Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 1
2 5 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Kalkúnaleggir
með tilheyrandi
Þakklát Booker-
verðlaununum
Lífið ➤ 42Menning ➤ 36
svartur fössari
Sjáðu brot af tilboðunum á bls. 5 eða öll tilboðin á elko.is
Kalkúnn
ýmsar
stærðir
22,1%
42,8%
35,1%
n Hlynnt(ur)
n Andvíg(ur)
n Hvorki né
Stuðningur við aðild Íslands
að Evrópusambandinu
Ný könnun sýnir að fleiri eru
óákveðnir gagnvart Evrópu-
sambandsaðild en áður.
Stuðningurinn dalar mest hjá
Samfylkingu.
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Óákveðnum hefur
fjölgað úr 17,7 prósentum í 22,1 á
hálfu ári þegar kemur að Evrópu-
sambandsaðild. Þetta kemur fram í
nýrri könnun Prósents. 42,8 prósent
eru nú hlynnt aðild en 35,1 prósent
andvígt.
Einna mest hefur dregið úr stuðn-
ingi við Evrópusambandið innan
Samfylkingarinnar. Í júní, þegar
síðasta könnun var gerð, studdu 84
prósent kjósenda f lokksins aðild
en aðeins 5 prósent voru á móti. Nú
styðja 67 prósent aðild en 12 prósent
eru á móti.
„Það getur verið að fólk sem
tengir sig við jafnaðarstefnuna í
grunninn en hefur varnagla gagn-
vart Evrópusambandinu sé að koma
aftur til Samfylkingarinnar og vilji
styðja hana núna,“ segir Kristrún
Frostadóttir, nýkjörinn formaður
Samfylkingarinnar.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
um helgina sýnir ný könnun Pró-
sents meira en 5 prósenta fylgis-
aukningu flokksins.
Tveir stjórnmálaflokkar mælast
nú Evrópusinnaðri en Samfylking-
in. 74 prósent kjósenda Pírata styðja
aðild og 68 prósent Viðreisnar-
fólks. Meirihluti mælist einnig hjá
kjósendum Sósíalistaflokksins og
Vinstri grænna. Hjá Flokki fólksins
styðja 26 prósent aðild, 24 prósent
Framsóknarmanna, 19 prósent
Sjálfstæðismanna og aðeins 11 pró-
sent Miðflokksmanna.
Á höfuðborgarsvæðinu styðja
47 prósent aðild að Evrópusam-
bandinu en 30 prósent eru á móti.
Nokkuð hefur dregið úr stuðningi
við aðild á landsbyggðinni frá því
í júní þegar naumur meirihluti var
fylgjandi aðild. Nú eru 35 prósent
fylgjandi en 44 á móti. Ekki er mikill
munur á afstöðu kynjanna en karlar
hafa sterkari skoðanir á málinu.
SJÁ SÍÐU 6
ESB-stuðningur dalað í Samfylkingu
Ungir framhaldsskólanemar flykktust í Kringluna í gær til að kveðja veitingasvæðið Stjörnutorg fyrir fullt og allt eftir 23 ára starfsemi. Framhaldsskólapiltar gæða sér á síðustu hamborgurum
Stjörnutorgs með bestu lyst í góðra vina hópi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
EFNAHAGSMÁL Verkalýðsforkólfa
greinir á um nauðsyn þess að slíta
kjaraviðræðum eftir stýrivaxta-
hækkun Seðlabankans í gær.
Formaður Einingar-Iðju vill ekki
slíta viðræðunum. Seðlabanka-
stjóri, Ásgeir Jónsson, er borinn
þungum sökum. Formaður VR
sakar Ásgeir um of beldi gegn fólk-
inu í landinu. Launahækkanir verða
gagnslausar ef þær brenna upp í
óðaverðbólgu, segir Ásgeir. SJÁ SÍÐU 4
Þung orð eftir
vaxtahækkanir
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.