Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 90

Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 90
Erindi vEgna skyndilEgs barnsmissis Þriðjudaginn 13. desember n.k. kl. 20:00 í Grafarvogskirkju verður Hjalti Jón Sverrisson sjúkrahúsprestur með erindi fyrir foreldra/forráðamenn og fjölskyldur þeirra sem orðið hafa fyrir skyndilegum barnsmissi. Birta landssamtök voru stofnuð þann 7. desember 2012 og eru því 10 ára um þessar mundir. Allir velkomnir. Stjórn Birtu. www.birtalandssamtok.is BÆKUR Tól Kristín Eiríksdóttir Fjöldi síðna: 349 Útgefandi: JPV Kristján Jóhann Jónsson Skáldsagan Tól eftir Kristínu Eiríksdóttur er hagkvæmt „tól“ fyrir þá sem hafa gaman af að hugleiða bókmenntir. Þar er skrifað um ást og tryggð, svik og of beldi, skáldskap og heiðarleika, börn og fullorðna og síðast en ekki síst, fíkn og mann- gildi. Sagan er fagmannlega skrifuð og sýnir lesendum inn í ýmsa og mismunandi kima mannlífsins eins og títt er um þann skáldskap sem bestur er. Aðalpersónan Villa Dúadóttir kynnir í upphafi bókar heimilda- mynd sem hún hefur gert um hval- veiðimanninn Dimitri, náunga sem er ekki allur þar sem hann er séður, hvorki í lífi sínu né myndinni. Glöggur lesandi getur fljótlega séð að milli Villu og Dimitri eru snerti- f letir sem höfundur birtir okkur smám saman. Í heimildamynd sinni er Villa að nokkru leyti að fjalla um sjálfa sig þegar hún býr til myndina af Dimitri. Hún sneiðir hjá því nei- kvæðasta í fari hans og það kallast á við eyðurnar í sjálfsskilningi hennar. Eftir stendur hin eilífa spurning sem aldrei verður svarað: Að hve miklu leyti móta aðstæðurnar einstakl- inginn? Sá yðar sem syndlaus er Sögur eru tól sem við notum til þess að útdeila sekt og sakleysi og sögu- konan Villa getur ekki dæmt Dimitri. Hún þekkti hann þegar hann var ungur og saklaus og í myndinni sýnir hún hve möguleikalaus hann var frá upphafi. Ef hún dæmir hann verður hún að dæma sjálfa sig. Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum, segir í annarri og eldri bók. Meginvandi Villu og Dimitri er fíknin. Hjá Dimitri eru aðstæður svo herfilegar alveg frá uppvexti að erfitt er að ímynda sér að hann eigi völ á annarri leið en þeirri sem hann fer. Það er ekki í boði fyrir fólk eins og hann og móður hans að verða „höfundar eigin lífs“ í jákvæðum skiln- ingi. Skáldsaga Kristínar lokar ekki með svörum, opnar frekar fyrir frjóar vangaveltur um örlög mannanna. Skáldskapur sem valdatæki Áleitinn þáttur í sögunni Tól er hlut- skipti barna sem foreldrar svíkja. Mikil sögumannsfærni birtist í því að geta sagt sögur foreldra og barna af jafn mikilli hluttekningu og raun ber vitni, án þess að útdeila sleggju- dómum eða „missa sig“ á lyklaborð- inu. Einungis úrvalshöfundar geta sagt frá svo viðkvæmum málum af stillingu. Svik við lítil börn eru með því ljótasta sem fólk getur gert og verði sannleikurinn óbærilegur er alltaf hægt að ljúga. Það kemur skýrt fram í sögu bæði Villu Dúadóttur og Dimitri. Hann hefur brugðist við því með útsmognum lygavef og það gerir Villa líka, sviðsetur bæði hann og sig og fegrar. Persónur í sögum Krist- ínar Eiríksdóttur hafa löngum verið furðu slyngar við þá iðju. Kannski hugsar nú einhver um sjálfsblekkingar eða lygi en við búum öll við persónulega sögu sem við höfum samið, eða látið aðra semja fyrir okkur. Skáldskapurinn er valdatæki. Hann er að því leyti eins og spegill stjúpunnar í ævin- týrinu um Öskubusku. Hann getur sagt okkur hver er fegurst/ur, hver sveik ekki barnið sitt og hver er ekki fíkill. n NIÐURSTAÐA: Frábær skáldsaga þar sem víðsýnn höfundur horfir yfir mannlífið. Faglega skrifuð, snjöll og skemmtileg. Fólkið og fíknin tsh@frettabladid.is Aðventuhátíð Boðunarkirkjunnar í Hafnarfirði fer fram á morgun, sunnudaginn 11. desember. Mikið verður um dýrðir en þetta er í fyrsta sinn sem Boðunarkirkjan heldur aðventuhátíð. Fram koma Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona, Kjartan Ólafsson píanóleikari og sögumaður, Anna Sigríður Helgadóttir söngkona, Maríanna Másdóttir söngkona og þverflautuleikari, Jóhann Grétars- son söngvari, sem einnig mun lesa upp ljóð, Alrún María Skarphéðins- dóttir píanóleikari og hljómsveit kirkjunnar, en hana skipa Kjartan Ólafsson, Jóhann Grétarsson, Kon- ráð Óli Fjelsted og Geir Jón Grettis- son. Magnea Sturludóttir forstöðu- maður stendur fyrir bænastund og kynnir á aðventuhátíðinni er Þórdís Malmquist. Hátíðin hefst klukkan 16.00 í Boðunarkirkjunni að Álfaskeiði. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis. n Fyrsta aðventuhátíð Boðunarkirkjunnar Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöng- kona kemur fram á aðventuhátíðinni. Guðmundur Heiðar Helgason gefur í ár út sína fyrstu barna- bók. Söguna skrifaði hann fyrir tuttugu árum og vann fyrir hana verðlaun í smá- sagnakeppni í Smáraskóla þar sem hann var í grunnskóla. Bókin heitir Herra Skruddi og týnda galdradótið. lovisa@frettabladid.is „Sagan lá í geymslu ásamt gömlu skóladóti í rúm 20 ár, þar til hún skaut aftur upp kollinum fyrr á þessu ári. Við Tinna, konan mín, erum dugleg að lesa fyrir dóttur okkar og ég hugsaði hvað væri gaman að sjá söguna um Herra Skrudda skreytta eins og tíu ára Gummi hafði ímyndað sér. Afi minn heitinn, Guðjón Sveinsson, gaf út fjölda barnabóka yfir ævina sína og mig langaði alltaf til þess að feta í hans fótspor,“ segir Guðmundur, sem ákvað að bera söguna undir útgefanda sem hreifst af sögunni. „Þá var ekki aftur snúið.“ Guðmundur segir að þegar hann hóf að koma sögunni í bókarform hafi hann þurft að breyta ýmsu í textanum sem var barnalegt en að það hafi verið sumt sem hann vildi halda. „Þetta er tímalaust ævintýri en svo eru lítil móment í sögunni sem eru svo hversdagsleg. Herra Skruddi þarf á einum stað að senda son sinn til barnapíu og hringir í ömmu sína og það er svo fyndið að ég hafi verið að hugsa um þetta sem tíu ára barn. Það er eitthvað sem ég hélt í bókinni úr sögunni,“ segir Guðmundur. Gat ekki hugsað sér neinn annan Myndskreytingarnar í bókinni eru eftir myndlistarmanninn David Sopp, en hann og Guðmundur unnu saman að herferð fyrir Strætó þegar Guðmundur vann þar sem upp- lýsingafulltrúi. David Sopp er vel þekktur fyrir bók sína „Safe baby handling tips“ þar sem foreldrum eru gefin misgóð ráð um það hvern- ig eigi að hugsa um börn. „Guðmundur sendi mér póst og sagði mér frá bókinni og spurði hvort við ættum að gera eitthvað með hana. Ég elskaði að hann hugsaði til mín og var ekki lengi að samþykkja það,“ segir David og að hann hafi alltaf verið ánægður með samstar f þeirra tveggja og að það hafi verið mjög auðvelt að segja já. Hann segir að strax hafi hann ákveðið að myndirnar ættu að vera þannig að fólk upplifði annan tíma og ævintýralegan stað. „Þetta er ástríðuverkefni og það verður auðvitað enginn ríkur af þessu,“ segir Guðmundur, og að hann hafi glaðst svo við að fá já frá David, því hann hafi aldrei séð neinn annan fyrir sér í verkefnið. „Bókin væri ekki eins án hans. Hún lítur æðislega út,“ segir hann. Hafa aldrei hist Þrátt fyrir að hafa unnið saman að öllum þessum verkefnum hafa þeir David og Guðmundur aldrei hist í persónu, en David stefnir á heim- sókn á næsta ári. „Ég ætlaði að koma 2020 en svo var Covid og svo bara hefur það ekki gengið upp. En ég mun komast til Íslands á endanum,“ segir David og hlær. Spurðir fyrir hverja bókin er segir Guðmundur að börn á öllum aldri ættu að geta notið hennar en að lík- lega hafi börn frá f imm til tíu ára mest g a m a n a f henni. „Ég sý ndi syni mínum hana og hann elsk aði ha na . Hann er 22 ára,“ segir David og þeir hlæja báðir. n Gefur út barnabók sem hann skrifaði tíu ára Guðmundur Heiðar Helgason fékk verðlaun fyrir söguna fyrir 24 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI David Sopp teiknaði myndirnar. MYND/AÐSEND MENNING FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.