Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 38

Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 38
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Drónar njóta mikilla vinsælda í jólapakkana. Þeir eru tilvalin gjöf fyrir ævintýrafólk og náttúruunn- endur sem geta séð heiminn úr lofti með drónanum, sem fangar ferðalögin og býr til ómótstæði- lega ferðasögu í myndum og myndböndum. Til dæmis þegar gengið er á fjall og dróninn sýnir það sem farið var og upplifað, en á sinn einstakan hátt eins og fuglinn fljúgandi,“ segir Sigurður Þór Helgason, eigandi DJI Reykjavík. DJI er stærsti drónaframleiðandi heimsins í dag og með um 70 pró- senta markaðshlutdeild. Þá er DJI þekkt fyrir einstök gæði og góða þjónustu. „Þegar kemur að því að finna dróna sem er bæði ódýrir og með mikla getu verður DJI Mini 2 oftast fyrir valinu. Hann er einn besti dróninn fyrir byrjendur og býður upp á allt að 4K-upptöku ásamt því að hafa drægi allt að sex kílómetra og með 31 mínútu hámarksflug- tíma,“ segir Sigurður Þór, staddur í glæsilegri verslun DJI Reykjavík í Lækjargötu 2A í miðborg Reykja- víkur. „Að fljúga dróna er alls ekki flókið og tekur aðeins þrjár mín- útur að átta sig á því hvernig DJI- dróni virkar. Hann er svo öruggur í notkun að á meðan þú gerir ekki neitt þá gerir dróninn ekki neitt heldur,“ segir Sigurður. Þeir fremstu í DJI Mini-línunni Sigurður heldur á splunkunýjum dróna, DJI Mini 3, sem kom til landsins nú í vikunni. „Sem byrjendadróni kemur DJI Mini 3 til með að taka við af Mini 2-drónanum innan tíðar. Hann hefur talsvert lengri flugtíma, eða 38 mínútur, einnig HDR-upp- tökumöguleika og meira ljósnæmi, ásamt því að geta tekið myndir og vídeó lóðrétt, 60 gráður upp fyrir sig, 90 gráður niður og allt þar á milli. Hann er tilvalinn fyrir samfélagsmiðla, eins og TikTok og Instagram, og þá er hægt að fá DJI Mini 3 með skjáfjarstýringu,“ upplýsir Sigurður, en allar nánari upplýsingar um DJI Mini 3 eru á vefsíðunni djireykjavik.is. DJI Mini 3 Pro er sá allra fremsti í DJI Mini-línunni. „Hann er klárlega besti dróninn fyrir þá sem leita að dróna sem getur til dæmis fylgt fólki eða bíl. DJI Mini 3 Pro býður einnig upp á að taka lóðrétt myndbönd og myndir og er því frábær í pakk- ann handa þeim sem eru mikið á Instagram og TikTok. Það sem fylgir því að geta tekið lóðrétt myndbönd og myndir er minni eftirvinnsla, þar sem maður sér rammann eins og maður ætlar að skjóta hann á tökustað.“ Ecoflow er færanleg rafstöð fyrir nær öll raftæki. DJI Osmo Action 3 er nett og vatns- held myndavél í sport og útivist. DJI Mini 3 Pro er fullkominn dróni með eltieiginleika. DJI Mini 2 er vinsælasti byrjendadróninn. DJI Mavic 3 Classic dróni er flaggskipið frá DJI. Lendingarpallur er gagnleg jólagjöf fyrir alla sem eiga dróna. Hjá DJI Reykja- vík er hægt að finna ótal spennandi jóla- gjafir fyrir jafnt byrjendur og lengra komna í drónum, en þess má geta að það er leikur einn að stýra dróna. Glæsileg verslun DJI Reykjavík er í Lækjargötu 2A í Reykjavík. Þangað er ævintýri að koma og skoða úrval dróna og alls kyns fylgihluta og búnaðar sem gerir drónaflugið enn skemmtilegra. Sigurður Þór með nýjasta drónann, DJI Mini 3, og skjáfjarstýringu sem hægt er að fá með honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fyrir þá sem elska ljósmyndun Flaggskipið á drónamarkaðnum er DJI Mavic 3 Classic. „Sá dróni er með 4/3 CMOS Has- selblad-myndavél og býður upp á að taka myndbönd í 5.1K og 20MP- ljósmyndir. Mavic 3 Classic er klár- lega dróninn sem fer í jólapakkann hjá þeim sem elska ljósmyndun og myndbandaframleiðslu. Hann er einnig með lengsta flugtímann af öllum drónum í sama stærðar- flokki á markaði og býður upp á allt að 46 mínútna flugtíma og allt að 8 kílómetra drægi,“ segir Sigurður. Fjarstýring með skjá DJI RC er ódýr fjarstýring með innbyggðum skjá sem gerir flugið þægilegra. „Fjarstýringunni fylgja engar snúrur sem þarf að hafa áhyggjur af, hvort sem það er að vera með snúruna á sér eða að passa að hún virki. DJI RC-fjarstýring er því frábær gjöf fyrir þá sem eiga ekki skjáfjarstýringu. Hún er með 5,5" 1080P-skjá og einnig fleiri tökkum sem hægt er að stilla en í venju- legri fjarstýringu fyrir síma,“ segir Sigurður. Þess má geta að DJI RC virkar með eftirfarandi drónum: DJI Mini 3 Pro, DJI Mavic 3, DJI Mavic 3 Classic og DJI Air 2S. Rafstöð og lendingarpallur Í verslun DJI Reykjavík fæst margt spennandi í jólapakkann, þar á meðal lendingarpallur fyrir dróna. „Lendingarpallar hitta í mark hjá drónaeigendum. Þeir geta komið í veg fyrir að sandur komist í mótora og gimbal. Einnig geta þeir hjálpað við að taka á loft þegar snjór er á götum eða í háu grasi, þar sem gras getur flækst í mótorum. Þrátt fyrir að götur líti út fyrir að vera hreinar kemur fólki iðulega á óvart að það sé sandur á götunum, en sandurinn er ein af ástæðum þess að mótorar festast í miðju lofti. Setjið því lendingarpall undir tréð í ár og sláið í gegn,“ segir Sigurður kátur. Færanleg rafstöð frá Ecoflow er önnur kærkomin jólagjöf. „Með Ecoflow er hægt að hlaða símann, stinga sjónvarpi í sam- band, hella upp á kaffi og margt fleira. Þessar færanlegu rafstöðvar eru með venjulegri heimainn- stungu og þar af leiðandi er hægt að stinga nánast hverju sem er í samband. Þá tekur ekki nema 60 mínútur að hlaða stöðvarnar úr 0 prósent í 80 prósent hleðslu, og víst að Ecoflow mun hitta beint í mark hjá útilegufólkinu sem vantar alltaf rafmagn,“ segir Sigurður í jóla- skapi. Lítil myndavél sem slær í gegn DJI Osmo Action 3 er vatnsheld myndavél sem hentar vel öllum sem stunda mikla afþreyingu og útivist, svo sem skíði, snjóbretti, krossara og fleira. „Þessi frábæra myndavél hefur einnig verið notuð mikið fyrir vídeó-blogg þar sem hún er lítil, vatnsheld og tekur myndbönd í góðum gæðum, eða 4K 120 ramma á sekúndu og í 10 bit litagæðum. Skjár er bæði framan og aftan á vélinni. Ef þú ert í leit að gjöf fyrir þann sem á allt og stundar mikla afþreyingu, þá er öruggt að þessi litla myndavél mun slá í gegn,“ segir Sigurður. n DJI Reykjavík er í Lækjargötu 2A í Reykjavík. Sími 519 4747. Skoðið einnig úrvalið og nánari upplýs- ingar í netversluninni djireykjavik. is. Þar er líka hægt að finna frábær- an lista með góðum hugmyndum að jólagjöfum. Að fljúga dróna er alls ekki flókið og tekur aðeins þrjár mínútur að átta sig á því hvernig hann virkar. Sigurður Þór Helgason 2 kynningarblað A L LT 10. desember 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.