Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 78
Í hvert sinn sem ég stíg út úr íbúðinni minni sé ég misskiptingu samfélagsins. Ruben Östlund Sænski leikstjórinn Ruben Östlund er rísandi stjarna og einn umtalaðasti leikstjóri seinni ára. Kvikmynd hans Triangle of Sadness hefur sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum. Hann svarar gagnrýnendum fullum hálsi og segist elska félags- fræði. Ruben Östlund er fæddur 1974. Hann hóf kvik- myndaferilinn í skíða- brekkum Alpanna, þar sem hann myndaði utan- brautar skíðamyndbönd og landaði í framhaldinu starfi hjá framleiðslu- fyrirtæki. Triangle of Sadness er vinsælasta mynd Rubens til þessa ef marka má aðsóknartölur kvik- myndahúsa, en eldri myndir hans, Force Majeure frá árinu 2014 og The Square frá árinu 2017, hlutu báðar Gullpálmann í Cannes. Ruben er afslappaður í fasi. Hann hefur oft komið til Íslands og langar að skella sér á skíði hér á landi einn daginn. Hann ræðir við blaðamann í síma, staddur í spænsku borginni Valéncia á Spáni. Eiginkona hans er tískuljósmyndarinn Sina Görcz og saman eiga þau ungan son sem lætur í sér heyra þó að faðir hans sé í símanum. Ruben átti fyrir tvo syni frá fyrra hjónabandi. Kryfur samfélagið Myndir Rubens eru marglaga sam- félagsádeilur sem glíma við stétta- skiptingu í sinni víðustu mynd: misskiptingu auðs, fordóma, kyn- hlutverk, lífsstíl og afþreyingariðn- að, svo að dæmi séu tekin. Leikstjór- inn sjálfur tilheyrir í dag hinum frægu og útvöldu, og flýgur á milli heimsborga og kvikmyndahátíða. Aðspurður hvernig sé að tilheyra elítunni, smám saman, samhliða því að gagnrýna hana, hlær hann. „Þetta er áhugavert. Þetta dregur athygli að myndunum. Evrópska nálgunin á kvikmyndaformið er að nota miðilinn til að kryfja sam- félagið og spyrja spurninga.“ Að horfa saman Ruben segir að það sé gríðarlega mikilvægt að þeir sem starfa í iðn- aðinum átti sig á mikilvægi kvik- myndasýninga. „Þetta er nánast eini vettvangurinn þar sem við njótum kvikmynda saman með öðrum,“ segir hann. Áður fyrr hafi fólk safnast saman fyrir framan sjónvarpsskjái en í dag sé hver í sínu horni að horfa á mismunandi efni. Svarar gagnrýni á Sorgarþríhyrninginn Ruben Östlund er staddur hér á landi um helgina. Nýjasta kvikmynd hans Triangle of Sad- ness er tilnefnd til Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna sem afhent eru í Hörpu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Nína Richter ninarichter @frettabladid.is „Fyrir utan einn sjónvarpsþátt sem er Eurovision,“ segir Ruben og hlær. „Það er mikilvægt að horfa saman. Þegar við erum ein þá erum við ekki að spegla okkur í efninu með sama hætti. Þegar þú ert í bíó spyr kannski einhver: Hvað fannst þér? Þá þarftu bara að svara og mynda þér skoðun og það er allt öðruvísi,“ segir hann. Ruben bendir einnig á að full- orðnir hafi misst stjórn á því afþrey- ingarefni sem börn horfa á. „Í dag eru fjórtán ára áhrifavaldar á sam- félagsmiðlum að ná til miklu stærri hóps en eitthvert barnaefni,“ segir leikstjórinn. Í Triangle of Sadness er komið inn á samfélagsmiðlamenningu. Aðspurður hvort slík þemu komi til með að halda áfram og verða jafn- vel fyrirferðarmeiri í næstu verkum, svarar Ruben: Öðruvísi flugslysamynd „Næsta myndin mín heitir The Ent- ertainment system is down. Hún gerist í löngu f lugi, svona sautján tíma flugi eða einhverju svoleiðis. Farþegar fá upplýsingar um að afþreyingarkerfið liggi niðri,“ segir hann. „Farþegar hafa tvo tíma þangað til símarnir tæmast og þá verður þetta allt svakalega áhuga- vert.“ Undirrituð andar djúpt og reynir að missa sig ekki í hláturinn. Ruben tekur sér langan tíma í að vinna myndir og hann segir að nýju myndarinnar sé að vænta eftir, í fyrsta lagi, þrjú til fimm ár. Um þessar mundir vinnur hann að handriti. „Ég nýt þess að ræða efni myndarinnar við fólk sem ég vinn með, spila svona ping pong með hugmyndir. Fólk fer að tengja við það og segja mér frá sínum vanga- veltum og þá stel ég bara bestu hugmyndunum og set í handritið,“ segir hann. Ruben skrifar handritið sjálfur en er með aðstoðarmann- eskju sem sinnir rannsóknarvinnu. Svarar gagnrýninni Mikið hefur verið skrifað og skrafað um hina gríðarvinsælu Triangle of Sadness og leikstjórinn er varla sam- mála allri gagnrýninni? „Í fyrsta lagi hafa viðtökurnar heilt yfir verið jákvæðar á heims- vísu. Ég vildi gera rússíbanareið fyrir fólk og mér finnst það hafa tekist,“ segir hann. „En þegar litið er á gagnrýnina sé ég stundum að fólk hefur verið að lesa myndina frá einhverjum hefðbundnum staðli um hvernig skáldverk á að vera sett fram. Sem dæmi þegar fólk segir: Já, eru ríkir krakkar vondir, samkvæmt myndinni? Þá segi ég nei, horfðu aftur á myndina, í rauninni eru ríku krakkarnir besta fólkið í sögunni. Ég vildi gjarnan brjóta þessa frá- sagnarhefð, en hefðin er svo sterk að fólk blindast. Það var svolítið áhugavert að sjá hversu formfast þetta er. Næst segir fólk: Já, er þetta gagnrýni á kapítalismann? En það er allt, allt of mikil einföldun á efni myndarinnar. Ég samþykki það alls ekki,“ segir Ruben. „Sumir segja: Já, pólitíkin er rosalega augljós. Þá spyr ég: Segðu mér þá hver þessi augljósa pólitík er. Enginn hefur svarað mér almennilega,“ segir hann. „Mig langar að vita hvað það er sem á að vera svona augljóst.“ Kannski, sem dæmi, þessi mis- skipting milli hæða í bátnum, sem endurspeglar þá efnahagslega mis- skiptingu karakteranna sem svara til mismunandi laga samfélagsins? „Í hvert sinn sem ég stíg út úr íbúðinni minni sé ég misskiptingu samfélagsins. Ef fólk sér þetta ekki í sínu nærsamfélagi þarf það að skoða málið. Eitt sem ég vildi gjarnan gera og hefur verið markmiðið með öllum myndum sem ég geri, er að nálgast efnið aldrei þannig að ég skelli skuldinni á einstaklinga eða persónur í verkinu. Það er frekar félagslega samhengið sem persón- urnar tilheyra, það er nálgunin sem ég vel mér í kvikmyndagerð,“ segir Ruben. „Ég elska félagsfræði af því að hún skellir ekki skuldinni á einstakling- inn heldur skoðar samhengið og aðstæðurnar sem hann hrærist í. Ef aðstæðurnar eru svona, þá kallar það fram svona hegðun,“ segir hann. Ruben er hrifinn af Karli Marx og telur hann einn af fremstu hugsuð- um sögunnar. Þó sé hann umdeildur í Svíþjóð. „En félagsfræðin snýr til dæmis að því að horfa á heiminn út frá auðvaldslögmálum. Út frá þeirri sviðsmynd. Það er svolítið pirrandi þegar fólk reynir stöðugt að afskrifa marxískar kenningar með því að tengja þær við kommúnismann. En ef þú talar eingöngu um félags- fræðina er ekkert vesen,“ segir hann. Aðalleikkonan látin Leikhópurinn í Triangle of Sadness er mikið lofaður. Ruben ferðaðist um heiminn í leit að bestu mögu- legu leikmönnum, og orðar það þannig að hann hafi viljað setja saman eins konar Real Madrid, ofurlið með bestu mögulegu leik- mönnum. „Við leituðum á Filipps- eyjum, í Þýskalandi, Frakklandi, Skandinavíu, Bandaríkjunum og Englandi. Þetta gekk ekki út á að velja einhverja fræga leikara heldur velja fólk sem einfaldlega bætti einhverju við liðsheildina. Þetta var frekar langt ferli en ég er mjög ánægður með þessa litríku pallettu sem okkur tókst að skapa,“ segir Ruben. Aðalleik kona my ndar innar Charlbi Dean Kriek lést í ágúst, fjór- um mánuðum eftir frumsýningu myndarinnar, viku áður en myndin var sýnd á Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Toronto. Ég votta þér samúð vegna fráfalls aðalleikkonu myndarinnar Charlbi Dean Kriek. Geturðu sagt okkur aðeins frá því hvernig var að verða fyrir slíkum missi? Ruben þagnar augnablik. „Já. Í fyrsta lagi verð ég að segja að fjöl- skylda hennar og unnusti eru auð- vitað að upplifa þetta á allt öðrum skala en við,“ segir hann. „En þegar þú ert leikstjóri að vinna með leikara og sér í lagi í heimsfaraldri, kynnistu fólki mjög vel. Þú treystir á viðkomandi og verður svolítið náinn þeim. Eins og hinir leikar- arnir, tók Charlbi mikinn þátt og gaf mikið af sér í verkið. Hún lyfti öllum í kringum sig,“ segir Ruben. „Hún lést áður en við frumsýnd- um í Toronto. Það var mjög skrýtið að standa þarna saman á sviðinu þegar það vantaði einn. Hæfileikar hennar í leiklistinni sáust mjög vel í myndinni og ég hlakkaði gríðarlega til að sjá hvað tæki við hjá henni eftir þessa mynd. Hvers konar hlut- verk hún myndi taka að sér í fram- haldinu,“ segir hann. „Þegar við sýndum í Toronto og Grikklandi var sýningin tileinkuð Charlbi. Það er enn þá þannig, þú vilt gefa áhorfendunum tækifæri til að fylgjast með frammistöðu henn- ar og heiðra minningu hennar.“ n Nánar á frettabladid.is. Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir á ski lja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra. Cinque Terre 3. eða 10. júní í 7 nætur Júní 2023 595 1000 www.heimsferdir.is 255.900 Flug & hótel frá 7 nætur Fararstjóri: Vilborg Halldórsdóttir GÖNGUFERÐ 44 Helgin 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.