Fréttablaðið - 10.12.2022, Page 83

Fréttablaðið - 10.12.2022, Page 83
Staður getur einnig vísað til þess að í dag er staður ekkert sjálfsagt mál fyrir fólk sem býr við óvissu. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, systir, mágkona og frænka, Ásdís Vébjörg Jónsdóttir lést 8. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Eiríkur Örn Guðmundsson Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir og barnabörn Sigurður Þ. Jónsson Fríða Ástvaldsdóttir og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóhanna Svava Jónsdóttir Kleppsvegi 10, Reykjavík, lést á Landspítalanum 29. nóvember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 16. desember klukkan 13. Jóna Andrésdóttir, Edda Andrésdóttir, Gunnar Andrésson og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Michaelsson lést á Landspítalanum Fossvogi þann 29. nóvember. Útför fer fram í Seljakirkju þriðjudaginn 13. desember klukkan 15. Benja Darayen Guðrún Ósk Sigurðardóttir Kristján Kristjánsson Guðmundur Helgi Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Hallberg Svavarsson tannsmíðameistari, lést á líknardeild Landspítalans 30. nóvember. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 15. desember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið. Steinunn Guðbrandsdóttir Þórey Hallbergsdóttir Bjarki Hallbergsson Tinna Hallbergsdóttir Hallberg Daði Hallbergsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður og afa, Alberts Guðmundssonar verkfræðings. Anna Þórunn Sveinsdóttir Þór Aldan Rain Barbara Inga Albertsdóttir Anna Victoria og Elísabet Rúrí Þökkum innilega samúðarkveðjur og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Jóhannesar Tómassonar blaðamanns og fyrrverandi upplýsingafulltrúa. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A4 Landspítalanum Fossvogi, fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Málfríður Finnbogadóttir Helgi Jóhannesson Anna Jóhannesdóttir Brynjúlfur Jónatansson Þórdís Jóhannesdóttir Brynjar Valþórsson Jóhannes, Ísar Ágúst, Sara Björk, Einar Björn, Salvör Móeiður, Elsa María, Valþór Hrafnkell og Eva Málfríður Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi, Einar Gunnarsson Gullsmára 10, lést á líknardeild Landspítalans þann 27. nóvember sl. Hann verður jarðsunginn frá Lindakirkju í Kópavogi þriðjudaginn 13. desember klukkan 13.00. Matthildur S. Gunnarsson Eva E. Gunnarsson, Cera Flynn Leifur O’Gorman, Axel O’Gorman Elsku hjartans eiginkona mín, dóttir, mamma, tengdamamma og amma okkar, Halldóra Halla Jónsdóttir Gröf 1, Hvalfjarðarsveit, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 7. desember í faðmi ástvina. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 16. desember kl. 13.00. Sigurbaldur Kristinsson Jón Eiríksson Rut Hallgrímsdóttir Guðný Elíasdóttir Jökull Helgason Jón Hartmann Elíasson Hrafnhildur Kristinsdóttir Hreinn Elíasson Kristín Jezorski Marín Rut Elíasdóttir Sigurjón Ingi Úlfarsson Stella Eyrún Sigurbaldursdóttir Arnar Þór Ólason Sindri Már Sigurbaldursson Kristbjörg Víðisdóttir og ömmugullin Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jón Olgeirsson frá Húsavík, Boðaþingi 8, lést umvafinn ást og hlýju 2. desember sl. á líknardeild LSH í Kópavogi. Útförin fer fram föstudaginn 16. desember klukkan 10.00 frá Digraneskirkju. Sérstakar þakkir fær starfsfólk HERU og líknardeildar LSH í Kópavogi. Hulda Salómonsdóttir Björg Jónsdóttir Ásgeir Baldurs Örvar Þór Jónsson Anna Margrét Svavarsdóttir Særún Jónsdóttir Haukur Valgeir Magnússon og barnabörn Eygló Harðardóttir hefur verið valin sem vinalistamaður Nýlistasafnsins 2023. arnartomas@frettabladid.is Á hverju ári velur Nýlistasafnið vina- listamann safnsins, sem fenginn er til að skapa verk fyrir vini og verndara safnsins. Listakonan Eygló Harðardóttir varð fyrir valinu fyrir árið 2023 og mun hún afhjúpa verk sitt á safninu klukkan 13 í dag. „Mér finnst það fyrst og fremst heiður að vera valin og það er ánægjulegt að geta lagt safninu lið með því að vinna verk fyrir það,“ segir Eygló um valið. „Það má segja að þetta sé pantað verk og það er unnið sérstaklega af þessu tilefni.“ Þótt margt um verkið sé enn á huldu hefur verið greint frá heiti þess: Staður. „Ég var með einkasýningu í Nýlista- safninu 2018 og silkiprentaði þá bók- verkið „Annað rými“ fyrir samnefnda sýningu. Bókverkið var prentað á mjög fallegan japanskan pappír,“ útskýrir Eygló. „Það verk var kveikjan að sýning- unni þá og einnig að þessu verki og vísar þannig óbeint í sýninguna.“ Verkið Staður á sér þannig fjögurra ára aðdraganda og segist Eygló að því leyti vera búin að loka ákveðnum hring. „Í verkið nota ég hluta af silkiþrykki sem tilheyrði vinnunni fyrir bókverkið og bætti við málverki og sérstöku upp- hengi. Þetta eru pappírsverk, málverk og silkiþrykk. Verkin eru 38 og hvert og eitt er einstakt. Uppbygging þeirra allra lýtur þó sömu lögmálum og endurtekningum.“ Nafnbótin kom til eftir að verkin voru tilbúin. „Ég sá að karakter þeirra var mis- munandi, þannig að eigendur velja verk sem kallar á þá, kallar kannski á stað innra með þeim. Uppbygging verksins rammar inn litasamspil sem ég upplifi sem táknmynd fyrir stað. Staður getur einnig vísað til þess að í dag er staður ekkert sjálfsagt mál fyrir fólk sem býr við óvissu. Þannig vísar titill verksins bæði inn á við og út á við og getur spegl- að mismunandi aðstæður.“ Bókverk í undirbúningi Það hefur verið nóg að gera hjá Eygló sem hefur verið með tvær einkasýn- ingar á árinu – annars vegar sýninguna Hleðsla-draumur í Gallerí Undirgöngum og hins vegar Í stærra samhengi í Lista- sal Mosfellsbæjar. Á báðum sýning- unum var hægt að handfjatla verkin og voru þau þannig að ákveðnu leyti ber- skjölduð, að sögn Eyglóar. „Viðtökurnar hafa, að því er ég best veit, verið ágætar,“ segir hún. „Báðar þessar sýningar voru staðsettar í almenningsrými og aðgengilegar fjöl- breyttum áhorfendahópi og einhver hluti þeirra ekkert sérstaklega áhuga- samir um myndlist, og skoðar hvað svo sem verður á vegi þeirra.“ Í dag er Eygló að undirbúa útgáfu bókverks en hún segir sýninguna Í stærra samhengi hafa verið eins konar rannsóknarstöð fyrir það. „Mér finnst spennandi að vinna með skala og til- vonandi bókverk verður hreyfiafl fyrir einkasýningu í Ásmundarsal á næsta ári,“ segir hún. „Bókverkið verður sýnt þar en ég mun sýna í allri byggingunni sem er mjög áhugavert og stórt verkefni. Þannig að ég er að skoða rými og er farin að pæla í og vinna fyrir þá sýningu.“ n Eygló afhjúpar Stað á Nýló Eygló segir fyrst og fremst heiður að vera valin vinalistamaður safnsins. MYND/SÓLVEIG M. JÓNSDÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 10. desember 2022 Tímamót 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.