Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 64
Sætbökur eða „mince pies“
eru örlítið flóknar í gerð en
einstaklega jólalegar, bæði
sem kaffimeðlæti og eftir-
réttur.
brynhildur@frettabladid.is
Sætbökur eða mince pies eru
ómissandi þáttur í bresku jólahaldi
síðan á sextándu öld þótt harðstjór-
inn Oliver Cromwell hafi reynt að
banna sætbökuát á skammri valda-
tíð sinni á sautjándu öld.
Sætbökur voru upphaflega með
sætkryddaðri kjötkássu en nú
hefur kjötið verið fjarlægt og eftir
situr dásamleg sæt kryddsulta sem
kölluð er sætket eða mince meat,
bökuð inn í gómsætt smjördeig.
Það er kannski smá vesen að gera
bökurnar, einkum ef til stendur að
gera sætketið sjálf en svo fyllilega
þess virði. Það er einkum fyllingin
eða sætketið sem gerir bökurnar
einstakar, en hún gefur það sem
sumum finnst vera hið fullkomna
jólabragð af sultuðum ávöxtum,
kryddi og koníaki.
Sætbökur
350 g hveiti
225 g ósaltað smjör
1 klípa salt
1 þeytt egg
Kalt vatn eftir þörfum
Fylling:
750 g sætket
Flórsykur til skrauts
Setjið hveiti, smjör og salt í stóra,
hreina skál.
Vinnið smjörið inn í hveitið með
fingurgómunum þar til blandan
minnir á grófan sand. Hrærið egg-
inu saman við með köldum hníf.
Setjið vatnið saman við, teskeið í
senn þar til deigið helst saman en er
ekki klístrað.
Vefjið deigið í plastfilmu og kælið
í 15–30 mínútur.
Hitið ofninn í 200°C. Smyrjið
form, gott er að nota múffuform
en fjöldi bakanna fer eftir stærð
formanna.
Sáldrið svolitlu hveiti á vinnu-
brettið eða borðið og fletjið 2/3 af
deiginu út þar til það er um 3 milli-
metrar að þykkt.
Skerið út hringi sem passa í
formin, deigið þarf ekki að ná alla
leið upp. Fyllið deigið af sætketi að
tveimur þriðju.
Fletjið afganginn af deiginu
út í sömu þykkt og skerið út
minni hringi til að setja ofan á,
annaðhvort lok eða einhver falleg
mynstur. Dýfið fingrum í kalt
vatn og þrýstið lokunum ofan á
bökurnar. Gerið holu í yfirborðið
með litlum hníf svo gufan sleppi.
Bakið í 20 mínútur eða þar til
deigið er gullinbrúnt. Látið kólna
og stráið svo flórsykri yfir.
Sætbökur eru ljúffengar bæði
heitar og kaldar, með rjóma,
vanillusósu eða jafnvel góðum van-
illuís. Þær geymast í viku í loftþétt-
um umbúðum og eru bæði fallegar
og góðar, og um að gera að prófa.
Sætket í bökur
175 g rúsínur
110 g kúrenur
110 g sultaður appelsínu- eða sí-
trónubörkur, smátt saxað
175 g kókosolía við stofuhita
225 g dökkur púðursykur
½ tsk. ferskt eða þurrkað múskat
2 tsk. kryddblanda (sjá uppskrift)
Hið fullkomna jólabragð
Gaman er að skera út stjörnur eða kristþyrni í lokin til að gefa bökunum enn
jólalegra yfirbragð.
Sætbökur eru aldagömul bresk hefð og er ómögulegt fyrir flesta Englend-
inga að ímynda sér jólin án þeirra.
1 sítróna (rifinn börkur og safi)
1 appelsína (rifinn börkur og safi)
1 rautt epli, kjarnhreinsað og smátt
saxað
4 msk. koníak
Blandið öllu nema koníakinu
saman í eldfast mót og hrærið vel.
Breiðið hreint viskastykki yfir
og látið liggja yfir nótt. Blandan
verður betri sé hún látin bíða.
Hitið ofninn í 110°C.
Hrærið aðeins í, fjarlægið
viskastykkið og setjið álpappír
yfir formið í staðinn. Látið standa
í ofninum í tvo og hálfan tíma.
Takið út úr ofninum og látið kólna.
Mikilvægt er að hræra öðru hvoru í
sætkjötinu svo ávextirnir sam-
lagist sem best á meðan blandan
kólnar.
Þegar hún er orðin þokkalega
köld hrærið einu sinni enn, hellið
koníakinu út í og hrærið aftur.
Fyllið sótthreinsaðar krukkur
með köldu sætketi og lokið þeim
vel. Geymist upp undir ár á
köldum stað.
Kryddblandan
4 tsk. kanill
2 tsk. kóríander
1 tsk. allrahanda
½ tsk. múskat
½ tsk. engifer
¼ tsk. negull
Berglind Gerða Sigurðar-
dóttir er sölustjóri hjá
KAVITA og hefur starfað í
heilsugeiranum í fjöldamörg
ár. Berglind býr í Grafarvogi
og á þrjú börn. Hún hefur
mikinn áhuga á almennri
heilsu, mataræði, hreyfingu
og fæðubótarefnum.
Berglind hefur stúderað fæðu-
bótarefni, steinefni og allt sem
tengist slíkum efnum í mörg ár.
Hún segir mikið leitað til sín til að
fá ráð varðandi slíkt.
„Þegar vinkonur mínar standa í
heilsurekkanum í búðinni og vita
ekki hvað þær eiga að velja hringja
þær í mig til að fá ráðgjöf,“ segir
Berglind.
„Það skiptir líka máli hvenær
dags á að taka inn fæðubótarefni
og það er umræða sem ég hef
mikinn áhuga á og er alltaf til í að
ræða.“
„Ég hef tekið vítamín í mörg ár
og er líklega búin að prófa meira
en flestir. Ég hef tekið mikið af
bætiefnum en einhverra hluta
vegna er C-vítamínið alltaf mitt
uppáhaldsefni. Mér finnst margir
gleyma C-vítamíninu, en það er
ótrúlega mikilvægt að muna eftir
þessu lykilvítamíni bæði út af
andoxunarefnum sem eru frábær
fyrir húðina og fyrir góðan svefn.
Ég legg til dæmis mikla áherslu á
að benda vinkonum mínum á að
taka C-vítamínið á kvöldin, þann-
ig virkar það langbest. Mér finnst
eins og sumir á mínum aldri haldi
að C-vítamín sé bara eitthvað sem
var trend í gamla daga og fólk jafn-
vel ekkert að spá í það, en þetta má
ekki gleymast.“
Hefur ofurtrú á C-vítamíni
Berglind segir að C-vítamín sé
mikilvægt næringarefni sem
gegnir hlutverki í viðhaldi vefja og
framleiðslu á tilteknum taugaboð-
efnum.
Berglind notar C-vítamín frá
GOOD ROUTINE á hverjum degi
og hefur alla tíð haft ofurtrú á C-
vítamíni.
„Munurinn á þessu C-vítamíni
og öðru C-vítamíni er bromelain.
Það er efni sem finnst í ananas og
hjálpar til við bólgur og styrkir
ónæmiskerfið. Það hefur líka
reynst vel fyrir tennur og tann-
hold.“
Berglind hefur alla tíð stundað
mikla hreyfingu og hugað vel að
mataræði og almennri heilsu.
Berglind er sannfærð um
að sá lífsstíll stuðli að mun
sterkari andlegri heilsu og
komi í veg fyrir lífsstílssjúk-
dóma.
Berglind var því miður ein
af þeim sem lenti illa í Covid,
varð mjög lasin og lengi að
eiga við leiðindaeftirköst.
„Í bataferlinu áttaði ég mig
á því hvað það var mikil-
vægt að fá heilsuna til baka.
Þá kom skýrt í ljós hvað það
skiptir miklu máli að velja
réttan mat og fæðubótarefni
til að ná heilsu á ný,“ segir
hún.
„Það sem mér finnst áhuga-
verðast við C-vítamínið er að ég
er alveg laus við alla fótaóeirð og
almenna óeirð í líkamanum þegar
ég er dugleg að taka C-vítamín. Þar
af leiðandi verður svefninn miklu
betri. C-vítamínið eykur líka upp-
töku járns í líkamanum. Þegar við
erum undir miklu álagi andlega
eða líkamlega er mikilvægt að
líkaminn fái C-vítamín. Ég er ekki
hrædd við að taka of mikið af C-
vítamíni því það er þannig vítamín
að líkaminn losar sig við það ef
maður tekur of mikið“
Framleiðum ekki C-vítamín
Þetta C-vítamín sem ég er að taka
er einstök vara sem veitir öfluga
vörn fyrir bæði ónæmiskerfið, önd-
unarfærin og taugakerfið.
„Þetta er því tilvalin fæðubót
fyrir þá sem vilja verjast árstíða-
bundnum kvefpestum, bæta
C-vítamíni í daglegt mataræði
og taka inn góð andoxunarefni,“
útskýrir Berglind.
„Líkaminn getur ekki framleitt
C-vítamín sjálfur svo hann þarf að
fá það úr fæðu eða með fæðubót. C-
vítamínið í C-YOUR-IMMUNITY®
er í sínu náttúrulega formi sem
gerir það að verkum að upptakan
verður mun betri í líkamanum.“
Berglind upplýsir að quercetin
og hesperidin séu náttúruleg efni
sem virka einstaklega vel saman
við að draga úr kvef- eða ofnæmis-
einkennum, styðja við bólgusvar
líkamans og draga úr virkni skað-
legra efnasambanda í líkamanum.
Eins og Berglind minntist á áður,
inniheldur varan einnig bromela-
in. Þá tegund ensíms sem kemur
úr ananas og hefur eiginleika til
þess að styðja við ónæmiskerfið og
öndunarfærin. n
Vörurnar frá Good Routine fást í
Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaup-
um, Lyfjum og heilsu, Apótekar-
anum og á goodroutine.is
Mitt allra mest uppáhalds C-vítamín
Berglind Gerða Sigurðardóttir er sölustjóri hjá KAVITA og hefur starfað
í heilsugeiranum í fjöldamörg ár. MYNDIR/AÐSENDAR
C-vítamínið í C-YOUR-IMMUNITY®
er í sínu náttúrulega formi.
Munurinn á þessu
C-vítamíni og öðru
C-vítamíni er bromelain.
Það er efni sem finnst í
ananas og hjálpar til við
bólgur og styrkir ónæm-
iskerfið.
8 kynningarblað A L LT 10. desember 2022 LAUGARDAGUR