Fréttablaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 83
Staður getur einnig vísað til
þess að í dag er staður
ekkert sjálfsagt mál fyrir
fólk sem býr við óvissu.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma,
systir, mágkona og frænka,
Ásdís Vébjörg Jónsdóttir
lést 8. nóvember. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Eiríkur Örn Guðmundsson Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir
og barnabörn
Sigurður Þ. Jónsson Fríða Ástvaldsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Jóhanna Svava Jónsdóttir
Kleppsvegi 10, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 29. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 16. desember klukkan 13.
Jóna Andrésdóttir, Edda Andrésdóttir, Gunnar Andrésson
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Michaelsson
lést á Landspítalanum Fossvogi
þann 29. nóvember.
Útför fer fram í Seljakirkju
þriðjudaginn 13. desember klukkan 15.
Benja Darayen
Guðrún Ósk Sigurðardóttir Kristján Kristjánsson
Guðmundur Helgi Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hallberg Svavarsson
tannsmíðameistari,
lést á líknardeild Landspítalans
30. nóvember. Útför hans fer fram frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 15. desember klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Ljósið.
Steinunn Guðbrandsdóttir
Þórey Hallbergsdóttir Bjarki Hallbergsson
Tinna Hallbergsdóttir Hallberg Daði Hallbergsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður og afa,
Alberts Guðmundssonar
verkfræðings.
Anna Þórunn Sveinsdóttir
Þór Aldan Rain
Barbara Inga Albertsdóttir
Anna Victoria og Elísabet Rúrí
Þökkum innilega samúðarkveðjur og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Jóhannesar Tómassonar
blaðamanns og fyrrverandi
upplýsingafulltrúa.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A4
Landspítalanum Fossvogi, fyrir einstaka umönnun
og hlýhug.
Málfríður Finnbogadóttir
Helgi Jóhannesson
Anna Jóhannesdóttir Brynjúlfur Jónatansson
Þórdís Jóhannesdóttir Brynjar Valþórsson
Jóhannes, Ísar Ágúst, Sara Björk, Einar Björn, Salvör
Móeiður, Elsa María, Valþór Hrafnkell og Eva Málfríður
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
Einar Gunnarsson
Gullsmára 10,
lést á líknardeild Landspítalans
þann 27. nóvember sl. Hann verður
jarðsunginn frá Lindakirkju í Kópavogi
þriðjudaginn 13. desember klukkan 13.00.
Matthildur S. Gunnarsson
Eva E. Gunnarsson, Cera Flynn
Leifur O’Gorman, Axel O’Gorman
Elsku hjartans eiginkona mín,
dóttir, mamma, tengdamamma
og amma okkar,
Halldóra Halla Jónsdóttir
Gröf 1, Hvalfjarðarsveit,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi miðvikudaginn 7. desember í faðmi ástvina.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
16. desember kl. 13.00.
Sigurbaldur Kristinsson
Jón Eiríksson Rut Hallgrímsdóttir
Guðný Elíasdóttir Jökull Helgason
Jón Hartmann Elíasson Hrafnhildur Kristinsdóttir
Hreinn Elíasson Kristín Jezorski
Marín Rut Elíasdóttir Sigurjón Ingi Úlfarsson
Stella Eyrún Sigurbaldursdóttir Arnar Þór Ólason
Sindri Már Sigurbaldursson Kristbjörg Víðisdóttir
og ömmugullin
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Olgeirsson
frá Húsavík,
Boðaþingi 8,
lést umvafinn ást og hlýju 2. desember sl.
á líknardeild LSH í Kópavogi. Útförin fer fram föstudaginn
16. desember klukkan 10.00 frá Digraneskirkju. Sérstakar
þakkir fær starfsfólk HERU og líknardeildar LSH í Kópavogi.
Hulda Salómonsdóttir
Björg Jónsdóttir Ásgeir Baldurs
Örvar Þór Jónsson Anna Margrét Svavarsdóttir
Særún Jónsdóttir Haukur Valgeir Magnússon
og barnabörn
Eygló Harðardóttir hefur verið
valin sem vinalistamaður
Nýlistasafnsins 2023.
arnartomas@frettabladid.is
Á hverju ári velur Nýlistasafnið vina-
listamann safnsins, sem fenginn er til
að skapa verk fyrir vini og verndara
safnsins. Listakonan Eygló Harðardóttir
varð fyrir valinu fyrir árið 2023 og mun
hún afhjúpa verk sitt á safninu klukkan
13 í dag.
„Mér finnst það fyrst og fremst heiður
að vera valin og það er ánægjulegt að
geta lagt safninu lið með því að vinna
verk fyrir það,“ segir Eygló um valið.
„Það má segja að þetta sé pantað verk og
það er unnið sérstaklega af þessu tilefni.“
Þótt margt um verkið sé enn á huldu
hefur verið greint frá heiti þess: Staður.
„Ég var með einkasýningu í Nýlista-
safninu 2018 og silkiprentaði þá bók-
verkið „Annað rými“ fyrir samnefnda
sýningu. Bókverkið var prentað á mjög
fallegan japanskan pappír,“ útskýrir
Eygló. „Það verk var kveikjan að sýning-
unni þá og einnig að þessu verki og vísar
þannig óbeint í sýninguna.“
Verkið Staður á sér þannig fjögurra
ára aðdraganda og segist Eygló að því
leyti vera búin að loka ákveðnum hring.
„Í verkið nota ég hluta af silkiþrykki
sem tilheyrði vinnunni fyrir bókverkið
og bætti við málverki og sérstöku upp-
hengi. Þetta eru pappírsverk, málverk
og silkiþrykk. Verkin eru 38 og hvert
og eitt er einstakt. Uppbygging þeirra
allra lýtur þó sömu lögmálum og
endurtekningum.“
Nafnbótin kom til eftir að verkin voru
tilbúin.
„Ég sá að karakter þeirra var mis-
munandi, þannig að eigendur velja verk
sem kallar á þá, kallar kannski á stað
innra með þeim. Uppbygging verksins
rammar inn litasamspil sem ég upplifi
sem táknmynd fyrir stað. Staður getur
einnig vísað til þess að í dag er staður
ekkert sjálfsagt mál fyrir fólk sem býr
við óvissu. Þannig vísar titill verksins
bæði inn á við og út á við og getur spegl-
að mismunandi aðstæður.“
Bókverk í undirbúningi
Það hefur verið nóg að gera hjá Eygló
sem hefur verið með tvær einkasýn-
ingar á árinu – annars vegar sýninguna
Hleðsla-draumur í Gallerí Undirgöngum
og hins vegar Í stærra samhengi í Lista-
sal Mosfellsbæjar. Á báðum sýning-
unum var hægt að handfjatla verkin og
voru þau þannig að ákveðnu leyti ber-
skjölduð, að sögn Eyglóar.
„Viðtökurnar hafa, að því er ég best
veit, verið ágætar,“ segir hún. „Báðar
þessar sýningar voru staðsettar í
almenningsrými og aðgengilegar fjöl-
breyttum áhorfendahópi og einhver
hluti þeirra ekkert sérstaklega áhuga-
samir um myndlist, og skoðar hvað svo
sem verður á vegi þeirra.“
Í dag er Eygló að undirbúa útgáfu
bókverks en hún segir sýninguna Í
stærra samhengi hafa verið eins konar
rannsóknarstöð fyrir það. „Mér finnst
spennandi að vinna með skala og til-
vonandi bókverk verður hreyfiafl fyrir
einkasýningu í Ásmundarsal á næsta
ári,“ segir hún. „Bókverkið verður sýnt
þar en ég mun sýna í allri byggingunni
sem er mjög áhugavert og stórt verkefni.
Þannig að ég er að skoða rými og er farin
að pæla í og vinna fyrir þá sýningu.“ n
Eygló afhjúpar Stað á Nýló
Eygló segir fyrst og fremst heiður að vera valin vinalistamaður safnsins.
MYND/SÓLVEIG M. JÓNSDÓTTIR
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 10. desember 2022 Tímamót 49