Fréttablaðið - 10.12.2022, Qupperneq 12
Sunak var sýnd Typhoon flugvél og fór inn í flugskýli til að skoða líkan af
Tempest þotunni sem verið er að þróa. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
Tempest herþotan, sem gerð
er í Bretlandi, Ítalíu og Japan,
var kynnt fyrir forsætisráð-
herra Bretlands í gær. Verk-
efnið kostar milljarða punda
og skapar fjölmörg störf.
ENGLAND Forsætisráðherra Breta,
Rishi Sunak, kom í heimsókn til
Konunglega breska f lughersins,
RAF, í gær til að skoða teikningar og
kynna sér nýju orrustuþotuna sem
Bretar eru að hanna ásamt Japönum
og Ítölum fyrir árið 2035.
Þotan, sem kallast Tempest á að
taka við af Typhoon. Sinak kom til
stöðvarinnar í Hercules f lugvél og
var tekið á móti honum af Sir Mike
Wigston yfirmanni f lughersins og
Billy Cooper, stöðvarstjóra.
Sunak sagði við fréttamenn sem
fylgdust með heimsókninni að
Bretar gætu og ættu að vera stoltir af
þessu verkefni. „Við erum eitt fárra
landa í heiminum sem hefur getu
til að smíða háþróaðar orrustuflug-
vélar,“ sagði forsætisráðherrann.
„Verkefnið er milljarða punda
innspýting í hagkerfið og skapar
tugi þúsunda starfa um allt land. En
verkefnið er líka gott fyrir alþjóð-
legt orðspor okkar.
Í dag erum við í samstarfi við
Ítalíu og Japan, tvær af okkar nán-
ustu bandalagsþjóðum, til að smíða
þessa næstu kynslóð flugvéla sem
mun tryggja öryggi okkar. Það er
eitthvað sem við getum öll verið
mjög stolt af.“
Gert er ráð fyrir að þotan geti
f logið hraðar en á hljóðhraða og
hafi getu til að skjóta hljóðbylgju-
vopnum. n
Sunak kynnti sér allt
um Tempest herþotuna
Kjaraviðræður hafa staðið yfir í sjö
mánuði og gengur hvorki né rekur í
deilunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
ENGLAND Breski pósturinn bar ekki
út bréf í gær, en verkfall póstsins
hefur kostað The Royal Mail yfir 100
milljónir punda eða 17 milljarða
króna, samkvæmt BBC. Þetta er
ekki í fyrsta sinn í ár sem pósturinn
hefur ekki borist íbúum. Áður hafði
pósturinn farið í verkfall meðal ann-
ars á Svörtum föstudegi og rafræn-
um mánudegi, sem eru einhverjir
stærstu dagar póstsins yfir árið.
Verði ekki samið mun pósturinn
halda áfram litlum verkföllum sem
hafa þó mikil áhrif. Um 115 þúsund
manns vinna hjá póstinum og er
verið að semja um kaup og kjör en
kjaradeilan er í hnút og ekki útlit
fyrir að skrifað verði undir samninga
á næstunni. Næstu verkföll verða
14. og 15. desember og svo 23. og 24.
desember. n
Rándýrt verkfall
breska póstsins
Verkefnið er milljarða
punda innspýt-
ing í hagkerfið og skap-
ar tugi þúsunda starfa
um allt land.
Rishi Sunak, forsætisráðherra
Breta
Fínt svifryk mældist 308 rúmmetrar í Mumbai í gær klukkan níu. Á sama tíma,
við Grensásveg, fór svifryk í 24 rúmmetra. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
INDLAND Sjúkrahús í Mumbai eru
nánast yfirfull vegna loftmeng-
unar. Læknar hafa sagt fólki að vera
ekki á ferli nema í brýnni neyð og
borgaryfirvöld hafa sent frá sér til-
kynningu og sagt að þau séu að gera
allt til að bæta loftgæðin.
Samkvæmt frétt BBC hafa loft-
gæði í Mumbai verið afar slæm að
undanförnu. Samkvæmt mælum
urðu þau verri en í Delí nokkrum
sinnum yfir vikuna, sem yfirleitt
er talin frekar ógeðfelld borg þegar
kemur að loftgæðum.
Sérfræðingar segja að veðurskil-
yrði, útblástur frá bílum og mikil
framkvæmdagleði í borginni séu
vandamálið.
Fínt svifryk mældist 308 rúm-
metrar í borginni í gær klukkan
níu. Samkvæmt loftgæðamæli við
Grensásveg í Reykjavík fór svifryk í
24 rúmmetra á sama tíma og kvört-
uðu margir sáran undan loftgæðum
í borginni.
Samkvæmt frétt BBC kostuðu
slæm loftgæði 2,3 milljónir manna
lífið árið 2019, en margar borgir í
landinu glíma við vandann. Delí,
Kolkata, Kanpur, Patna og nú
Mumbai, eru oft með svifryks-
mengun í hæstu hæðum. n
Mengun í Mumbai slær öll fyrri met
Jólagleðin liggur
icelandaircargo.is
Innanlandsflug fyrir jólapakkann á 2.000 kr.*
Sælla er að gefa en þiggja – en jólafrakt Icelandair Cargo getur aukið enn á ánægju-
na. Hvort sem þú lætur kerti, spil eða eitthvað allt annað í jólapakkana sjáum við um
að flytja þá hratt og örugglega í réttar hendur fyrir jólin.
í loftinu
*Gildir 8.–20. desember fyrir pakka allt að 10 kg.
Komdu jólagjöfinni í réttar hendur – síminn er 5050-401
10 Fréttir 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ