Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1974, Blaðsíða 37
37
vitjun. Ennfremur er með hliðsjón af miðtölum hlutfallslegr-
ar skiptingar samskiptategunda gert ráð fyrir að 66% samskipta
séu komur á stofu, 29% símaviðtöl og 5% vitjanir. ótilgreind-
um tegundum samskipta hefur þá verið skipt jafnt á aðalflokk-
ana. (Sjá töflu 8.5.B, bls. 53.)
Heilsugæslustöðvar eru yfirleitt opnar 3-4 tíma á dag vegna
reglulegrar móttöku á stofu 5 daga vikunnar eða alls 15-20
tíma á viku. Gera má ráð fyrir um 5-6 tímum að meðaltali í
símaviðtöl og 5 - 6 tímum í vitjanir þegar vinnutíminn er sund-
urgreindur í sömu hlutföllum og koma fram í könnuninni. 1
skýrslugerð, embættisstörf og annað eru áætlaðir 10 tímar að
meðaltali á viku og er þá miðað við 40 tíma vinnuviku hjá læknum.
1 samræmi við þessar forsendur og niðurstöður er reiknaður
út sá íbúafjöldi, sem læknir á að geta þjónað miðað við 40
tíma vinnuviku á eftirfarandi hátt:
n.p (s^t^+s2t2+s3t3) + t4 = T (í mín_ ega klst)x)
Miðað við árlega læknissókn 3.2 -5.8 samskipti á íbúa, þ.e.
gildin p = 3.2/52 og p = 5.8/52, getur læknir á heilsugæslustöð
þjónað 968 til 1754 íbúum og miðað við miðtöluna 4.5 samskipti
á íbúa um 1248 íbúum. Til einföldunar og hagræðingar er
miðað við tölurnar 900 til 1700 íbúa á einn lækni og 1300 að
meðaltali. A þessum grundvelli er síðan sett fram áætlun í
töflu 17 um þörf fyrir lækna á landsbyggðinni miðað við íbúa-
tölu og í töflu 18 er sundurliðun á vikulegum starfstíma læknis.
Hér að framan er sérstaklega gerð grein fyrir vissum tegundum
úrlausna: Rannsókn á stofu (28), sent í rannsókn (29), til-
vísun (30) og innlagnarumsókn (31) . í töflum 19 og ,20 er áætluð
tíðni rannsókna, tilvísana og innlagnarumsókna á 2600 manna svæði
samkvæmt könnuninni.
x)
n
P
s
fjöldi íbúa. t^
fjöldi samskipta á
íbúa á viku.
hlutfall samskiptateg.
meðaltími í komu á stofu.
meðaltími í símaviðtal. T
meðaltími í vitjun.
: tími í skýrslugerð, embætt
isstörf og annað. 1 t4 er
talinn sá tími er liður á
milli einstakra verkefna á
vinnutíma auk matar- og
kaffitíma.
: heildarvinnutími.