R. Einarsson. Þessi þáttur var á dagskrá vikulega þar til í október 1987. 1965 Jóhann Löve lögreglumaður finnst suður af Skjald- breið eftir mjög víðtæka leit. Hann hafði verið á rjúpnaveiðum en villst í vonskuveðri. Í Öldinni okkar segir að útivist Jóhanns hafi verið allt að 70 klukkustundir og flestir hafi talið hann af. 1972 Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Selfoss er formlega tekinn í notkun. Hann hafði verið endur- byggður og lagður bundnu slitlagi á sex árum. 1995 Stöð 3 hefur útsendingar. Hún sameinast Stöð 2 tveimur árum síðar. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs vinar, Péturs Fells Guðlaugssonar Ástjörn 7, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyflækningadeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fyrir góða umönnun og hlýju. Kristmunda Sigurðardóttir Ástkær móðursystir okkar, fóstursystir og frænka, Stella Guðvinsdóttir sjúkraliði, áður til heimilis að Hásæti 3b á Sauðárkróki, sem lést 15. nóvember sl. á Dvalarheimilinu á Sauðárkróki, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 28. nóvember kl. 14. Streymt verður á Youtube-rás Sauðárkrókskirkju. Þeim sem vildu minnast Stellu er bent á Minningarsjóð Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási. Óskar G. Björnsson Erla Kjartansdóttir Guðni Ragnar Björnsson Anna Marie Stefánsdóttir Lovísa Birna Björnsdóttir Vigfús Vigfússon Björn Jóhann Björnsson Edda Traustadóttir Hólmfríður Pálsdóttir Hólmar Bragi Pálsson Kristín Kalmansdóttir og fjölskyldur Elskulegur faðir minn, afi, bróðir og mágur, Gylfi Þorkelsson Steinaseli 7, lést sunnudaginn 13. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks deildar 11 G á Landspítalanum við Hringbraut fyrir góða umönnun. Ásta Heiðrún Gylfadóttir Emma Sigríður Sverrisdóttir Gylfi Sverrisson Sigurgeir Þorkelsson Freygerður Pálmadóttir Ingimar Þorkelsson Jóhanna Pétursdóttir Guðfinna Steinunn Bjarney Sigurðardóttir lést 12. nóvember 2022. Útför verður frá Árbæjarkirkju í Reykjavík, föstudaginn 25. nóvember, kl. 13. Bænastund og moldun í Bjarnaneskirkju í Nesjum laugardaginn 26. nóvember, kl. 11. Þorleifur Jónsson Halldóra Andrésdóttir Ómar Arnarson Guðbjörg Ósk Jónsdóttir Anna Lilja Jónsdóttir Brynjólfur Garðarsson Þorbergur Hjalti Jónsson Helga Skúladóttir og fjölskyldur arnartomas@frettabladid.is Á undanförnum árum hefur sú hefð fest rætur í Hafnarfirði að bæjarstjóri býður þeim Hafnfirðingum sem urðu sjötugir á árinu til veislu í Hásölum. Veislan í ár fór fram í byrjun nóvember og mættu um hundrað Hafnfirðingar fæddir 1952 í sínu fínasta pússi í Hásali til að fagna saman.  Þetta var sjötta stórafmælis- veislan sem haldin er fyrir alla sjötuga Hafnfirðinga. Í veislunni fór fram kynning á fjöl- breyttri þjónustu bæjarins fyrir afmælis- börnunum sem og starfsemi Félags eldri borgara í Hafnarfirði. Hópurinn fékk einnig að hlýða á tónleika undir stjórn Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og kynn- ingu á Qigong.  Þá fengu gestir einnig að hlýða á brot af því sem gerðist bæði innanlands og erlendis á fæðingarárinu 1952. Má þar nefna að landhelgi Íslands var færð út í fjórar sjómílur, að Sveinn Björnsson varð  fyrsti forseti lýðveldisins og að bandarískir vísindamenn lögðu fram kenninguna um Stórahvell. n Sjötugir Hafnfirðingar heiðraðir Um 100 prúðbúnir og hressir Hafnfirðingar mættu til veislu. MYND/AÐSEND Halldóra Mogensen segist stolt af verkum Pírata í tíu ára sögu fólksins, enda margt áunnist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.