Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1974, Síða 36

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1974, Síða 36
36 4.0% að slepptum tllvísunum á tannlækna) á landsbyggðinni og 18.5% í Reykjavík. Tíðni tilvísana reyndist mest í ná- grenni aðalþéttbýlissvæða landsins, Reykjavíkur og Akureyr- ar. ástæðurnar eru sennilega þær að almenn heilsugæsla úti á landi er mun víðtækari en í Reykjavík, sérfræðiþjónusta utan sjúkrahúsa er nær eingöngu veitt í Reykjavík og á Akur- eyri, og víst er að margir læknar úti á landi veigra sér við að senda fólk til sérfræðings nema brýna nauðsyn beri til. Einnig má búast við því að hið gífurlega álag á heimilislækna í Reykjavík leiði til aukinna tilvísana á sérfræðinga. Með fjölgun heimilislækna eða heilsugæslulækna á höfuðborgarsvæð- inu má því hugsanlega fækka tilvísunum til sérfræðinga. Meðalvinnutími lækna er um 50 tímar á viku. Auk þess starfar meira en helmingur lækna við ýmsar sjúkrastofnanir samhliða almennri heilsugæslu, þannig að meðalvinnutími þeirra er í raun lengri. Ef athugaður er sá tími er fer í einstök læknis- verk, kemur í ljós að um 73% lækna nota innan við 20 mínútur að meðaltali vegna hverrar komu á stofu og um 88% innan við 30 mínútur. í hvert símaviðtal nota 52% læknar innan við 10 mínútur að meðaltali og um 70% nota skemmri tíma en 15 mínútur. Að því er varðar rannsóknaraðferðina' þá er form samskiptaseð- ils einfalt og útfylling hvers seðils tekur stutta stund. Akvörðun meginástæðu samskipta krefst hins vegar nokkurrar þekkingar á hinni alþjóðlegu sjúkdóma- og dánarmeinaskrá. Hún getur líka verið nokkrum vafa undirorpin þegar velja þarf milli tveggja eða fleiri ástæðna sem virðast jafngildar. A samskiptaseðil er ekki skráð nafn og fæðingarnúmer eða nafn- númer sjúklings og því er til dæmis ekki mögulegt að athuga hve margir leituðu oftar en einu sinni læknis meðan könnunin stóð yfir. Við frekari rannsóknir kemur til álita að nota einn seðil fyrir hverja einstaka ástæðu samskipta að mati læknis og gera ráð fyrir skráningu sjúkdómsgreiningar og nákvæmari ein- staklingsauðkennum. Eftir miðtölum þess tíma sem fór í hverja samskiptategund í könnuninni, er gert ráð fyrir 16.1 mínútu að jafnaði í mót- töku á stofu, 10.5 mínútur í símaviðtal og 60.0 mínútum í

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.