Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1974, Page 10
10
landshérað. Þessi fjögur héruð skiptast í 26 heilsugæslu-
umdæmi og þau síðan í 39 heilsugæslusvæði, þannig að nokkur
umdæmi ná yfir tvö eða fleiri heilsugæslusvæði (14) . Fimmta
læknishéraðið, Reykjavíkurhérað, var ekki tekið til athugunar.
Enn skortir mikið á að svæðaskiptlng heilsugæsluþjónustu sé
í fullu samræmi við núgildandi lög.
1 aðalkönnun voru 62 læknum sendar fyrrnefndar leiðbeiningar
og skýringar auk sjúkdómaskrár. Svör bárust frá 49 læknum
eða 79,0% þeirra. Vanheimtur voru aðallega bundnar við lækna
á stærstu þéttbýlisstöðunum, staðgengla lækna og kandídata
sem voru nýbyrjaðir í héraði. Þess skal getið að á þessum
tíma voru erfiðleikar á mönnun héraða.
Úrvinnsla þessarar könnunar er afmörkuð við upplýsingar 40
lækna (og samstarfsfólks þeirra) á 29 heilsugæslusvæðum. Hér
er um að ræða svæði þar sem allir læknar svöruðu og störfuðu
a.m.k. 5 daga könnunartímans. Þetta er gert til þess að fá
sem besta vitneskju um eftirspurn eftir heilsugæsluþjónustu
innan hvers einstaks svæðis og yfir rannsóknarsvæðið í heild.
3.3 Útfylling eyðublaða
Samskiptaseðill II
Fylla bar út einn samskiptaseðil fyrir hvern einstakling sem
átti samskipti við heilsugæslu meðan rannsókn stóð yfir.
Tekið var fram að aðeins ætti að merkja við eina meginástæðu
en í úrlausnarhólfum seðilsins mátti krossa við fleiri en einn
lið eftir því sem við átti hverju sinni.
Flokkun meginástæðna samskipta var að mestu sniðin eftir
aðalflokkum hinnar alþjóðlegu sjúkdóma- og dánarmeinaskrá.
1 meðfylgjandi skrá eru nöfn á 15 af 17 aðalflokkum og helstu
undirflokkum þeirra (sjá.8.3). Sömuleiðis var úrlausnarflokk-
unin mótuð eftir gjaldskrársamningi Læknafélags Islands og
Tryggingastofnunar ríkisins (15). Vegna eðlis könnunarinnar
þótti ekki ástæða til þess að auðkenna samskiptaseðil með
nafni eða nafnnúmeri sjúklings.