Fréttablaðið - 10.12.2022, Qupperneq 18
Það hefur verið sagt að
málstaður Palestínu sé
týndur og glataður, en
þetta sýnir að það er
alls ekki.
Hjálmtýr Heiðdal
Eins og allir vita fer tækifærum í verslun og þjónustu á Akureyri
sífellt ölgandi og alls konar spennandi fyrirtæki vilja koma sér
vel fyrir á besta stað. Við leitum því að öugum aðilum til að reisa
glæsilegt hús fyrir verslun og þjónustu við Hlíðarbraut.
Lóðin er 6.415m² en byggja má 4–5 hæðir auk bílakjallara.
Byggingarmagn er 7.687 m² ofanjarðar og 2.562 m² neðanjarðar.
Byggingarréttur í boði fyrir glæsilegt
atvinnuhúsnæði við Hlíðarbraut 4
Umsókn um lóðina ásamt kauptilboði þarf að skila gegnum
útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12.00 mmtudaginn
12. janúar 2023.
Nánari upplýsingar er að nna á útboðsvef á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is.
Geislagata 9 І Sími 460 1000 І www.akureyri.is І akureyri@akureyri.is
Viltu byggja fyrir
verslun og þjónustu
á besta stað?
Þrátt fyrir að vera ekki meðal
þátttökuþjóða í lokakeppni
HM í knattspyrnu má sjá fána
Palestínu víðs vegar þegar
mótið fer fram í Mið-Austur-
löndum í fyrsta sinn. For-
maður félagsins Ísland-Pal-
estína segir það til marks um
að almenningur víðs vegar sé
á bandi Palestínumanna.
kristinnpall@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Í aðdraganda Heims-
meistaramótsins í knattspyrnu gaf
Alþjóðaknattspyrnusambandið út
beiðni um að sundurgreina pólit-
ískar deilur frá knattspyrnunni, en
til þessa hefur mátt sjá stuðning við
Palestínu víða á leikjum mótsins.
Það vakti meðal annars heims-
athygli þegar spútniklið Marokkó
sem leikur gegn Portúgal í átta liða
úrslitunum í dag, fagnaði sigrinum
á Spáni í 16-liða úrslitunum með
palestínskum fána. Fjölmiðlar víðs
vegar að úr heiminum eru farnir að
fjalla um málið og jafnvel titla Pal-
estínu sem sigurvegara HM.
Í riðlakeppninni mátti sjá fjöl-
marga stuðningsmenn á áhorfenda-
pöllunum skarta palestínska fánan-
um en kaflaskil áttu sér stað þegar
Marokkó, síðasta liðið frá Araba-
löndunum, fagnaði óvæntum sigri
á Spánverjum fyrir framan augu
heimsins með palestínska fánanum.
„Ég hef heyrt af þessu. Þótt
stjórnvöld í Ísrael geri oft sam-
komulag við stjórnvöld í Araba-
löndunum, yfirleitt til að komast
í bandarísk vopn, þá virðist sem
svo að almenningurinn í Araba-
löndunum hafi mun meiri sam-
stöðu með Palestínumönnum en
yfirvöldin. Það hefur verið sagt að
málsstaður Palestínu sé týndur og
glataður, en þetta sýnir að það er
alls ekki. Almenningi verður enn
hugsað til Palestínu,“ segir Hjálm-
týr Heiðdal, formaður félagsins
Ísland-Palestína, aðspurður um
þennan stuðning sem Palestína
virðist njóta á HM.
Hjálmtýr telur að almenningi
í Arabalöndunum svíði að sjá til-
hneigingu Vesturlanda til að verja
Ísrael.
„Almenningi í Arabalöndunum
svíður að sjá hvernig Vestur-
lönd verja iðulega Ísrael á f lestum
sviðum. Þau sjá þegar ákveðið er
að grípa til efnahagsaðgerða í garð
Írans og Rússlands, sem eru að
brjóta sömu alþjóðasamninga og
Ísraelar þegar kemur að meðferð
fólks á hernumdu svæði. Almenn-
ingur er óánægður að sjá hvað Ísra-
elar sleppa vel,“ segir Hjálmtýr og
heldur áfram:
„Ísland sat á dögunum hjá í
at k væ ðag reið slu S a mei nuðu
þjóðanna um að mál Ísrael yrði
tekið fyrir hjá Alþjóðaglæpadóm-
stólnum. Það gengur illa að færa
málstaðinn á sama stig og Íran og
Rússland og það svíður hjá almenn-
ingi í Arabalöndunum sem eiga
mjög margt sameiginlegt með Pal-
estínumönnum. Þó að yfirvöld séu
að semja við Ísrael er það ekki í sam-
ræmi við vilja almennings.“
Hann segir að það sé ekki nýtt að
nýta knattspyrnuleiki til að koma
skilaboðum áleiðis.
„Þarna er tækifæri til að koma
skilaboðum áleiðis þegar heimur-
inn fylgist með og það virðast
fjölmargir vera að nýta sér það.
Þessari baráttu bregður oft fyrir á
knattspyrnuleikjum á Írlandi enda
erfiðara að stöðva það. Sjónvarps-
stöðvar geta ákveðið að sniðganga
mótmælagöngur, en þarna er annar
möguleiki á að koma skilaboðunum
áleiðis.“
Aðspurður segist hann ekki vera
viss hvort að skilaboð á slíkum vett-
vangi eigi eftir að hafa mikil áhrif í
baráttu Palestínumanna fyrir til-
verurétti sínum.
„Hreint út sagt efast ég um að
þetta hafi áhrif hjá stjórnvöldum
ríkja sem styðja Ísrael eins og
stærstur hluti Vesturlandanna.
Á sama tíma vekur þetta athygli
almennings á þessum málstað og
kveikir vonandi einhverja neista.“ n
Palestína birtist víða á HM í knattspyrnu
Leikmenn Marokkó fagna með palestínska fánann í lelkslok gegn Spánverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
16 Fréttir 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ