Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 2
Millimál í fernu VÍTAMÍN & STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN Næring+ er á lista Sjúkratrygginga Íslands yfir niðurgreidd næringarefni fyrir þá sem eiga gilda innkaupaheimild. Þitt nafn bjargar lífi Fólki getur hreinsað til í fata- skápnum og komið fötunum sínum í leigu hjá fataleigunni Spjara í tilefni evrópskrar nýtniviku. Sérstaklega er óskað eftir stærri stærðum. lovisa@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Á fimmtudag og föstudag getur fólk komið með merkjavöru sem það á í fataskápn- um og skilið hana eftir hjá fataleig- unni Spjara í skiptum fyrir inneign á leigu. Þær Patricia Anna Þormar, Kristín Edda Óskarsdóttir og Sigríður Guð- jónsdóttir standa að baki fataleig- unni sem tók til starfa fyrir um ári síðan. Í tilefni af evrópsku nýtnivikunni sem stendur til 27. nóvember óska þær eftir fötum til að bæta við lager- inn. Þema vikunnar í ár er sjálfbærni og hringrás textíls undir slagorðinu „Sóun er ekki lengur í tísku“. „Við erum alltaf að leita leiða til að auka við lagerinn með sjálfbærum hætti. Við vitum að það hanga flíkur óhreyfðar í skápunum hjá fólki sem fleiri geta notað,“ segir Kristín og að í staðinn fyrir flíkurnar fái fólk annað hvort inneign hjá þeim eða að þær kaupi flíkurnar af þeim. „Segjum að fólk komi með Stine Goya-kjól sem það hefur aðeins notað nokkrum sinnum, þá getum við tekið hann og í staðinn getur fólk leigt hjá okkur fatnað þrisvar eða fjórum sinnum,“ segir Kristín. Að sögn Kristínar fari þó algerlega eftir upprunalegu miðaverði flíkur- innar hvað fáist fyrir hana en í þessu dæmi væri miðað við flík sem hafi upprunalega kostað um 60 þúsund. Meðalverð á leigu hjá þeim er um sjö til átta þúsund krónur. „Við viljum auka úrvalið en gera það á sjálfbæran hátt og fá fólk í lið með okkur,“ segir hún og að það verði hægt að koma til þeirra með flíkur á fimmtudag á milli 13 og 16 og föstudag á milli 12 og 16. Kristín tekur þó skýrt fram að fólk eigi alls ekki að koma með heilu ruslapokana af fötum sem þær muni fara í gegnum. Þær taki aðeins við merkjavöru og að fötin verði að vera í mjög góðu ásigkomulagi. „Það er gott að hafa samband við okkur fyrst og þá er hægt að bóka tíma til að fara í gegnum það sem fólk kemur með,“ segir Kristín. Þetta segir Kristín sniðuga lausn fyrir fólk sem á mikið af fötum í fataskápnum sem það notar ekki lengur og vill kannski fá að prófa annað en ekki eiga það. Kristín segir að þær taki við öllum stærðum en að þeir biðli sérstak- lega til fólks sem á f líkur í stærri stærðum um að koma til þeirra því að það sé skortur á lagernum þeirra á stærri stærðum. „Það er mikil eftirspurn eftir þeim og við yrðum glaðar yfir að auka úrvalið,“ segir Kristín Edda. n Óska eftir alls konar flíkum í öllum stærðum til útleigu Við vitum að það hanga flíkur óhreyfðar í skápunum hjá fólki sem fleiri geta notað. Kristín Edda Óskarsdóttir Kristín Edda og Sigríður taka á móti fötum fólks á morgun og á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mikið stuð var í Kringlunni í gær þegar fimmtíu listamenn komu saman til að láta rödd sína heyrast í tilefni árlegrar alþjóðlegrar herferðar Amnesty Interna- tional, Þitt nafn bjargar lífi. Herferðin í ár er helguð tíu málum einstaklinga sem sætt hafa mannréttindabrotum í tengslum við réttinn til að mótmæla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI gar@frettabladid.is UMFERÐ Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu deildi í gær á Facbook-síðu sinni auglýsingu frá Samöngustofu þar sem minnt er á notkun endur- skinsmerkja. Afar skuggsýnt hefur verið undanfarið vegna snjóleysis. Vel er tekið undir færslu lögregl- unnar á Facebook. „Svartklæddir hjólreiðamenn og rafskutlumenn eru í mestri hættu í umferðinni. Ómögulegt að sjá þá,“ segir í einni athugasemd. „Óhugnalega lítið notuð núorðið. Þarf vitundarvakningu. Skiptir öllu fyrir ökumenn í myrkri og rigningu,“ segir í annarri. Í þeirri þriðju er minnt á að huga þurfi að köttum og hundum í þessu sambandi. n Lögregla minnir á endurskinsmerki helenaros@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Rannsók n lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu á stunguárásinni sem átti sér stað á Bankastræti Club síðastliðið fimmtudagskvöld miðar vel áfram. Málið hefur verið í forgangi hjá lögreglu vegna umfangs og hafa tugir lögreglumanna unnið sleitu- laust að rannsókn þess. Samhliða stunguárásinni rannsakar lög- reglan hótanir og skemmdarverk á íbúðarhúsnæði sem framin hafa verið undanfarna daga sem talin eru tengjast árásinni. Til viðbótar rannsakar embætti héraðssaksóknara mögulegan leka lögreglunnar. Myndband sem sýnir árásina hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Grunur er um að myndbandið komi úr gagnagrunni lögreglu. „Við lítum þetta mál mjög alvar- legum augum, ef þetta er eins og við virðist blasa þá er þetta trúnaðar- brestur,“ sagði Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar deildar lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í gær. Þrjátíu hafa verið handteknir vegna málsins og þar af hafa sextán verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Bandaríska sendiráðið sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem bandarískir ríkisborgarar voru varaðir við hættuástandi í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Tilkynningin kemur í kjölfar fréttaf lutnings um yfirvofandi hefndarárás í miðbænum sem gengur manna á milli á samfélags- miðlum. Fyrirhuguð árás er til skoðunar hjá lögreglu sem hefur tilkynnt um aukinn viðbúnað. Jóhannes Þ. Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir aðvörunina ekki heppilega en of snemmt sé að segja til um hvort orðspor landsins bíði hnekki vegna málsins. n Rannsaka gagnaleka Grímur Grímsson, yfirmaður mið- lægrar deildar lögreglu á höfuð- borgarsvæðinu. 2 Fréttir 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.