Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 10
ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.IS INFO@UU.IS
FJÖLL OG STRÖND BALÍ
FJALLABÆRINN ÚBÚD OG STRÖND SANÚR
16.–29. MARS — 14 DAGAR — ÍSLENSK FARARSTJÓRN
gar@frettabladid.is
FJÖLMIÐLAR Hagstofan hefur tekið
saman að tæplega helmingur þess
fjár sem varið var til birtingar aug-
lýsinga innanlands árið 2021 rann
til erlendra aðila.
„Við í ríkisstjórninni erum sam-
mála um það að skoða þurfi allt
fjölmiðlalandslagið og það verður
kynnt í næstu viku hvernig þeirri
vinnu verður háttað,“ segir Lilja
Alfreðsdóttir, menningar- og við-
skiptaráðherra.
Að sögn Lilju kemur meðal ann-
ars til greina að beita skattalegum
hvötum til að fá auglýsendur til að
auglýsa í innlendum miðlum þótt
hafa þurfi í huga að menn auglýsi
þar sem fólkið sé.
„Í öðru lagi settum við styrkja-
kerfið á þótt ég hafi alltaf sagt að
það sé ekki eina og endanlega
lausnin. Í þriðja lagi er spurningin
um hvort RÚV eigi að vera með aug-
lýsingar,“ segir ráðherra og bendir
á að ekki hafi verið pólitísk sátt um
að auglýsingar hyrfu úr RÚV.
„Við þurfum að huga að ákveð-
inni vitundar vakningu,“ segir
Lilja. „Við verðum að hafa öf luga
fjölmiðla á Íslandi, upp á orða-
forða og upp á skilning á málefni
líðandi stundar. Og það þarf að
vera á móðurmálinu. Það er ákaf-
lega mikilvægt að þetta takist.“
Heildargreiðslur vegna aug-
lýsingakaupa á árinu 2021 hér á
Íslandi námu fast að 22 milljörðum
króna, þar af féllu 9,5 milljarðar
króna í hlut útlendra miðla, eða 44
prósent, á móti 12,3 milljörðum til
innlendra miðla sem er um 56 pró-
sent af heildinni. n
Þarf að skoða allt fjölmiðlalandslagið
Íslendingar verða úti um allar
trissur um jólin og áramótin.
Á Tenerife verða þúsundir
Íslendinga og þar verður blásið
til Palla-balls með Páli Óskari
Hjálmtýssyni á gamlárskvöld
og aftur á nýárskvöld.
olafur@frettabladid.is
FERÐALÖG Margir Íslendingar verða
á faraldsfæti yfir jól og áramót enda
er þetta í fyrsta sinn í þrjú ár sem
ekki eru ferða- og samkomutak-
markanir yfir hátíðarnar.
Þórunn Reynisdóttir, forstjóri
Úrvals-Útsýnar, segir að fólk verði
úti um allar trissur. Greinilegt sé
að margir vilji vera í sól og hita á
þessum dimmasta tíma ársins og
mikill fjöldi verði á Kanaríeyjum
og Tenerife. „Svo eru borgarferðir
til Evrópu líka vinsælar.“
Þórunn segir ýmislegt verða
um að vera fyrir Íslendinga sem
dvelja erlendis um jólin og ára-
mótin, bæði sé ýmislegt um að
vera víðast hvar, auk þess sem
mörg hótel standi fyrir viðburðum.
Aðspurð segir hún að utanlands-
ferðir Íslendinga á þessum árstíma
hafi jafnað sig eftir Covid og fjöldi
Íslendinga á faraldsfæti um þessi
jól sé svipaður og 2019.
Mikill straumur Íslendinga er sem
fyrr segir til Kanaríeyja og Tenerife.
Icelandair er með 30 flug til Tener-
ife í desember og Play er einnig
með þétta áætlun, auk leiguflugs á
vegum ferðaskrifstofa.
Svali Kaldalóns er búsettur á
Tenerife og rekur þar ferðaþjón-
ustufyrirtækið Tenerifeferðir, sem
býður upp á margs konar ferðir og
upplifun fyrir íslenska ferðamenn.
„Við prófuðum í fyrra, þegar
takmarkanir voru ansi strangar,
að fá hingað út íslenska skemmti-
krafta og það gekk alveg bærilega
miðað við aðstæður,“ segir Svali.
„Ég setti mig svo í samband við
Pál Óskar Hjálmtýsson í sumar og
hann kom hingað í október til að
skoða aðstæður. Við ákváðum í
sameiningu að slá upp Palla-balli á
gamlárskvöld,“ segir Svali.
„Ballið er haldið á Íslendinga-
barnum hjá Nilla. Við máttum selja
300 miða og það seldist upp á auga-
bragði. Við bættum við nýársballi
með Páli Óskari á nýárskvöld og
erum langt komin með að selja upp
á það líka,“ segir Svali sem segir var-
lega áætlað að 6 til 8 þúsund Íslend-
ingar verði á Tenerife um jólin.
„Ég er sjúklega peppaður fyrir
þessum áramótum,“ segir Páll
Óskar. „Þétta er eitthvað sem ég hef
aldrei gert áður og ef þetta gengur
vel hef ég fullan hug á að gera þetta
aftur um næstu áramót,“ bætir hann
við.
„Ég væri raunar alveg til í að vera
á Tene um áramótin næstu árin.
Hugsaðu þér, ég verð þarna með
mínar skífur og þeyti þeim og svo
þegar stundin rennur upp tek ég
showið mitt með dönsurum,“ segir
Páll Óskar.
„Pældu í því að gera þetta í 29
stiga hita á gamlárskvöld, það er
eitthvað æðislegt,“ segir Páll Óskar
sem verður heima um jólin en flýg-
ur til Tenerife milli jóla og nýárs til
að undirbúa böllin sem upphaflega
áttu bara að vera eitt. n
Heldur Palla-böll á Tenerife
Fjöldi Íslendinga verður á Tenerife í sól og hita um jólin og áramótin.
MYND/AÐSEND
Á Tene verður Palla-ball um áramótin
Lilja Alfreðs-
dóttir, menning-
ar- og viðskipta-
ráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
jonthor@frettabladid.is
DÓMSMÁL Landsréttur bætti í gær
einu ári við fjögurra og hálfs árs
dóm sem karlmaður hafði áður
fengið fyrir tilraun til manndráps.
Maðurinn, sem heitir Davíð
Nikulásson, er dæmdur fyrir að hafa
í október 2020 lagt til annars manns
með exi í höfuð og búk. Kom fram
að fórnarlamb Davíðs hafi hlotið sjö
sentímetra skurð frá miðju enni að
hársrót, brot á höfuðkúpu og and-
litsbeinum, fimm sentímetra skurð
á brjóstkassa og skurð á upphand-
legg. Davíð hafði verið með sverð og
fjölda hnífa í fórum sínum.
Samkvæmt framburði fórnar-
lambsins í héraðsdómi hafði hann
sakað axarmanninn að stela lyfjum
af honum. Við það hafi maðurinn
reiðst og farið að brjóta og bramla
með exinni í herberginu og síðan
slegið hann sjálfan með exinni. n
Lengdu dóm yfir árásamanni með exi
8 Fréttir 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ