Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 36

Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 36
Spil voru valin jólagjöfin í ár og ekki að undra því Íslendingar elska að spila á jólum. Oftast er gripið í borðspilið sem kom upp úr möndlu- pakkanum. Fréttablaðið kíkti á nokkrar lík- legar möndlugjafir þessara jóla. Íslensku jólaspilin í ár Alias frægir Myndform, 4 leikmenn eða fleiri Síðan upprunalega Alias-spilið kom út fyrir mörg- um, mörgum árum síðan hefur komið út dobía af alls kyns útgáfum sem byggja á grunnhug- myndinni, það er að lýsa orðum eða hugtökum án þess að segja þau. Alias frægir gerir það líka. En á hverju spjaldi eru bæði fimm orð til að giska á og svo nafn frægs einstaklings sem lokasvar. Þetta spil er spilað í tveimur liðum en hægt er að spila það á tvennan hátt. Annars vegar þannig að útskýrandi annars liðsins spyrji fyrst sitt lið en hitt liðið hefur svo færi á að stela spjaldinu. Eða þá að bæði liðin mega giska á þau orð sem eru á spjaldinu. Reglurnar eru aðeins flóknari en í mörgum öðrum Alias- spilum, einkum þegar kemur að stigagjöfinni og lokasvörin eru ekki alltaf auð- veld. En spilið er þó langt frá því að teljast flókið spil og allir sem þekkja Alias ættu að ná því strax. Bezzerwizzer Timeline Nordic Games, 2 til 4 lið Eins og nafnið gefur til kynna er spilið blanda af þessum tveimur spilum sem margir kannast við. Spurningaspilinu vinsæla Bezzerwizzer, sem komið hefur út í nokkrum útgáfum, og ártala- spilinu Timeline. Í spilinu eru Timeline-spil notuð til að skora stig, á tvo mismunandi hætti, sitt í hvorum hálfleikn- um. Eftir því sem tímalínan er orðin lengri, því fleiri stig er hægt að skora. Ef eitt liðið skorar nógu mörg stig vinnur það áður en umferðirnar klárast, en annars vinnur stigahæsta liðið í lokin. Bezzer- wizzer kemur inn í þetta með kubbunum frægu, Bezzerwizzer, til þess að stela stigum af öðru liði og Zwap til þess að skipta á Timeline-spilum. Spilið er einfalt og tekur ekki of langan tíma. Aðdáendur beggja spila ættu ekki að verða sviknir af þessu. Svo er ekkert sem segir að það sé ekki hægt að bæta við öðrum Time- line- spilum í þetta, jafnvel enskum. Hint Junior Nordic Games, 4 eða fleiri leikmenn Hint Junior er ærslafullt og nokkuð frumlegt orða- og fjölskylduspil. Skipt er í tvö lið með minnst tveimur leikmönnum í hvoru og leikmenn skiptast á að giska hjá liðsfélaga sínum. Liðin velja spjöld með orðum á hjóli á miðju spilaborðinu og reyna að ná sem flestum, en eitt er bannorð sem gefur mínusstig. Í Hint Junior eru fimm flokkar sem segja til um hvernig stjórnandinn má gefa vísbendingar. Með því að tala, leika, teikna, hljóða eða nota svokallað hint- moji-borð sem er bæði frumleg- asta aðferðin og sú mest krefj- andi. Hljóðunin getur verið ansi hlægileg því þá má raula, baula og gretta sig. Gott gisk Panda Games, 2 eða fleiri leikmenn Gott gisk er ekki byltingarkennt borðspil heldur nokkuð dæmi- gert og traust spurningaspil. Einfalt spil sem mun vafalaust henta einstaklega vel í fjöl- skylduboðið um jólin. Þetta er kapphlaup leikmanna, eða liða, í kringum borðið og spurningaflokkarnir eru frekar sígildir. Til dæmis vísindi, íþróttir, landafræði, dægurmenning, líkt og Íslendingar þekkja úr þjóðarspilinu sjálfu, Trivial Pursuit. Gott gisk fylgir hins vegar því trendi undanfarinna ára að aðrir leikmenn mega skipta sér af þegar þú ert að svara. Eins og í til dæmis Bezzerwizzer og Ég veit. Þetta er vitaskuld ekki ósniðugt trend, því með því hafa allir leik- menn áhuga á öllum svörum í spilinu en ekki aðeins sínu eigin. Í Góðu giski fá allir við borðið að veðja á hvort Gústi frændi nái að svara spurningu um Mine- craft rétt. Fyrst er lesinn upp flokkurinn, svo undirflokkurinn og loks spurningin. Hægt er að skora með réttu giski en ef þú veðjaðir gegn Gústa sem svaraði rétt fær hann aukastig. Ég veit meira Myndform, 2-6 leikmenn Spilið er nokkurs konar framhald af spilinu Ég veit sem kom út fyrir jólin árið 2017. Það spil var eitt af best heppnuðu spurningaspilum sem komið hafa út á íslensku og hið nýja spil ætti að njóta sömu vinsælda. Í spilinu eru ekki hefðbundnar spurningar eins og Íslendingar þekkja úr Trivial Pursuit eða Bezzer- wizzer heldur er spurt um eitthvert atriði, eins og til dæmis tegundir af mjólk, fúlmenni í Batman eða menn sem heita Geir. Við hverri spurningu eru svo 8 rétt svör sem giskarinn þarf að ná á ákveðnum tíma til að fá sem flest stig og komast sem lengst á borðinu. Fyrir hverja umferð mega aðrir leikmenn giska á hversu mörgum svörum giskarinn nær og fá sjálfir stig fyrir það. Í þessari útgáfu af spilinu er hins vegar ein breyting, það að giskarinn hefur tvö spjöld til að passa ef hann fær spurningu sem hann telur sig ekki geta náð neinu svari réttu. Það skemmti- legasta við Ég veit meira (og Ég veit) er ekki endilega að spila spilið sjálft. Heldur að grípa nokkur spurningaspjöld í góðu tómi og leyfa öllum í her- berginu að giska. Pöbb kviss 3 Fullt tungl, 2 leikmenn eða fleiri Það segir sitthvað um velgengni spils þegar það þriðja í röðinni er gefið út á þremur árum. Vel- gengnin er sennilega tilkomin vegna þess að spurningarnar eru sérlega alþýðlegar. Það er, að sigurvegari spilsins er ekki endi- lega sá í hópnum sem skartar fimm háskólagráðum. Flokkarnir eru fjórir. Flokkurinn Algengar spurningar sem lýsir sér nokkurn veginn sjálfur. Þrjú hint sem eru vís- bendingaspurningar. Frægar línur eru spurningar upp úr lögum, bíómyndum, auglýsingum eða öðrum kvótum sem hafa setið eftir í þjóðarsálinni. Síðan er Fimmfaldur, þar sem viðkomandi þarf að nefna fimm atriði. Og það er erfiðara en það hljómar. Íslendingar eru öðrum þjóðum fremur sjúkir í spurningaspil og það er vel hægt að mæla með Pöbb kviss. Þrátt fyrir að inni- halda 1.000 spurningar tekur það ekki mikið pláss á hillunni en framleiðslan er góð. Svo góð að prentarinn hafði það til sýnis á SPIEL Essen, stærstu borðspila- ráðstefnu heims, til marks um gæði framleiðslu sinnar. Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur @frettabladid.is Frægð og frami Spil ehf., 2 til 6 leikmenn Frægð og frami er spil sem leynir á sér. Fyrir fram myndi maður ekki halda að þetta spil, sem fjallar um áhrifavalda á samfélagsmiðlum, væri sérlega djúpt. En í því finnast ýmsir hlutir sem einkenna alvöru nördaspil, sem ekki er sérlega algengt, eða réttara sagt mjög óalgengt, í íslenskri framleiðslu. Meðal annars er asymmetría í því, það er hver leikmaður hefur sérstaka hæfileika sem aðrir hafa ekki. Einnig býður spilið upp á samninga og samvinnu í einstaka tilvikum. Frægð og frami er hins vegar nokkuð einfalt spil, þar sem leikmenn fara hring eftir hring á borðinu með teninga- kasti. Það býður líka upp á að leikmenn geti verið nokkuð andstyggi- legir hver við annan. En með því að skemma fyrir öðrum eru leikmenn jú að hjálpa sjálfum sér. Þrjú krakkaspil Fullt tungl, 2 leikmenn eða fleiri Frá sama framleiðanda og í sama anda og Pöbb kviss kemur nýtt Krakka kviss. Einnig númer 3. Fyrir utan að vera ekki jafn umfangsmikið og stórt og Pöbb kviss, og hafa ekki jafn marga flokka, þá lýtur spilið svipuðum lögmálum. Þetta er einfalt og gott spurningaspil fyrir krakka, um það bil á aldrinum 6 til 12 ára. Einnig er komin út sérstök út- gáfa af Krakka kvissi sem fjallar eingöngu um fótbolta. Og svo Krakkaleikar sem snýst um að giska á orð eftir látbragði. 34 Helgin 10. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.