Fréttablaðið - 10.12.2022, Page 49

Fréttablaðið - 10.12.2022, Page 49
Umsóknarfrestur um bæði störfin er til og með 4. janúar 2023. Allar nánari upplýsingar um störfin, menntunar- og hæfniskröfur er að finna á starfatorg.is. Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um. Ráðuneytið er jákvætt fyrir störfum óháð staðsetningu. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið Okkar hlutverk er að leysa krafta úr læðingi Hlutverk háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins er að leiða saman það afl sem býr í háskólastarfi, vísindum, nýsköpun, iðnaði, fjarskiptum og upplýsingatækni og stuðla þannig að því að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Ráðuneytið fer með þau viðfangsefni sem varða málefni upplýsinga- samfélagsins, fjarskipti og netöryggi, notkun opinberra gagna til nýsköpunar og umbóta fyrir atvinnulíf, rafræna auðkenningu, traust- þjónustu og tæknilausnir á sviði gervigreindar. Við leggjum metnað okkar í að þessar grunnstoðir þekkingarsamfélagsins séu öflugar og traustar og í góðu samræmi þarfir samfélagsins. Vertu í bandi 12 stig! » Lögfræðingur á svið fjarskipta og netöryggis Hefur þú velt því fyrir þér hvernig lífið væri ef Ísland væri án fjarskipta í einn sólarhring? Vissulega gæti verið ágætis tilbreyting að losna við áreiti hversdagsins en veruleikinn er sá að bæði einstaklingar og þjóðir heims eru svo háð fjarskiptum að erfitt er að ímynda sér tilveruna án þeirra. Í nýju ráðuneyti er unnið að því að Ísland verði fyrsta gígabitaland heimsins en um leið þarf að sjá til þess að net- öryggi sé til fyrirmyndar. Til að efla teymið sem starfar að þessum málum í ráðuneytinu leitum við nú að lögfræðingi sem hefur brennandi áhuga á alþjóðasamstafi um málefni fjarskipta og netöryggis og hefur reynslu og þekkingu sem nýtist við innleiðingu Evrópugerða og samningu lagafrumvarpa. » Evrópusérfræðingur á stafrænni vegferð Ísland er í dyggu samfloti með öðrum Evrópuþjóðum þegar kemur að upplýsinga- samfélaginu, gervigreind, stafrænni þróun, aðgengi að upplýsingum og öruggri notkun gagna. Á sama tíma og ýmis tækifæri felast í breytingum á þessu sviði koma upp ýmsar áleitnar spurningar sem snerta siðferði og persónuvernd. Mikil stefnu- mótun mun eiga sér stað á þessu sviði og sömuleiðis innleiðing á Evrópugerðum og alþjóðlegum skuldbindingum. Við leitum nú að einstaklingi sem hefur burði til að hugsa fram á veginn, hefur reynslu af alþjóðlegu samstarfi og brennandi löngun til að leggja sitt af mörkum á sviði stafrænnar þróunar. Viðkomandi tæki þátt í ýmis konar Evrópusamstarfi fyrir hönd Íslands.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.