Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 41
Eldvarnamiðstöðin hefur
stóraukið úrval sitt af
slökkvitækjum í öðrum
litum en rauðum en sam-
kvæmt reglugerðum er það
sá litur sem krafist er af
hálfu yfirvalda.
„Við höfum tekið eftir því undan-
farin ár að stór hópur fólks hefur
ekki slökkvitæki á réttum og
aðgengilegum stöðum einfaldlega
vegna þess að rauði liturinn passar
ekki inn í hönnun heimilisins.
Ekkert heimili ætti að vera án
slökkvitækis og þess vegna viljum
við gera okkar til að koma til móts
við fagurkera,“ segir Dagný Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Eldvarnamiðstöðvarinnar.
Í fyrstu voru tækin aðeins
fáanleg sem léttvatnstæki í svörtu,
hvítu og gráu en nú hafa bæst við
brons, gull og silfur og nú er einnig
hægt að fá tækin sem dufttæki. Þá
býður Eldvarnamiðstöðin upp á
mikið úrval af eldvarnarteppum
en ekkert eldhús ætti að vera án
þeirra.
„Við skiljum vel það sjónarmið
yfirvalda að slökkvitæki eigi að
vera rauð þannig að þau sjáist vel
en þegar þróunin er sú að fleiri og
fleiri heimili sleppi slökkvitækjum
vegna útlits er það sjálfsögð skylda
okkar að bregðast við,“ segir
Dagný.
Hún segir enn fremur að tækj-
unum sé vel tekið af arkitektum
og vonandi verði þróunin þannig
í framtíðinni að áfram verði rauð
tæki til að uppfylla reglugerðir en
til viðbótar komi fleiri fallegri tæki
Betra fallegt
en ekkert
Dagný Guð-
mundsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Eldvarna-
miðstöðvar-
innar, segir að
ekkert heimili
eigi að vera án
slökkvitækis.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Léttvatnstækin eru nú einnig til í bronsi, silfri og gulli.
MYND/AÐSEND
Léttvatnstækið úr kopar tekur sig vel út í íbúðinni.
MYND/AÐSEND
Ekkert
heimili
ætti að
vera án
slökkvi-
tækis og
þess vegna
viljum við
gera okkar
til að koma
til móts við
fagurkera.
Dagný Guð-
mundsdóttir
sem verði sett á áberandi staði sem
hluti af hönnun rýma.
Varðandi staðsetningu tækjanna
er mikilvægt að hafa léttvatnstæki
við útidyr og dufttæki í eldhúsum
eða eldvarnarteppi.
Dufttæki má nota ef kviknar í
olíu í potti á eldavél en léttvatns-
tæki á flest allt annað. Dufttæki er
einnig snjallt að hafa í sumarhús-
um og í bílum en þau erum þeim
eiginleikum gædd að frjósa ekki.
Reykskynjarar í öll rými
Það er ekki svo langt síðan að talið
var nóg að hafa 2–3 reykskynjara á
hverju heimili. Í dag eru hins vegar
raftæki í öllum rýmum og símar,
airpods, fartölvur, spjaldtölvur og
sjónvörp víða að finna.
„Það er gríðarlega mikilvægt
að foreldrar brýni fyrir börnum
sínum að hlaða ekki spjaldtölvur
eða síma uppi í rúmi eða á flötum
sem geta kæft viftur þessara tækja
svo þau ofhitni. Við heyrum reglu-
lega af íkveikjum rafmagnstækja
í svefnherbergjum og allt of oft
liggur við stórslysi.
Í dag færðu reykskynjara með
rafhlöðuendingu allt að 10 árum
fyrir mjög gott verð.
Það er engin ástæða til þess að
spara fjölda reykskynjara í dag,
hlutverk þeirra er jú að passa
mestu dýrmætin í lífi okkar,“
segir Dagný Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Eldvarnamið-
stöðvarinnar að lokum. n
Frekari upplýsingar um vörur og
þjónustu hjá Eldvarnamiðstöðinni
má sjá á oger.is
ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 10. desember 2022