Fréttablaðið - 10.12.2022, Qupperneq 76
áróðursherferðin er léleg. Hins
vegar er hún góð hjá Samtökum
atvinnulífsins. Ógreiddur Hall-
dór Benjamín er allt í einu orðinn
maður fólksins, og hann er fulltrúi
einhverra nokkurra stórfyrirtækja.
„Þú getur þetta, Halldór, fyrir verka-
fólkið!“
Undirheimarnir
Það er líka vargöld í undirheim-
unum. Eruð þið hrædd við að fara út
á djammið?
Stefán: Ég hef ekki djammað í sex
ár en ég vinn niðri í bæ, og stundum
langt fram á nótt. Mér finnst aðeins
óþægilegra að labba heim á nótt-
unni.
Lenya: Ég djammaði á föstudag-
inn. Þessi þróun í undirheimunum
er hættuleg en ég er ósammála
dómsmálaráðherra um nálgunina,
að vopnavæða lögregluna og herða
refsingar. Mér finnst að við ættum
að ráðast að rót vandans, sem er
félagslegur og sálfræðilegur.
Stefán: Brynjar Níelsson, sem
dæmi, virðist halda að glæpamenn
birtist í einhverju tómarúmi. Eins
og persónur í tölvuleik. En þetta eru
krakkar, sem telja það sér til fram-
dráttar að þjóna vafasömum eldri
mönnum með innbrotum og sölu
fíkniefna. Það þarf að grípa utan
um þá. Harðar refsingar virka ekki.
Lenya: Stríðið gegn fíkniefnum
virkar ekki og við verðum að fara
að prófa öðruvísi nálgun. Við náum
ekki að góma alla sem koma með
fíkniefni til landsins.
Sveitin og veðrið
Önnur vargöld er í sveitum lands-
ins, út af lausagöngu sauðfjár. Mega
kindur vera alls staðar?
Stefán: Tengdaforeldrar mínir eru
bændur en ég hef ekki vit á þessu.
Mér finnst samt algjör stemning að
sjá kindur alls staðar.
Lenya: Ég borða ekki dýr. Mér
finnst sauðfé eiga sama frelsisrétt og
við fólkið til að fá að lifa góðu lífi.
Þau eru mjög sæt líka.
Hvað með blóðmerahald?
Stefán: Það er viðbjóður, maður!
Ég vissi ekki að þetta væri til fyrr en
ég sá þetta í fréttum.
Lenya: Ég ætla að fá að hrósa Ingu
Sæland, formanni Flokks fólksins,
fyrir slaginn sem hún er að taka
gegn blóðmerahaldi. Það er mjög
f lott hjá henni og í takt við mína
stefnu þegar kemur að dýravelferð-
armálum. Ég vona að þetta hætti
sem fyrst.
Stefán: Ég er mikill aðdáandi Ingu
Sæland. Hún er mikil stemnings-
kona.
Lenya: Fæði, klæði, húsnæði.
En laxeldið?
Stefán: Það er miklu leiðinlegra
að keyra úti á landi eftir að þetta
kom. Þetta er ljótt og allir firðirnir
eru að fyllast af þessu. Á meðan
þetta er ekki að bjarga heiminum
úr hungursneyð þá er ég mótfallinn
þessu. Þetta stefnir laxastofninum
í hættu og Norðmenn eiga nóg af
peningum.
En náttúran öll og loftslagið?
Lenya: Þetta er búinn að vera vax-
andi kvíði hjá mér síðustu ár. Við
erum farin að taka eftir raunveru-
legu áhrifunum sem loftslagsváin
er að hafa á okkur. Slógum við ekki
hitamet í nóvember?
Stefán: Ég held að það sé spáð 10
gráðum á morgun.
Lenya: Það er ekki í lagi! Veðrið er
búið að vera svakalega skrýtið í ár.
Ég held að við þurfum að stíga fast
til jarðar og grípa í þá tauma sem
við getum. Loftslagsváin er byrjuð
og við getum ekki komið í veg fyrir
hana, en við getum hægt á henni.
Mig langar að eiga börn og barna-
börn, en með þessu áframhaldi
munu þau ekki getað lifað í þessum
heimi sem við erum að skapa.
Flóttafólk
Það hafa komið margir f lóttamenn
til landsins og við vísum mörgum
burt. Vantar okkur ekki fólk?
Lenya: Hluti af vandamálinu er
að við veitum ekki atvinnuleyfi
samhliða dvalarleyfi. Fullt af fólki
sem kemur til landsins vill vinna
og margt af því er með menntun.
En þetta snýst ekki aðeins um hjól
atvinnulífsins. Flóttamenn koma
hingað í neyð, það er ógeðsleg veg-
ferð sem þeir leggja á sig til að kom-
ast hingað.
Stefán: Flóttamönnum er ekki að
fara að fækka á komandi árum. Af
hverju lögum við kerfið okkar ekki
að þessu? Við bjuggum til þetta
kerfi.
Lenya: Við þurfum líka að byggja
betur upp innviðina og velferðar-
kerfið til þess að geta bæði sinnt
þessum hópi og Íslendingum
sjálfum.
Niðurstaða
Hvað gefið þið árinu 2022 í ein-
kunn?
Stefán: Þetta ár fellur. Ég gef því 2.
Lenya: 4,9.
Verður 2023 betra?
Stefán: Ég held það. Ég held að
2023 verði mjög skemmtilegt.
Lenya: Já. Ef það verða stjórnar-
slit. n
Stefán og Lenya
rýna í kosninga-
sigur Framsókn-
arflokksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ég ætla að fá að hrósa
Ingu Sæland, formanni
Flokks fólksins, fyrir
slaginn sem hún er að
taka gegn blóðmera-
haldi.
Lenya Rún Taha Karim
- ómissandi með steikinni
42 Helgin 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN Á RÖKSTÓLUM FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2022 LAUGARDAGUR