Fréttablaðið - 09.12.2022, Page 18

Fréttablaðið - 09.12.2022, Page 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Margrét Jóna Guðbergsdóttir, vörustjóri hjá Pennanum Eymunds son, hefur starfað í fyrirtækinu í rúm 30 ár og kynnst mörgum sviðum þess. Hún segir að þótt alltaf séu einhverjar breytingar á milli ára þá breytist jólaverslunin ekki mikið. Íslend- ingar eru mikil bókaþjóð og bækur þess vegna alltaf vinsælar til gjafa. „Útgáfan í ár er mjög fjölbreytt að vanda, skáldverk, ljóð, ævisögur, matreiðsla og handbækur ýmis konar. Handavinnubækur eru til dæmis mjög vinsælar, sérstaklega prjónabækur. Síðan er mjög blóm- leg barna- og unglingabókaútgáfa,“ segir Margrét. Játning trónir á toppnum Penninn Eymundsson er með mjög vítt svið þegar kemur að gjafa- vöru og allir ættu að geta fundið eitthvað í jólapakkann. Verslunin gefur út sinn eigin metsölulista og margir kynna sér hann áður en þeir versla. „Listinn hefur áhrif á mjög marga. Játning eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er mjög vinsæl og er nú í fyrsta sæti á listan- um, þriðju vikuna í röð. Bókin Reykjavík eftir Ragnar Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur kemur þar á eftir. Hún kom út í október og hefur gengið mjög vel alveg frá útgáfu. Margir eru forvitnir um þá bók,“ segir Margrét og bendir á að Kyrrþey eftir Arnald og Eden eftir Auði Övu séu líka ofarlega á listanum. „Ein bók hefur komið töluvert á óvart en hún seldist upp. Það er bókin Keltar eftir Þorvald Frið- riksson. Í bókinni er boðið upp á nýja sýn á Íslandssöguna, innsýn í það sem hefur að miklu leyti verið hulið: hina miklu hlutdeild Kelta í íslenskri menningarsögu. Ég held að útgefandinn hafi ekki verið viðbúinn þessum vinsældum og bókin seldist upp en ný prentun er nú komin í verslanir Pennans Eymundsson. Það er stundum þannig að einhver bók verður vinsæl sem ekki var endilega búist við,“ segir Margrét. „Metsölulist- anum er stillt upp á áberandi stað í verslunum okkar og auðvelt að skoða hann og spekúlera hvað sé vinsælt,“ segir hún. Nýr listi kemur út í hverri viku. Bækur og spil Margrét segir að jólasalan sé hafin af fullum þunga. „Það var mjög ánægjulegt að sjá frétt um að bók og spil væru jólagjafir ársins sam- kvæmt því sem Rannsóknarsetur verslunarinnar finnur út. Við heyr- um að fólk hefur tekið eftir þessu í fréttum en það fær bæði bækur og spil hjá okkur í miklu úrvali auk annarra gjafa. Við seljum bækur frá öllum útgefendum, jafnt stærri sem minni. Gjafavaran er fjölbreytt. Nýlega tókum við danska hönnunar- merkið Hay til sölu en í þeirri línu eru mjög fallegar gjafavörur. Svo er tónlistin ekki alveg gleymd því við seljum mikið af vínyl-plötum fyrir jólin. Borðspil og púsluspil eru alltaf vinsælar gjafir líka. Penn- inn Eymundsson er sömuleiðis með mikið úrval af leikföngum og barnabókum. Vinsælasta bókin í þeim flokki þessa viku er bók Gunnars Helgasonar, Bannað að ljúga. David Walliams er einnig alltaf eftirsóttur og alveg sér- staklega núna eftir að hann kom hingað til lands í heimsókn og fyllti verslunina í Smáralind. Það hafa komið út margar bækur eftir hann á íslensku á undanförnum árum og þær njóta alltaf vinsælda. Bjarni Fritzson á tvær bækur á barnabókalistanum, Orra óstöðv- andi og Sölku. Birgitta Haukdal selst vel allt árið en hún höfðar til yngsta hópsins. Núna er hún með bók sem jafnframt er spiladós með jólalögum og textum.“ Trönur og penslar „Hjá Pennanum Eymundsson færðu allt utan um pakkann, jóla- pappír, bönd og poka og jólakort. Myndlistarvörur hafa einnig verið vinsælar gjafir, jafnt trönur, penslar og litir auk blindramma. Stærsta deildin okkar með slíkar vörur er í Hallarmúla, bæði fyrir listamenn og byrjendur.“ Margrét bendir á að ýmis konar töskur og þar á meðal ferðatöskur hafa verið vinsælar til gjafa eða eigin nota en Penninn Eymunds- son býður mikið úrval af þeim og margar stærðir. Þegar Margrét er spurð hvort það sé ekki brjálað að gera í vinnunni á þessum árstíma svarar hún að það sé mjög gaman að vinna í Pennan- um Eymundsson fyrir jólin. „Þótt það sé mikið álag þá er þetta ótrú- lega skemmtilegt starf. Ég fæ alltaf smá fiðring þegar jólavertíðin fer í gang og finnst hún spennandi.“ Á undanförnum árum hefur aukist að erlendir ferðamenn komi í verslanir Pennans Eymundsson og kaupi bækur. „Þetta eru bæði ferðabækur um Ísland, Íslendinga- sögurnar og skáldsögur sem hafa verið þýddar yfir á erlend tungu- mál. Langvinsælust er bókin Sjálf- stætt fólk eftir Halldór Laxness. Síðan er það Arnaldur og Yrsa auk nokkurra annarra. Þá get ég nefnt að bókin um íslensku jólasveinana og jólasveinastytturnar eftir Brian Pilkington vekja alltaf áhuga en erlendir ferðamenn eru mjög forvitnir um íslenska jólasveina- hefð,“ segir Margrét og bætir við að Íslendingar kaupi líka mikið af slíkum bókum til gjafa fyrir erlenda vini. „Penninn Eymunds- son er jafnframt með fjölbreytt úrval af erlendum bókum og tíma- ritum fyrir alla.“ n Opnunartími verslananna lengist í desember, upplýsingar um það eru á penninn.is. Þess má geta að jólaopnun í miðbænum og verslunarmiðstöðvunum hefst 15. desember og þá verður opið til 22 öll kvöld. Jólabókaflóðið er fjölbreytt að þessu sinni og allir helstu rithöfundar landsins eru með bækur um þessi jól. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Játning eftir Ólaf Jóhann situr efst á metsölulista Pennans Eymundsson og Reykjavík eftir Ragnar Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur kemur þar næst. 1 Játning Ólafur Jóhann Ólafsson 2 Reykjavík glæpasaga Ragnar Jónasson/Katrín Jakobsdóttir 3 Eden Auður Ava Ólafsdóttir 4 Kyrrþey Arnaldur Indriðason 5 Hamingja þessa heims Sigríður Hagalín Björnsdóttir 6 Bannað að ljúga Gunnar Helgason 7 Gættu þinna handa Yrsa Sigurðardóttir 8 Yule lads Brian Pilkington 9 Amma glæpon enn á ferð David Walliams 10 Keltar Þorvaldur Friðriksson ALLAR BÆKUR 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Játning Ólafur Jóhann Ólafsson Reykjavík glæpasaga Ragnar Jónasson/Katrín Jakobsdóttir Eden Auður Ava Ólafsdóttir Kyrrþey Arnaldur Indriðason Hamingja þessa heims Sigríður Hagalín Björnsdóttir Gættu þinna handa Yrsa Sigurðardóttir Guli kafbáturinn Jón Kalman Stefánsson Tól Kristín Eiríksdóttir Saknaðarilmur Elísabet Jökulsdóttir Útsýni Guðrún Eva Mínervudóttir Innbundin skáldverk 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Bannað að ljúga Gunnar Helgason Amma glæpon enn á ferð David Walliams Orri óstöðvandi Draumur Möggu Messi Bjarni Fritzson Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal Salka Tímaflakkið Bjarni Fritzson Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir Jólin koma Jóhannes úr Kötlum Jólasyrpa 2022 Walt Disney Dagbók Kidda klaufa 16 Meistarinn Jeff Kinney Hrekkjavaka með Láru Birgitta Haukdal Barnabækur Útgáfan í ár er mjög fjölbreytt að vanda, skáldverk, ljóð, ævisögur, matreiðsla og handbækur ýmis konar. Handavinnubækur eru til dæmis mjög vinsælar, sérstaklega prjóna- bækur. 2 kynningarblað 9. desember 2022 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.