Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 19
„Maður upplifir sig bara sem vonda karlinn, það er bara þannig.“ Þetta er tilvitnun í Daða Hjálm- arsson, útgerðarstjóra KG Fisk- verkunar, sem einnig situr í stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Tilefnið er frásögn Fréttablaðsins fyrir viku af nýrri rannsókn Kristjáns Vigfússonar kennara við Háskólann í Reykjavík á við- horfi stjórnenda í sjávarútvegi til starfsumhverfis greinarinnar. Óvissa Kristján segir að skortur á fram- tíðarsýn stjórnvalda skapi mikla óvissu og sé að mati stjórnenda fyrirstaða, sem valdi áhættu í fjár- festingum og uppbyggingu og bitni á samkeppnishæfni greinarinnar. Rannsóknin sýnir að hávær og neikvæð pólitísk umræða um sjávarútveg hafi mikil áhrif. Ein ástæða kvótasamþjöppunar er óvissa sem skapast í kringum kosningar. Sumir minni aðilar selji þá aflahlutdeildina. Kristján Vigfússon segir: „Það sem kom mér kannski mest á óvart var hversu mikill tími og orka fer í það hjá æðstu stjórnendum að takast á við stjórnvöld og bregðast við almennri pólitískri umræðu um greinina í fjölmiðlum. Einnig finnst mér áhugavert hvernig skortur á framtíðarsýn stjórnvalda og getuleysi til að ná sáttum um sjávarútveginn hefur áhrif á greinina og viðheldur sífelldum átökum, sem ekki sér fyrir endann á.“ Óheilbrigt Erfitt er að draga í efa að góðir stjórnendur í sjávarútvegi upplifi sjálfa sig í eins konar álagaham vonda karlsins. Slík upplifun er vissulega til marks um óheilbrigt ástand. Að svo miklu leyti sem draga má ályktanir af skoðanakönnunum virðist meirihluti þjóðarinnar hins vegar líta svo á að stjórn- endur í sjávarútvegi hafi ekki lagt sitt af mörkum til þess að losna úr þessum álögum. Stjórnendur sjávarútvegsfyrir- tækjanna hafa hins vegar rétt fyrir sér með óvissuna. Samkvæmt gildandi löggjöf er unnt að aftur- kalla alla úthlutun aflahlutdeilda án fyrirvara. Greinin hefur þannig lítið lagalegt öryggi. Engin ríkisstjórn hefur beitt þessu valdi í óhófi. En margar ríkisstjórnir bæði til hægri og vinstri hafa þó flutt verulegar aflaheimildir frá útgerðum í afla- hlutdeildarkerfinu til smábáta. Núverandi ríkisstjórn áformar stærsta tilflutning af því tagi til að auka pólitískt réttlæti einmitt rétt fyrir næstu kosningar. Pólitískt öryggi Árið 2000 lagði auðlindanefndin til að óvissunni, sem útgerðar- menn kvarta réttilega yfir, yrði eytt með tímabundnum nýtingar- samningum, sem nytu réttar- verndar sem óbein eignaréttindi. Á móti kæmi sanngjarnt auðlinda- gjald. Þegar frá leið höfnuðu stjórn- endur sjávarútvegsfyrirtækja laga- legu öryggi af því tagi. Þeir kusu að halda lagalegri óvissu en ákváðu að verja öryggið sjálfir í gegnum pólitísk sambönd. Það hefur gengið sæmilega, þó að hlutur smábáta hafi smám saman verið aukinn. En það tekur mikla orku og tíma. Skiljanlegt er að stórhuga áform sjávarútvegsráðherra um meiri pólitískan tilflutning virki sem ný ógn. En þetta er leið sem atvinnu- greinin kaus. Pólitískt öryggi er minna en lagalegt öryggi. Lagalegt öryggi er dýrara en það pólitíska. Þetta er veruleiki, sem allir þurfa að horfast í augu við. Markaðslausn Þó að samstaða væri í auðlinda- nefndinni um að eyða óvissunni og tryggja lagalegt öryggi aflahlut- deildarkerfisins var ágreiningur um hvort finna ætti sanngjarnt auðlindagjald með pólitískri álagningu eða eftir fyrningarleið. Formaður nefndarinnar, Jóhannes Nordal, hefur nú sent frá sér einstakt öndvegisrit um efna- hagssögu Íslands á tuttugustu öld undir heitinu: Lifað með öldinni. Þar segist hann eindregið hafa verið þeirrar skoðunar að fyrning- arleið hefði verið sanngjarnari og líklegri til að ná sátt þegar til lengri tíma væri litið. Skilaboð hans til 21. aldarinnar eru þessi: „Þótt fyrningarleiðinni hafi verið hafnað tel ég nauðsyn- legt að halda áfram að leita nýrrar leiðar til að byggja álagningu veiðigjalda á markaðslegu mati á virði auðlindarentunnar í stað þess að þau þróist í að verða ein- hvers konar viðbótartekjuskattur á útgerðina.“ Töfrasprotinn Það er brýnt að losa stjórnendur fyrirtækja í sjávarútvegi úr álaga- ham vonda karlsins. Jóhannes Nordal, höfuðsmiður frjálslyndrar efnahagsstefnu á Íslandi, er með töfrasprotann. En hann nær ekki til þeirra, sem kjósa að vera ósnertanlegir. Það er ekki unnt að kæfa frjáls- lynda stjórnmálaumræðu um markaðslausnir og langtíma lagalegt öryggi í svo mikilvægri atvinnugrein. n Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Í álögum FIMMTUDAGUR 24. nóvember 2022 Skoðun 19Fréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.