Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 22

Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 22
er að boða að fari fram í London. Gunni tapaði naumlega fyrir Edwards á sínum tíma, á klofinni dómaraákvörðun og nú reynir sá að verja titil sinn á móti Usman, við erum búnir að óska eftir því við UFC að fá pláss á því bardaga­ kvöldi.“ Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin af hálfu UFC í því máli. „Eitt er hins vegar ljóst og það er sú staðreynd að þeir vita af þessum mikla áhuga okkar á því að Gunnar berjist á þessu kvöldi.“ Las Vegas kitlaði Eins og fyrr sagði er Gunnar nú heill heilsu og mátti sjá á samfélags­ miðlum á dögunum að margur stuðningsmaður hans vildi fá hann í bardagabúrið á nýjan leik á bar­ dagakvöldi UFC sem fram fer í Las Vegas í Bandaríkjunum í kvöld. Þannig er mál með vexti að í vikunni sem er nú að líða bárust fréttir af því að andstæðingur Santiago Ponzinibbio, Rob­ bie Lawler, hefði meiðst í aðdraganda bardagans og þurfti því að finna nýjan andstæðing. Ponzinibbio og Gunn­ ar mættust í bardaga­ búrinu á sínum tíma og segja má að fram­ ganga þess fyrrnefnda í búrinu þá hafi skilað því að hann er nú ekki á jólakortalista Íslendinga. Ítrekuð augnpot og óheiðar­ leiki af hálfu Ponzinibbio, varð að lokum til þess að hann bar sigur úr býtum í bardaga sínum við Gunnar. Gunnar hefur áður, til að mynda í viðtali við Fréttablaðið eftir sigur sinn gegn Sato í mars á þessu ári, sagst vilja mæta Ponzi­ nibbio í búrinu á nýjan leik. Kitlaði það ekki Gunnar að taka slaginn núna um helgina í Las Vegas? „Jú, það kitlaði hann alveg en þeir voru búnir að finna annan andstæðing fyrir hann og mér skilst að Ponzi­ nibbio hafi lítinn áhuga á því að mæta Gunnari aftur í bardagabúr­ inu,“ segir Haraldur. „Það kom ekki til að Gunnar myndi stíga þarna inn þó svo að ég hafi spurst fyrir um það óform­ lega í gegnum mína teng il iði . Minn skilningur er sá að það hafi verið bú ið að f inna nýjan andstæðing fyrir Ponzinibbio mjög fljótt. Án þess að ég viti það nákvæm­ lega þá skilst mér að UFC hafi ekki látið vita af meiðslum Lawler fyrr en búið var að finna annan andstæðing fyrir Ponzinibbio.“ Gunnar og hans teymi hafi verið pollrólegir í þessum aðstæðum enda kannski ekki kjörið að stökkva inn með svo litlum fyrirvara á bar­ dagakvöld sem fer fram í Las Vegas. „Við vorum alveg rólegir gagnvart þessu og settum enga pressu á UFC um að fá að stíga þarna inn. Gunn­ ar langar það hins vegar alveg rosa­ lega að mæta honum aftur í búrinu. Þetta er í raun eini maðurinn sem Gunnar hefur nafngreint opin­ berlega í fjölmiðlum og sagst vilja berjast við.“ Spennandi 2023 Gunnar hefur ekki gefið neitt annað út en að hann ætli að halda áfram í UFC og fram undan er spennandi ár fyrir hann. „Hans sýn á þennan UFC­feril hefur ávallt verið sú að taka bara eitt bardagakvöld fyrir í einu. Núna vill hann komast á þetta bardagakvöld í London í mars. Við kannski vinnum þetta svo­ lítið öðruvísi en margir í þessum bransa, og erum samstíga hvað það varðar við feðgarnir, að ekki séu teknir of margir bardagar á hverju ári fyrir sig. Miklu frekar viljum við að þetta séu kannski tveir til þrír bardagar á ári. Núna horfum við bara björtum augum fram á næsta ár. Vonandi fáum við allaveganna að vera hluti af þessu bardagakvöldi í mars og ef það er raunin má búast við því að fleiri bardagar muni eiga sér stað á árinu 2023 hjá Gunnari.“ n Næsta ár lofar góðu fyrir UFC bardagakappann Gunnar Nelson sem er nú heill heilsu, eftir að hafa þurft að gangast undir aðgerð á nefi. Gunni sneri aftur í bardagabúrið í mars á þessu ári eftir tveggja ára fjarveru og er stefnan tekin á fleiri bardaga árið 2023. aron@frettabladid.is UFC Eftir sigur á Japananum Takashi Sato á bardagakvöldi UFC í London í mars fyrr á þessu ári, stóðu vonir til að Gunnar myndi fljótt snúa aftur í bardagabúrið. Hann þurfti hins vegar á aðgerð á nefi að halda sem hefur valdið því að ekkert hefur orðið af öðrum bardaga á árinu. Nú er Gunnar hins vegar búinn að ná sér að fullu eftir aðgerðina, farinn að æfa og er stefnan sett á fleiri bardaga á komandi ári. „Þetta virðist allt hafa tekist mjög vel og Gunnar er bara búinn að vera að æfa á fullu undanfarið,“ segir Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars við Frétta­ blaðið. Stefnan tekin á London Á dögunum opinberaði UFC áform sín um risastórt bardagakvöld sitt í O2­höllinni í London þann 18. mars á næsta ári. Ekki er búið að opin­ bera neina bardaga á því kvöldi en fastlega má gera ráð fyrir því að titilbardagi ríkjandi meistara velti­ vigtardeildarinnar, Bretans Leon Edwards og fyrrum meistarans Kamaru Usman, muni verða aðal­ bardagi þess kvölds. Það er þangað sem Gunnar og hans teymi stefnir. „Ég er búinn að virkja samtalið við UFC og gera þeim það ljóst að við viljum mjög mikið vera hluti af þessu stóra bardagakvöldi sem búið Eitt er hins vegar ljóst og það er sú staðreynd að þeir vita af þessum mikla áhuga okkar. Haraldur Dean Nelson Þetta er í raun eini maðurinn sem Gunnar hefur nafngreint opinberlega í fjöl- miðlum og sagst vilja berjast við. Haraldur Dean Nelson Kitlaði að mæta til Las Vegas um helgina Við megum búast við því að sjá Gunnar Nelson reglulega í bardagabúrinu árið 2023. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA 20 Íþróttir 10. desember 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.