Fréttablaðið - 09.12.2022, Side 14

Fréttablaðið - 09.12.2022, Side 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Gjafasettin eru með mynd­ skreytingu sem Dagný Reykjalín hjá Bleki teiknaði af helstu kenni­ leitum Siglufjarðar. Boðið er upp á sjö mismunandi gjafasett þar sem mismunandi vörur eru í fókus. Til dæmis er ein askjan svört en hún er fyrir andlit og inniheldur virkustu vöru Chito­ Care í baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar, ChitoCare beauty Anti­Aging Repair Serum, en klínískar prófanir sýna að það dregur úr fínum línum og djúpum hrukkum. Síðan fylgir ChitoCare beauty Hand Cream með sem kaupauki í þessu fallega setti. Rauðu gjafasettin innihalda vörur sem henta vel fyrir líkamann en þá er ýmist í fókus sturtusápa, líkamskrem eða skrúbbur. Virka innihaldsefnið í öllum ChitoCare vörunum er kítósan, náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína og myndar filmu. Það dregur úr roða og pirringi, við­ heldur raka og gefur húðinni silki­ mjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif og öflug vernd, það stuðlar að nátt­ úrulegu viðgerðarferli húðarinnar. ChitoCare hentar öllum húð­ gerðum, einnig viðkvæmri og exemkenndri húð. Vörurnar frá ChitoCare hafa klíníska sannaða virkni, minnka hrukkur og fínar línur og auka húðraka. Glæsilegar gjafir með kaupauka í hverri öskju Fram að jólum mun ChitoCare bjóða viðskiptavinum sínum sem kaupa gjafaöskju upp á inn­ pökkun þeim að kostnaðarlausu í umhverfisvænan gjafapappír. Það eina sem þarf að gera er að setja kort á gjöfina og hún er tilbúin undir jólatréð. Herdís Eggertsdóttir er sölustjóri hjá ChitoCare á Íslandi en Primex Iceland sem er með höfuðstöðvar sínar á Siglufirði setti á markað vörulínu undir nafninu ChitoCare Beauty. „Vörurnar okkar hafa slegið í Jólagjafasettin frá ChitoCare eru glæsileg. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Það er mikið úrval af flottum gjafaöskjum fyrir líkamann. ChitoCare mun pakka gjafaöskjunum inn í gjafapappír fyrir við- skiptavini sína til jóla. Vörurnar okkar hafa slegið í gegn og það hefur verið ótrú- lega gaman að sjá hversu vel landsmenn hafa tekið í þær. Herdís Eggertsdóttir gegn og það hefur verið ótrúlega gaman að sjá hversu vel lands­ menn hafa tekið í þær. Vörurnar komu á markað árið 2018. Við byrjuðum fyrst með tvær vörur en erum búin að bæta vel í línuna og erum núna að bjóða upp á þessi flottu jólalegu gjafasett í fyrsta sinn. Þetta eru gjafasett sem er gaman að gefa. Þar sem fyrirtækið er staðsett á Siglufirði fannst okkur við hæfi að fá Dagnýju til að mynd­ skreyta jólasettin. Þetta er svona óður til Siglufjarðar,“ segir Herdís. Allir geta notað vörurnar „Við settum einnig á markað Chito Care sturtusápu núna í nóvember. Þetta er lífvirk sturtu­ sápa hlaðin náttúrulegum inni­ haldsefnum sem hreinsa, fríska og endurnæra húðina. Hún inniheld­ ur andoxunarefni og samsetningu virkra innihaldsefna úr hafinu og íslensku jarðhitavatni sem vernda húðina.“ Herdís segir að vörurnar frá Chito Care henti öllum. „Það geta allir notað vörurnar, konur og menn, og ilmurinn er alveg ótrú­ lega léttur og mildur sem hentar svo mörgum. Vissulega er mark­ hópurinn okkar aðallega konur en við bendum á að karlarnir mega svo sannarlega nota ChitoCare.“ n Gjafasettin eru fáanleg í öllum helstu apótekum landsins, versl- unum Hagkaups, Beautybox, Fríhöfn, Vorhúsi og í netverslun á chitocare.is Gjafasett sem inniheldur nýja vöru ChitoCare, Shower gel, ásamt Body lotion og Hand cream. 2 kynningarblað A L LT 9. desember 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.