Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1974, Blaðsíða 28
28
í nafni þessara 33 lækna voru afgreidd 4190 erindi eða að
meðaltali 127 erindi á lækni meðan á rannsókninni stóð. Komur
á stofu voru að meðaltali 85, símaviðtöl 35 og vitjanir til
sjúklinga 7. Á nokkrum seðlum var form samskipta ekki tilgreint
og var þeim skipt á milli aðalflokka með hliðsjón af hlutfalls-
legri tíðni samskiptaforma.
Samkvæmt þessum meðaltalsútreikningum var meðaltími í komu á
stofu og símaviðtöl 16.1 og 9.9 mínútur. Flestir læknar notuðu
þó 10-15 mínútur í komu á stofu og 3 - 8 mínútur í símaviðtöl
(sbr 8.6). Erfiðara er að meta þann tíma sem fór í vitjanir
til sjúklinga vegna mismunandi aðstæðna og fjarlægða og auk
þess voru vitjanir tiltölulega fáar.
Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að meðalvinnutími lækna
við almenna heilsugæslu úti á landsbyggðinni var 50.2 tímar
á viku. Meira en helmingur þessara lækna starfaði jafnframt
á sjúkrahúsum eða öðrum sjúkrastofnunum sem flestar voru rekn-
ar í tengslum við heilsugæslu. Verulegur hluti lækna á rann-
sóknarsvæðinu vinnur líklega 60 til 70 tíma að meðaltali á
viku. Á stöðum þar sem læknar eru einir bætist síðan við
stöðug gegningarskylda en annars staðar er alltaf einn læknir
á bakvakt.
5.5 Annað heilbrigðisstarfsfólk en læknar
Hjúkrunarfræðingar, Ijósmæður, meinatæknar og annað heilbrigð-
isfólk við heilsugæslu á rannsóknarsvæðinu afgreiddi án af-
skipta læknis 356 af 4978 (7.2%) samskiptum við heilsugæsluna
á meðan rannsókn stóð yfir. Þessi tegund afgreiðslu var þó
aðeins bundin við fáein svæði, mest við svæði nr. 19 og 24,
en þar var líka mest um að ekki væru tilgreindar meginástæður
samskipta. Þátttaka þessa fólks veldur jafnframt nokkurri
óvissu í áætlun á tíma til einstakra læknisverka.
Fram kom að læknar álitu að fyrrnefnt heilbrigðisstarfsfólk
hefði án aðstoðar þeirra getað séð um 244 tilfelli til viðbót-
ar, svo með hliðsjón af þessari könnun gæti það séð um 12.1%
samskipta við heilsugæsluna án aðstoðar lækna. Hins vegar
tóku ekki allir læknar afstöðu til viðkomandi spurningar.