Fréttablaðið - 10.12.2022, Qupperneq 38
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Drónar njóta mikilla vinsælda í
jólapakkana. Þeir eru tilvalin gjöf
fyrir ævintýrafólk og náttúruunn-
endur sem geta séð heiminn úr
lofti með drónanum, sem fangar
ferðalögin og býr til ómótstæði-
lega ferðasögu í myndum og
myndböndum. Til dæmis þegar
gengið er á fjall og dróninn sýnir
það sem farið var og upplifað, en á
sinn einstakan hátt eins og fuglinn
fljúgandi,“ segir Sigurður Þór
Helgason, eigandi DJI Reykjavík.
DJI er stærsti drónaframleiðandi
heimsins í dag og með um 70 pró-
senta markaðshlutdeild. Þá er DJI
þekkt fyrir einstök gæði og góða
þjónustu.
„Þegar kemur að því að finna
dróna sem er bæði ódýrir og með
mikla getu verður DJI Mini 2 oftast
fyrir valinu. Hann er einn besti
dróninn fyrir byrjendur og býður
upp á allt að 4K-upptöku ásamt því
að hafa drægi allt að sex kílómetra
og með 31 mínútu hámarksflug-
tíma,“ segir Sigurður Þór, staddur
í glæsilegri verslun DJI Reykjavík í
Lækjargötu 2A í miðborg Reykja-
víkur.
„Að fljúga dróna er alls ekki
flókið og tekur aðeins þrjár mín-
útur að átta sig á því hvernig DJI-
dróni virkar. Hann er svo öruggur
í notkun að á meðan þú gerir ekki
neitt þá gerir dróninn ekki neitt
heldur,“ segir Sigurður.
Þeir fremstu í DJI Mini-línunni
Sigurður heldur á splunkunýjum
dróna, DJI Mini 3, sem kom til
landsins nú í vikunni.
„Sem byrjendadróni kemur DJI
Mini 3 til með að taka við af Mini
2-drónanum innan tíðar. Hann
hefur talsvert lengri flugtíma,
eða 38 mínútur, einnig HDR-upp-
tökumöguleika og meira ljósnæmi,
ásamt því að geta tekið myndir
og vídeó lóðrétt, 60 gráður upp
fyrir sig, 90 gráður niður og allt
þar á milli. Hann er tilvalinn fyrir
samfélagsmiðla, eins og TikTok
og Instagram, og þá er hægt að fá
DJI Mini 3 með skjáfjarstýringu,“
upplýsir Sigurður, en allar nánari
upplýsingar um DJI Mini 3 eru á
vefsíðunni djireykjavik.is.
DJI Mini 3 Pro er sá allra fremsti
í DJI Mini-línunni.
„Hann er klárlega besti dróninn
fyrir þá sem leita að dróna sem
getur til dæmis fylgt fólki eða bíl.
DJI Mini 3 Pro býður einnig upp
á að taka lóðrétt myndbönd og
myndir og er því frábær í pakk-
ann handa þeim sem eru mikið
á Instagram og TikTok. Það sem
fylgir því að geta tekið lóðrétt
myndbönd og myndir er minni
eftirvinnsla, þar sem maður sér
rammann eins og maður ætlar að
skjóta hann á tökustað.“ Ecoflow er færanleg rafstöð fyrir nær öll raftæki.
DJI Osmo Action 3 er nett og vatns-
held myndavél í sport og útivist.
DJI Mini 3 Pro er fullkominn dróni með eltieiginleika.
DJI Mini 2 er vinsælasti byrjendadróninn.
DJI Mavic 3 Classic dróni er flaggskipið frá DJI. Lendingarpallur er gagnleg jólagjöf
fyrir alla sem eiga dróna.
Hjá DJI Reykja-
vík er hægt
að finna ótal
spennandi jóla-
gjafir fyrir jafnt
byrjendur og
lengra komna
í drónum, en
þess má geta
að það er leikur
einn að stýra
dróna.
Glæsileg verslun DJI Reykjavík er í Lækjargötu 2A í Reykjavík. Þangað er ævintýri að koma og
skoða úrval dróna og alls kyns fylgihluta og búnaðar sem gerir drónaflugið enn skemmtilegra.
Sigurður Þór með nýjasta drónann, DJI Mini 3, og skjáfjarstýringu sem hægt er að fá með honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fyrir þá sem elska ljósmyndun
Flaggskipið á drónamarkaðnum er
DJI Mavic 3 Classic.
„Sá dróni er með 4/3 CMOS Has-
selblad-myndavél og býður upp á
að taka myndbönd í 5.1K og 20MP-
ljósmyndir. Mavic 3 Classic er klár-
lega dróninn sem fer í jólapakkann
hjá þeim sem elska ljósmyndun
og myndbandaframleiðslu. Hann
er einnig með lengsta flugtímann
af öllum drónum í sama stærðar-
flokki á markaði og býður upp á
allt að 46 mínútna flugtíma og
allt að 8 kílómetra drægi,“ segir
Sigurður.
Fjarstýring með skjá
DJI RC er ódýr fjarstýring með
innbyggðum skjá sem gerir flugið
þægilegra.
„Fjarstýringunni fylgja engar
snúrur sem þarf að hafa áhyggjur
af, hvort sem það er að vera með
snúruna á sér eða að passa að hún
virki. DJI RC-fjarstýring er því
frábær gjöf fyrir þá sem eiga ekki
skjáfjarstýringu. Hún er með 5,5"
1080P-skjá og einnig fleiri tökkum
sem hægt er að stilla en í venju-
legri fjarstýringu fyrir síma,“ segir
Sigurður.
Þess má geta að DJI RC virkar
með eftirfarandi drónum: DJI Mini
3 Pro, DJI Mavic 3, DJI Mavic 3
Classic og DJI Air 2S.
Rafstöð og lendingarpallur
Í verslun DJI Reykjavík fæst margt
spennandi í jólapakkann, þar á
meðal lendingarpallur fyrir dróna.
„Lendingarpallar hitta í mark
hjá drónaeigendum. Þeir geta
komið í veg fyrir að sandur komist
í mótora og gimbal. Einnig geta
þeir hjálpað við að taka á loft
þegar snjór er á götum eða í háu
grasi, þar sem gras getur flækst í
mótorum. Þrátt fyrir að götur líti
út fyrir að vera hreinar kemur fólki
iðulega á óvart að það sé sandur á
götunum, en sandurinn er ein af
ástæðum þess að mótorar festast í
miðju lofti. Setjið því lendingarpall
undir tréð í ár og sláið í gegn,“ segir
Sigurður kátur.
Færanleg rafstöð frá Ecoflow er
önnur kærkomin jólagjöf.
„Með Ecoflow er hægt að hlaða
símann, stinga sjónvarpi í sam-
band, hella upp á kaffi og margt
fleira. Þessar færanlegu rafstöðvar
eru með venjulegri heimainn-
stungu og þar af leiðandi er hægt
að stinga nánast hverju sem er í
samband.
Þá tekur ekki nema 60 mínútur
að hlaða stöðvarnar úr 0 prósent
í 80 prósent hleðslu, og víst að
Ecoflow mun hitta beint í mark hjá
útilegufólkinu sem vantar alltaf
rafmagn,“ segir Sigurður í jóla-
skapi.
Lítil myndavél sem slær í gegn
DJI Osmo Action 3 er vatnsheld
myndavél sem hentar vel öllum
sem stunda mikla afþreyingu og
útivist, svo sem skíði, snjóbretti,
krossara og fleira.
„Þessi frábæra myndavél hefur
einnig verið notuð mikið fyrir
vídeó-blogg þar sem hún er lítil,
vatnsheld og tekur myndbönd í
góðum gæðum, eða 4K 120 ramma
á sekúndu og í 10 bit litagæðum.
Skjár er bæði framan og aftan á
vélinni. Ef þú ert í leit að gjöf fyrir
þann sem á allt og stundar mikla
afþreyingu, þá er öruggt að þessi
litla myndavél mun slá í gegn,“
segir Sigurður. n
DJI Reykjavík er í Lækjargötu 2A í
Reykjavík. Sími 519 4747. Skoðið
einnig úrvalið og nánari upplýs-
ingar í netversluninni djireykjavik.
is. Þar er líka hægt að finna frábær-
an lista með góðum hugmyndum
að jólagjöfum.
Að
fljúga
dróna er
alls ekki
flókið og
tekur
aðeins
þrjár
mínútur
að átta sig á
því hvernig
hann
virkar.
Sigurður Þór
Helgason
2 kynningarblað A L LT 10. desember 2022 LAUGARDAGUR