Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2022, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.12.2022, Qupperneq 4
Ég er viss um að Íslend- ingar myndu líka hafa áhuga á flugi til Pól- lands. Andrzej Bednarczyk, stofnandi undir- skriftasöfnunar kristinnhaukur@frettabladid.is SKOTLAND O f ford l áva r ðu r, aðstoðarráðherra Skotlandsmála í ríkisstjórn Bretlands, sakaði nýlega landa sinn Angus Robertson, ráð- herra stjórnarskrár, menningar og ytri mála í landsstjórn Skotlands, um græsku á fundi með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Báðir komu þeir til Íslands á ráð- stefnuna Hringborð norðurslóða, Arctic Circle, og báðir áttu þeir tví- hliða fundi með Katrínu. Offord lávarður situr fyrir Íhalds- f lokkinn en Robertson Skoska þjóðarflokkinn. Samkvæmt breska blaðinu The Telegraph sagði Offord að Robert- son hefði „vælt um vesalings fólkið í Skotlandi“ sem væri „rænt frelsi sínu“. Að ræða innanríkismál og stjórnarskrána sé ekki heimilt. Fjölmiðlar hafa áður f jallað um utanlandsferðir Robertson, sem eru mýmargar og hafa reynst kostnaðarsamar. Það fer öfugt ofan í andstæðinga hans að Robertson Hafi nýtt fundinn með Katrínu á ólöglegan hátt Robertson er sakaður um að hafa vælt í Katrínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY skuli nota hvert tækifæri til þess að tala fyrir sjálfstæði en ekki þeim málaflokkum sem hann á að stýra fyrir landstjórnina. Einnig á Robertson að hafa ýkt titla sína, svo sem í ferð til Þýska- lands nýlega. „Ég var í Berlín og þar sögðu þingmenn að þeir væru að fara að hitta Angus Robertson utanríkis- ráðherra Skotlands,“ sagði Foulkes lávarður, í Verkamannaflokknum. „Breska ríkisstjórnin verður að finna leið til að stoppa þetta.“ n Flugleið á milli Akureyrar og Póllands myndi nýtast bæði innflytjendum, fjölskyldum þeirra og Íslendingum sem vilja ferðast til Póllands. Þetta segir stofnandi undirskrifta- söfnunar sem hefur verið vel tekið í. kristinnhaukur@frettabladid.is NORÐURLAND Um 200 undirskriftir hafa safnast á einni viku fyrir því að komið verði á beinu flugi á milli Akureyrar og Póllands. Það myndi liðka mikið fyrir innflytjendum frá Póllandi og nálægum löndum sem búa á Norður- og Austurlandi og myndi nýtast Íslendingum sjálfum vel. „Þetta hefur komið upp í sam- tölum Pólverja í langan tíma,“ segir Andrzej Bednarczyk, einn af þeim sem standa að undirskriftasöfnun- inni. „Sérstaklega á veturna, þegar ferðalög til Kef lavíkur geta verið erfið út af veðri. Þetta myndi líka henta mjög vel á sumrin þegar fólk er að ferðast vegna vinnu eða fría.“ Mjög reglulega er f logið milli Íslands og Póllands um Keflavíkur- f lugvöll, svo sem til höfuðborgar- innar Varsjár, Gdansk við norður- ströndina og Krakár í suðri. Það er hins vegar ferðalagið til Reykjavíkur sem getur reynst Pólverjum á lands- byggðinni langt og erfitt. Pólverjar eru langfjölmennasti innf lytjendahópur landsins, alls tæplega 21 þúsund manns. Andr- zej og félagar telja að flugleggurinn myndi einnig nýtast Litáum, Lett- um, Tékkum, Slóvökum, Úkraínu- mönnum og f leiri innf lytjenda- hópum norðan- og austanlands. Andrzej segir að algengt sé að missa tvo daga aðeins í ferðalagið til og frá Keflavík. Leiðin taki sérstak- lega langan tíma þegar farið sé með rútu. Þegar lent er í Póllandi tekur svo einnig oft við annað langt ferða- lag innanlands. Þá er einnig mikið af innflytjendum, sem hafa sest að til langs tíma á Íslandi, sem fá ætt- ingja og vini í heimsókn. „Ég held að það myndi vera mjög mikill áhugi á þessari flugleið,“ segir hann. Utanlandsferðir hafa stóraukist á Akureyri eftir að Niceair tók til starfa. Flugfélagið flýgur til Kaup- mannahafnar, Düsseldorf, Alicante og Tenerife. Þá er frekari uppbygg- ing Akureyrarf lugvallar á teikni- borði stjórnvalda og gjaldtaka er áætluð af f lugmiðum til að f lýta henni. Það er ekki aðeins fólk búsett á Akureyri sem hefur skrifað undir listann. Heldur einnig á Reyðarfirði, Dalvík, Húsavík og fleiri stöðum. Aðspurður til hvaða f lugfélaga Andrzej horfi helst nefnir hann lág- gjaldaflugfélögin. Meðal flugfélaga sem fljúga frá Keflavík til Póllands er ungverska lággjaldaflugfélagið Wizz Air. Ef Niceair eða Play myndu bjóða hagstætt verð yrði það mjög gott. „Ég er viss um að Íslendingar myndu líka hafa áhuga á f lugi til Póllands,“ segir Andrzej. Nefnir hann að ýmis góð heilbrigðisþjón- usta sé í boði á góðu verði í Póllandi sem og að afar hagstætt sé að versla þar. „Fyrir utan möguleikann á að verja fríinu í fallegum héruðum Pól- lands,“ bætir hann við. n Vilja flug frá Póllandi til Akureyrar Mikil uppbygging er áætluð á Akureyrarflugvelli og utanlandsferðum hefur fjölgað. MYND/VÖLUNDUR JÓNSSON olafur@frettabladid.is HLUTABRÉFAMARKAÐUR Hluta- bréf Alvotech fluttust í gær af First North markaði Nasdaq á Íslandi yfir á Aðalmarkaðinn. Höfðu bréfin hækkað um ríflega 20 prósent við lokun. Það var stjórnarformaður hins nýskráða félags, Róbert Wessman, sem hringdi til lokunar markaðar- ins. Í viðtali við Fréttavaktina á Hringbraut í gær sagði Róbert markaðssókn Alvotech ganga vel beggja vegna Atlantsála. Aðspurður sagði hann allt vera á áætlun hjá fyrirtækinu. Þegar upp var lagt 2013 hefði verið ráðgert að koma fyrsta líftæknihliðstæðulyfinu á markað á þessu ári og það hefði gengið eftir. Einnig hefði átt að kosta einum milljarði dala til að komast á þennan stað. Það hefði sömuleiðis gengið eftir. Í ár hefur Alvotech tryggt mikil- væga fjármögnun, auk þess sem skráningin á markað og flutningur- inn á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi auðveldar því aðgengi að fjármagni. Enn er tap á rekstri Alvotech en áætlað að með aukinni markaðs- sókn aukist tekjur svo að eftir mitt næsta ár verði hagnaður af rekstr- inum. n Alvotech ráðgerir hagnað á næsta ári Róbert Wessman kristinnpall@frettabladid.is EVRÓPA Aðildarríki Schengen-sam- starfsins samþykktu í gær umsókn Króatíu. Gerhard Karner, innan- ríkisráðherra Austurríkis, kom í veg fyrir að umsókn Búlgaríu og Rúm- eníu yrði samþykkt. Með því verður Króatía hluti af Schengen um ára- mótin á sama tíma og Króatar ganga inn í Evrópusambandið. Ríki þurfa samþykki allra með- lima Schengen-ríkjanna til að fá aðild að samstarfinu og var fulltrúi Austurríkis mótfallinn inngöngu Rúmeníu og Búlgaríu. Þá var Holland mótfallið inngöngu Búlgaríu. n Króatía samþykkt inn í Schengen 4 Fréttir 9. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.