Fréttablaðið - 09.12.2022, Síða 22

Fréttablaðið - 09.12.2022, Síða 22
Bókin Kóreustríðið eftir rithöfundinn Max Hastings er nú komin út á íslensku í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar á vegum Uglu útgáfu. Áður hefur hann þýtt nokkrar aðrar bækur, meðal annars tvær eftir sama höfund og skrifað sagn- fræðibækur um sjóhernaðinn við Ísland í seinni heimsstyrjöld. Magnús Þór Hafsteinsson býr á Akranesi og er með meistaragráðu í fiskifræði frá norskum háskóla. Hann hefur starfað sem sjómaður, fiskifræðingur, blaðamaður, rit- stjóri, þingmaður, rithöfundur og þýðandi. „Það er ekki einfalt að þýða svona bækur. Þetta er krefjandi vinna en jafnframt gefandi og skemmtileg. Íslenskt mál er ekki ríkt af hernaðarhugtökum enda erum við herlaus þjóð og höfum blessunarlega sloppið við bein stríðsátök að mestu. Ég vona þó að þetta hafi tekist sæmilega hjá mér,“ segir Magnús og kímir. Kóreustríðið og Vítislogar „Kóreustríðið fjallar um mikla og mannskæða styrjöld sem var háð á Kóreuskaganum 1950-1953 og stendur í reynd fram á þennan dag því það var aldrei samið um frið heldur vopnahlé sem heldur enn nær 70 árum síðar. Höfundurinn dregur upp mynd af aðdraganda átakanna, segir sögu þeirra og hvernig menn náðu loks að semja um vopnahlé. Þetta stríð hefur haft áhrif allt fram á þennan dag. Vítislogar er saga seinni heims- styrjaldar í einu bindi. Heilmikið verk sem telur 900 síður. Það er stórkostleg bók þó ég segi sjálfur frá. Hún dregur mjög vel fram mannlega þáttinn við stríð og í henni eru margir ógleymanlegir kaflar. Bókin er afar vel skrifuð. Sterkasti boðskapur hennar er að átök á borð við seinni heimsstyrj- öld eru svo skelfileg að þau mega aldrei gerast aftur. Þess vegna verðum við að kynna okkur þessa sögu, við megum alls ekki gleyma henni.“ Stríð frá mannlegu sjónarhorni Sir Max Hastings er fæddur 1946. Hann er fyrrverandi blaðamaður og ritstjóri stórblaða í Bretlandi og er afar virtur og þekktur í sínu heimalandi. Eftir að hann komst á aldur í blaðamennskunni sneri hann sér að fullu að ritun bóka. Hann hefur skrifað fjölda sagnfræðiverka um styrjaldasögu, endurminninga- bækur og fleira. Auk þessa er hann virkur í breskri samfélags- umræðu og vinsæll fyrirlesari. „Hastings er afar fær sagnfræðingur og góður penni. Hann starfaði lengi sem stríðsfréttamaður í Víetnam, fyrir botni Miðjarðarhafs, í Falk- landseyjastríðinu og víðar. Hann hefur geysimikla þekkingu á því sem hann skrifar um og byggir mikið á eigin viðtölum við þátt- takendur, dagbókafærslum, sendi- bréfum og þess háttar. Hastings eltist ekki mikið við frásagnir stjórnmálamanna eða herforingja, heldur leitar hann frekar í reynslu almennings, bæði hermanna og óbreyttra borgara. Það gerir frásögn hans mjög sterka og oft á tíðum einstaka þar sem mannlegi þátturinn vegur þungt. Efnistökin verða mjög góð því hann býr aug- ljóslega að áratuga reynslu sem blaðamaður,“ segir Magnús. Styrjaldarsagan er lærdómur fyrir yfirvofandi heimsstyrjöld „Ég er mikill áhugamaður um sögu, stjórnmál, bækur og bók- menntir. Mér finnst óskaplega gaman að miðla efni, segja fólki frá einhverju nýju, bæta við þekk- ingarbrunn okkar allra og auka skilning fólks,“ segir Magnús. „Styrjaldasagan snýst bæði um stjórnmál og mannleg örlög. Ég réðst í að þýða þessar bækur vegna þess að ég tel að þær færi afar mikilvæga vitneskju. Þær sýna okkur hvernig venjulegt fólk upp- lifir þann hrylling sem styrjaldir eru. Jafnframt fáum við innsýn í hvaða aðstæður skapa slíka voðaatburði. Nú á tímum þegar við stöndum á barmi stórstyrjaldar í Evrópu sem gæti hæglega magnast upp í þriðju heimsstyrjöldina, þá er afar mikilvægt að við kynnum okkur sögu svona átaka til að reyna að draga af þeim lærdóm. Bæði saga seinni heimsstyrjaldar og Kóreu- stríðsins getur falið í sér vegvísi að lausn í Úkraínustríðinu áður enn verr fer. Sagan getur kennt okkur svo margt og hjálpað okkur að skilja samtíma okkar. Það sem er einstakt við báðar bækur er að sagan er að miklu leyti sögð frá sjónarhóli venjulegs fólks, en það ber ávallt þyngstu byrðarnar í svona átökum. Þetta er allt saga sem við getum lært af og eigum að læra af. Öll sem á annað borð hafa áhuga á samfélagsmálum og sögu ættu að kynna sér efni þessara bóka. Styrj- aldir í nútímanum hafa bein áhrif á lífskjör hér á landi eins og við sjáum með Úkraínustríðið. Sama myndi gerast ef kæmi upp ófriður í Suðaustur-Asíu. Við höfum skyndilega nýtt stríð í Evrópu og spennan er alltaf að magnast á Kóreuskaganum og við Taívan. Það er vel hugsanlegt að þarna brjótist á næstunni út átök. Bók um sögu Kóreustríðsins á því augljóst erindi við samtímann.“ Í höndum lesenda Max Hastings hefur skrifað fleiri bækur sem hverfast um styrjaldir. „Í haust sendi hann frá sér bók um sögu Kúbudeilunnar 1962. Hann hefur líka skrifað merk verk um upphaf fyrri heimsstyrjaldar og sögu Víetnamstríðsins þar sem hann var sjálfur sem stríðsfrétta- ritari. Allt eru þetta bækur sem þyrftu að koma út á íslensku og allar eru þær frábærar. En þetta veltur allt á því að svona bækur seljist. Útgáfa Vítisloga í fyrra gekk sem betur fer mjög vel og sú bók er núna nánast uppseld í harð- spjaldaútgáfu en kom út í kilju á þessu ári. Ef Kóreustríðið selst vel þá langar mig til að þýða fleiri bækur eftir Hastings, því þetta eru mikilvægar bækur, en það er ekk- ert ákveðið enn. Það má segja að þetta sé í höndum lesenda,“ segir Magnús að lokum. n Mannlegt sjónarhorn á hörmungar stríðs Magnús Þór segir styrjaldar- söguna vera eitthvað sem við getum lært af og eigum að læra af. Þess vegna sé mikil- vægt að bækur Hastings komi út á íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Það sem er einstakt við báðar bækur er að sagan er að miklu leyti sögð frá sjónarhóli venjulegs fólks, en það ber ávallt þyngstu byrð- arnar í svona átökum. 6 kynningarblað 9. desember 2022 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.