Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 8
JAGUAR - LAND ROVER Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík 525 6500 / jaguarlandrover.is Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla. Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag. JAGUAR I-PACE EV320 SE Nýskr. 7/2021, ekinn 6 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur. Verð: 10.490.000 kr. Rnr. 149047. RANGE ROVER Evoque SE 150D Nýskr. 12/2018, ekinn 32 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð: 6.690.000 kr. Rnr. 149470. JAGUAR I-PACE EV400 HSE Nýskr. 7/2019, ekinn 32 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur. Verð: 9.590.000 kr. Rnr. 421047. LAND ROVER Discovery Sport 150d Nýskr. 5/2020, ekinn 23 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð: 8.390.000 kr. Rnr. 149446. RANGE ROVER Sport HSE Dynamic P400e Nýskr. 4/2019, ekinn 114 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Verð: 10.890.000 kr. Rnr. 149457. LAND ROVER Defender S 200D Nýskr. 2/2022, ekinn 7 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð: 14.890.000 kr. Rnr. 421055. NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6 E N N E M M / S ÍA / N M 0 1 3 7 2 9 J a g u a r n o t a ð ir 6 b íl a r 2 4 n ó v Vonir standa til þess að lyfið Lecanemab muni hægja veru- lega á vitsmunalegri hnignun Alzheimer-sjúklinga. Lyfið er sagt vera bylting eftir að niðurstöður bárust úr rann- sókn á um 2.000 sjúklingum. Jón Snædal öldrunarlæknir verður viðstaddur ráðstefnu í næstu vikur þegar niðurstöð- urnar verða kynntar. mhj@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Þriðjudaginn 29. nóvember koma allir helstu sér- fræðingar um Alzheimer-sjúkdóm- inn saman í San Francisco þar sem japanska lyfjafyrirtækið Eisai og bandaríska líftæknifyrirtækið Bio- gen munu kynna niðurstöður rann- sóknar á nýju lyfi sem eykur mikið vonir Alzheimer-sjúklinga um bata. Samkvæmt fyrstu upplýsingum er um að ræða lyf sem „hægir verulega á vitsmunalegri hnignun“ og er lýst sem byltingu í lyfjagjöf fyrir Alz- heimer-sjúklinga. Jón Snædal, öldrunarlæknir við Landspítala, segir að ef rétt reynist „yrði það stærsta fréttin á þessari öld varðandi þennan sjúkdóm“. Jón, sem verður á ráðstefnunni, er hóf- lega bjartsýnn á að lyfið virki líkt og lofað er. Jón segir að það byggist á þriðja stigs rannsókn sem fyrirtækin fóru í á 2.000 einstaklingum með Alzheimer en slík rannsókn er undanfari markaðssetningar. „Það er niðurstaða fyrirtækisins að það sé líklegt að það komist á markað vegna þess hvað niðurstöðurnar væru jákvæðar,“ segir Jón. „Það sem verður rætt í næstu viku er þá meira að óháðir sérfræðingar hafa metið hvort þetta standist allt. Staðan er ekki alveg ljós akkúrat þessa stund- ina en það er mjög líklegt að þetta lyf hafi staðist kröfur.“ Jón segir að á ráðstefnunni eigi eftir að koma í ljós hvað fyrirtækin eigi við með „verulegum áhrifum“ en spurður um hvað það myndi þýða fyrir þá sem eru með sjúk- dóminn ef það sem tilkynnt hefur verið reynist satt segir hann að það yrðu mikil tímamót. „Þá yrði það stærsta fréttin á þessari öld varð- andi þennan sjúkdóm.“ „Þó að fyrirtækin lyfti sér oft upp út á við þá væri það rosalegt slag fyrir þá ef þeir kæmu með eitthvað sem ekki stæðist. Þannig að ég hef fulla trú á því að þetta sé rétt,“ segir Jón. Um er að ræða líftæknilyf sem þarf að gefa sjúklingum með sprautu á nokkurra vikna fresti. Lyfið er sagt hreinsa útfellingar úr heilanum sem talið er að valdi sjúk- dóminum. Jón segir ljóst að lyfið verði mjög dýrt og minnist þess þegar annað lyf fór á markað í fyrra og kostaði um 8 milljónir króna árlega. Lyfið fór aldrei í útbreiðslu þar sem fram- leiðanda tókst ekki að sýna fram á að það virkaði en nú er vonin hins vegar mun sterkari. Spurður hvort lyfið yrði aðgengi- legt á Íslandi, segir Jón það mjög líklegt. Vilborg Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Alzheimersamtak- anna á Íslandi, segist oft hafa slegið á væntingar þegar kemur að nýjum lyfjum „en núna er þarna svolítið ljós að birtast“. „Þú getur ímyndað þér hvað þetta verða svakalega góðar fréttir ef þetta fer sem horfir,“ segir Vil- borg við blaðamann. „Mér heyrist að þetta sé í fyrsta skipti þar sem það er raunverulega smá von um að þetta sé að takast. Þetta er virkilega spennandi og algjör bylting ef rétt reynist,“ segir Vilborg. n Gæti umbylt lífi Alzheimer-sjúklinga Niðurstöðurnar nýrrar rannsóknar verða kynntar í næstu viku en fyrstu til- kynningar lofa góðu fyrir Alzheimer-sjúklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Jón Snædal, öldrunarlæknir bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra telur ekki þörf á að óháð rannsóknarnefnd Alþingis fari nánar yfir söluna á bréfum Íslands- banka fyrr á árinu. Þetta kom fram þegar Bjarni sat fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í gær. Bjarni sagði að gera þyrfti breyt- ingar á Bankasýslunni. Ekki eigi að hafa sérstaka stofnun um eignarhald ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Þórunn Sveinbjarnardóttir, for- maður stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar, spurði um ábyrgð ráðherra í málinu og jafnræði. Bjarni sagði ráð- herra ætlað að halda sig frá ferlinu nema í undantekningartilfellum. Að öðru leyti væri hún í höndum Banka- sýslunnar. „Það segir í greinargerð að ef ráð- herra ætlar að beita þeim heimildum sem hann hefur verður hann að gera það með formlegum hætti,“ sagði Bjarni. n Bjarni vill ekki rannsóknarnefnd Ef ráðherra ætlar að beita þeim heimildum sem hann hefur verður hann að gera það með formlegum hætti. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra 8 Fréttir 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.