Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 49
Umsóknarfrestur um bæði störfin er til og með 4. janúar 2023.
Allar nánari upplýsingar um störfin, menntunar- og hæfniskröfur
er að finna á starfatorg.is. Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti
og hvetur öll áhugasöm til að sækja um. Ráðuneytið er jákvætt
fyrir störfum óháð staðsetningu.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Okkar hlutverk
er að leysa krafta
úr læðingi
Hlutverk háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins er að leiða
saman það afl sem býr í háskólastarfi, vísindum, nýsköpun, iðnaði,
fjarskiptum og upplýsingatækni og stuðla þannig að því að hugvitið
verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar.
Ráðuneytið fer með þau viðfangsefni sem varða málefni upplýsinga-
samfélagsins, fjarskipti og netöryggi, notkun opinberra gagna til
nýsköpunar og umbóta fyrir atvinnulíf, rafræna auðkenningu, traust-
þjónustu og tæknilausnir á sviði gervigreindar. Við leggjum metnað
okkar í að þessar grunnstoðir þekkingarsamfélagsins séu öflugar og
traustar og í góðu samræmi þarfir samfélagsins.
Vertu í bandi
12 stig!
» Lögfræðingur á svið fjarskipta og netöryggis
Hefur þú velt því fyrir þér hvernig lífið væri ef Ísland væri án fjarskipta í einn
sólarhring? Vissulega gæti verið ágætis tilbreyting að losna við áreiti hversdagsins
en veruleikinn er sá að bæði einstaklingar og þjóðir heims eru svo háð fjarskiptum
að erfitt er að ímynda sér tilveruna án þeirra. Í nýju ráðuneyti er unnið að því að
Ísland verði fyrsta gígabitaland heimsins en um leið þarf að sjá til þess að net-
öryggi sé til fyrirmyndar.
Til að efla teymið sem starfar að þessum málum í ráðuneytinu leitum við nú að
lögfræðingi sem hefur brennandi áhuga á alþjóðasamstafi um málefni fjarskipta
og netöryggis og hefur reynslu og þekkingu sem nýtist við innleiðingu Evrópugerða
og samningu lagafrumvarpa.
» Evrópusérfræðingur á stafrænni vegferð
Ísland er í dyggu samfloti með öðrum Evrópuþjóðum þegar kemur að upplýsinga-
samfélaginu, gervigreind, stafrænni þróun, aðgengi að upplýsingum og öruggri
notkun gagna. Á sama tíma og ýmis tækifæri felast í breytingum á þessu sviði koma
upp ýmsar áleitnar spurningar sem snerta siðferði og persónuvernd. Mikil stefnu-
mótun mun eiga sér stað á þessu sviði og sömuleiðis innleiðing á Evrópugerðum
og alþjóðlegum skuldbindingum.
Við leitum nú að einstaklingi sem hefur burði til að hugsa fram á veginn, hefur
reynslu af alþjóðlegu samstarfi og brennandi löngun til að leggja sitt af mörkum á
sviði stafrænnar þróunar. Viðkomandi tæki þátt í ýmis konar Evrópusamstarfi fyrir
hönd Íslands.