Fréttablaðið - 09.12.2022, Síða 16
Jólaplatan Kósý jól með unglinga
hljómsveitinni Kósý hefur ekki
verið fáanleg í allmörg ár. Nú
nýverið kom Úlfur Eldjárn, einn
stofnmeðlima, plötunni á streym
isveitur og rennur allur streymis
ágóði í Minningarsjóð Kristjáns
Eldjárn.
Meðlimir sveitarinnar voru í
menntaskóla þegar platan var gerð
en hafa þeir náð langt í listheim
inum síðan. Tveir hafa helgað sig
orgelinu. Úlfur Eldjárn er altmug
ligtmaður í tónlist og hefur ef til
vill mest spilað með Apparat Organ
Quartet; Magnús Ragnarsson er svo
organisti í Langholtskirkju. Hinir
tveir í sveitinni eru þeir Markús
Þór Andrésson sýningarstjóri og
Ragnar Kjartansson myndlistar
maður.
Hápunktar plötunnar eru heil
margir. Jól á Hawaii er stórkostlegur
útúrsnúningur á Hátíð í bæ, Heiða
í Unun er gestur sem jólastelpan og
Þúsund sinnum segðu já þar sem
hljómsveitarmeðlimir reyna að
verða við þeirri áskorun.
Kósý jól er aðgengileg á Spot
ify og þau sem ekki hafa heyrt
plötunnar getið áður eru hvött til
að hefja hlustun með opnum hug. n
Bingópíla/pílubingó
Bullseye, Snorrabraut 37
Á fimmtudag í næstu viku
verður pílubingó á pílubarnum
Bullseye.
Pílubingó er heimatilbúin
uppfinning sem staðurinn hefur
verið að þróa með litlum hópum
í haust en núna er í fyrsta sinn
boðið upp á pílubingó fyrir gesti
og gangandi.
En hvernig gengur bingópílan
fyrir sig? „Vá, sko, stórt er spurt.
Bingópíla er eins og venjulegt
bingó … nema að í stað bingó
kúlanna kasta gestir í píluspjald
og þannig fáum við tölurnar,“
segir Sveinn Skorri Höskuldsson
hjá Bullseye. „Fólk úr sal kemur
á svið og kastar þremur pílum og
reynir því að kasta í sínar tölur.
Það gengur misvel.“ Bingógestir
geta því haft bein áhrif á hvaða
tölur koma upp. „Við höfum gert
þetta tvisvar áður, með minni
hópum og þetta er rosalega
mikill stemmari.“
Vinningarnir eru allt frá gjafa
bréfum á Bullseye til utanlands
ferða.
Pílan virðist vera orðin hluti
af samkvæmislífi borgarbúa á
mjög stuttum tíma. „Fólk er að
píla sig í gang fyrir jólahlaðborð
in eða koma með vinnuvinun
um. Svo er heimsmeistaramótið
í pílu í desember, og þá kemur
oft kippur í píluvöðva landans,“
segir Skorri að lokum. n
Meðlimir sveitar
innar voru í
menntaskóla þegar
platan var gerð en hafa
þeir náð langt í listheim
inum síðan.
Hann fékk
kókoshnetu en
hún fékk mangó
n Nú er lag
Sörurnar langvinsælustu jólasmákökurnar
n Uppskriftin
9.
des
10.
des
11.
des Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
Hvað er að gerast um helgina?
n Jólaspuni með Eldklárum og
eftirsóttum kl. 17.30
Tjarnarbíó
Eldklárar og eftirsóttar er sjálf-
stæður hópur kvenkyns grínista
sem sérhæfir sig í spuna. Þetta
samansafn gáfuðustu, heitustu
og fyndnustu kvenna landsins
hefur það eitt að markmiði að
kitla hláturtaugar áhorfenda.
n ApocalypsticK: Óheilög jól
kl. 20.00
Gaukurinn
Dragkabarett sem snýr upp á
jólin á hressandi hátt.
n Fimm mínútur í jól kl. 20.30
Húsavíkurkirkja
Valdimar Guðmundsson syngur
hugljúf jólalög í nýjum útsetn-
ingum með hljómsveit sinni,
Lón. Sérstakur gestur: Rakel.
n Una Stef syngur jólalög
Mariuh Carey kl. 21.00
Kirkja Óháða safnaðarins
Fönkdívan Una Stef tekst á við
vinsælustu jólaplötu sögunnar,
Merry Christmas með Mariuh
Carey, ásamt Óháða kórnum,
kór FÍH, hljómsveit og gesta-
söngvurum.
n Reykjavík JÓLAkabarett
kl. 22.00
Þjóðleikhúskjallarinn
Gillagaur sýnir sexí sirkusatriði,
Bobbie Michelle rænir jóla-
sveininum, ástralska sirkus-
dragdrottningin Enter Serenity
stekkur í jólasplitt og sitthvað
fleira. Bannað börnum.
n Krakkaveldi býður
jólaklippingar kl. 13.00
Norræna húsið
Krakkaveldi býður gestum í
jólaklippingu. Ókeypis klipp-
ingar framkvæmdar af reyndum
klippurum á aldrinum 7-12 ára!
n Barnabókafjör Forlagsins
kl. 14.00
Fiskislóð 39
Stjörnu-Sævar sýnir loftsteina,
Margrét Tryggvadóttir kynnir
nýjustu bók sína og Önnu C.
Leplar, Leitin að Lúru, og Anna
teiknar fyrir krakkana, Arndís
Þórarinsdóttir les upp úr Koll-
hnís, Brian Pilkington teiknar
fyrir krakkana, Gunnar Theodór
Eggertsson segir frá ævintýra-
heiminum í Furðufjalli, Birgitta
Haukdal segir frá Láru og Ljónsa
og Gunnar Helgason les upp úr
Bannað að ljúga.
n Unglinganámskeið í dragi
kl. 13.00
Kramhúsið
Ástralska sirkusdragdrottningin
Enter Serenity kennir dans,
hreyfitækni, sviðsöryggi og
fleira. Nánari upplýsingar á
Facebook-síðu Kramhússins.
n Jólajóga með Kristínu Bergs
kl. 13.30
Kramhúsið
Gefðu skít í þriðju vaktina og
komdu í jóga. Kanilte í boði.
n Desembermarkaður Q
kl. 12.00
Bókasamlaginu, Skipholti 19
Listamarkaður Félags hinsegin
stúdenta þar sem alls konar hin-
segin listafólk verður á staðnum
með listaverk til sölu.
n Bjórlesk kl. 21.00
Ölverk, Hveragerði
Jólahlaðborð fullorðinsskemmti-
atriða. Fram koma: Dansmærin
Bobbie Michelle, sirkusfolinn
Dan the Man, búrleskdrottn-
ingin Margrét Maack og ástralska
sirkusdragdrottningin Enter
Serenity.
n Búkolla, brúðusýning kl. 11.00
og 15.00
Handbendi brúðuleikhús,
Hvammstanga
Þegar kýr fjölskyldunnar týnist
er það ungur drengur sem þarf
að finna hana. Sagan fer með
okkur um vindblásna dali, upp
til hæstu fjalla, alla leið til jaðars
landsins, og inn í dýpstu hellana
þar sem ógnvænlegar verur lúra
og bíða þess að nýta sér þinn
dýpsta ótta. Rata Búkolla og
drengurinn hennar heim?
n Heima um jólin, auka
tónleikar, kl. 17.00
Menningarhúsið Hof, Akureyri
Friðrik Ómar tekur á móti
einstökum jólastjörnum sem
syngja jólin inn ásamt hljóm-
sveit Rigg viðburða, strengjum
og raddsveit undir stjórn Ing-
vars Alfreðssonar. Uppselt er
á ferna tónleika á föstudag og
laugardag en örfáir miðar eru til
á aukatónleikana í dag kl. 17.00.
n Söngfjelagið: Undir friðarsól
kl. 17.00
Langholtskirkja
Óhefðbundin og glæsileg
veisla, bæði fyrir eyru og augu.
Söngfjelagið leggur metnað
sinn í að kynna tónlist frá
ýmsum heimshornum, allt frá
Suður-Ameríku til Balkanskaga
og syngja hana á frummálinu
með aðstoð innlendra og er-
lendra listamanna.
n Jólatónleikar Guðrúnar
Árnýjar kl. 17.00 og 20.00
Víðistaðakirkja
Hátíðleg stund þar sem léttleik-
inn er í fyrirrúmi.
friminutur@frettabladid.is
Sörurnar er þær jólasmákökur sem
njóta mestrar hylli landsmanna,
þær eru bæði ljúffengar og fal
legar á diski. Sagan segir að hinar
ljúffengu sörur séu kenndar við
frönsku leikkonuna Söruh Bern
hardt (1844–1923). Uppruni þeirra
er sagður danskur en heiðurinn
af uppskriftinni á danski köku
gerðarmeistarinn Johannes Steen,
sem bjó til fyrstu sörurnar þegar
leikkonan heimsótti Kaupmanna
höfn í tilefni af útgáfu æviminn
inga sinna á dönsku árið 1911.
Sarah Bernhardt var ein fyrsta
leikkonan sem öðlaðist frægð á
heimsvísu. Fyrst og fremst var
hún sviðsleikkona í Frakklandi en
ferðaðist líka víða um heim með
gestaleiksýningar, meðal annars
um öll Bandaríkin, til Rússlands,
Bretlands, Ítalíu, Grikklands,
Ungverjalands, Sviss, Danmerkur,
Belgíu og Hollands. Hún tók að sér
margvísleg hlutverk, einnig karl
hlutverk, og árið 1899 fór hún með
hlutverk Hamlets í samnefndu
verki Shakespeares.
Vert er að geta þess að það
er munur á sörunum eftir því
hvort þær eru gerðar á danskan
eða íslenskan máta. Samkvæmt
íslenskum hefðum eins og upp
skriftir bera með sér er smjör
meginuppstaðan í kreminu en í
þeim dönsku er það rjómi. Þá er
botninn gerður úr möndlum sam
kvæmt íslenskum uppskriftum en
í þeim dönsku eru það heslihnetu
kjarnar sem prýða botninn.
Hér kemur dásamleg uppskrift
að sörum með íslensku ívafi sem
steinliggur og gleður alla söru
aðdáendur enda synsamlega góð.
Sörur
Botn
3 eggjahvítur
3 ½ dl flórsykur (sigtaður)
200 g möndlur (flögur)
Krem
¾ dl síróp
3 eggjarauður
100 lint smjör (við stofuhita)
2 msk. kakó
Hjúpur
250 g rjómasúkkulaði, brætt
Hitið ofninn í 180°C. Byrjið á
því að stíf þeytta eggjahvíturnar
alveg. Bætið svo við f lórsykri var
lega saman við. Möndlum hrært
varlega saman við með sleif. Setjið
deigið í sprautupoka eða notið
teskeiðar og setjið á ofnplötu/r
klædda/r bökunarpappír. Bakið
við 180°C hita í 1012 mínútur (án
blásturs).
Næst er það kremið. Byrjið
á því að hræra eggjarauðurnar
vel, hellið mjórri bunu af sírópi í
eggjablönduna meðan hrært er.
Svo að lokum er smjöri og kakói
bætt út í.
Látið kremið kólna í ísskáp í 12
klst. áður en það er sett á kök
urnar. Má líka setja í frysti í um
það bil 30 mínútur. Setjið síðan
kremið í sprautupoka og sprautið
því á sörubotnana. Notið skeið
til að slétta úr kreminu þannig að
það þynnist við kantana. Kælið
kökurnar vel, helst í frysti, áður en
þær eru hjúpaðar.
Loks er það hjúpurinn. Skerið
súkkulaðið í bita og bræðið yfir
vatnsbaði. Látið kólna aðeins áður
en kremhlutanum á sörunum
er dýft ofan í. Best er að geyma
sörurnar í frysti og taka út 15
mínútum áður bera á þær fram. n
Bingópíla er eins
og venjulegt
bingó … nema að í stað
bingókúlanna kasta
gestir í píluspjald og
þannig fáum við
tölurnar.
4 kynningarblað A L LT 9. desember 2022 FÖSTUDAGUR