Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 98

Fréttablaðið - 10.12.2022, Side 98
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is *Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti. Gildir ekki ofan á önnur tilboð, Simba eða af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma. AF ÖLLUM VÖRUM* LÝKUR Á MÁNUDAG www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN EKKI MISSA AF ÞESSU REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði ninarichter@frettabladid.is Hönnuðurinn Arnór Bogason bað á dögunum gervigreindarforritið ChatGPT að yrkja fyrir sig jólalaga- texta á íslensku. „Fólk er mikið að tjá sig um jólalög á Twitter þessa dagana á sama tíma og ChatGPT fór í loftið. Mér datt hreinlega í hug að sameina þetta tvennt og biðja snjall- mennið að semja fyrir mig jólalag á íslensku,“ segir Arnór. Jólaþess er nýyrði sem kemur fyrir í textanum. Aðspurður hvort að Arnór hafi séð það áður, segir hann svo ekki vera. Varðandi nafn á ljóðið svarar hann að Jólahendur höndum gæti verið ágætis nafn. n Snjallmenni yrkir um jólin Jólahendur höndum Jólin koma snemma Hérna í bænum Allir eru glaðir Og ljúfir að sjá Kertaljósin líða Á björtum jólamönnum Og allir eru að syngja Með jólahendur höndum Jólin eru hér Og jólasveinar Ertu til í jólatrénu Eða hjá okkur hér Það er eins og himinn Á jóladag Allt er svo fallegt Og fjölskyldan saman Jólin eru hér Og jólahamingjan Ég hlakka til að syngja Með þér á jólatónleikum Jólin eru hér Það er tími til að gefast Og njóta jólaþess Með fjölskyldu og vinum Ilmur Kristjánsdóttir hefur ekki áhuga á stjörnustjarfa á sviðinu í Hörpu í kvöld. Hún segist reyna að minnka við- burðinn í huganum enda sé um gríðarlega stóran viðburð að ræða. Þó líði henni alltaf vel á sviðinu. ninarichter@frettabladid.is Evrópska kvikmyndaakademían hefur veitt Evrópsku kvikmynda- verðlaunin árlega frá árinu 1988. Verðlaun eru veitt í 19 f lokkum, og eins og nafnið gefur til kynna, bundin við evrópska kvikmynda- gerð og evrópska framleiðendur, leikstjóra og leikara. Þetta er í fyrsta sinn sem verð- launin eru afhent á Íslandi. Ilmur Kristjánsdóttir og Hugleikur Dags- son eru kynnar á sviði Hörpu í kvöld og er von á 700 erlendum gestum til landsins og 100 meðlimum heims- pressunnar til viðbótar. Aðspurð hvernig tilstandið legg- ist í Ilmi, svarar hún. „Við Hulli erum alltaf að reyna að minnka þetta í huganum. Svo mætum við í Hörpu og þá er komið fleira fólk og f leiri tæki og maður áttar sig á því hvað þetta er stórt,“ segir hún. „Við erum þannig að reyna að minnka þetta og ímynda okkur að við séum að skemmta á árshátíð og að þetta skipti ekki svo miklu máli,“ segir leikkonan og hlær. „En það er alltaf eins að koma upp á svið. Maður situr úti í sal og hugs- ar, uh – hvernig ætli sé að vera uppi á þessu sviði? Svo kemur maður upp á svið og þá á maður bara heima þar,“ segir Ilmur. Aðspurð um helstu áskoranir, til dæmis hvort að öryggisgæslan á svæðinu sé ströng, svarar hún: „Það er öryggisgæsla, auðvitað átti maður von á því líka. En það er verið að passa allt og manni líður bara vel með það.“ Margir verða stjörnustjarfir í kringum ofurfræga einstaklinga. Ilmur kveðst þó ekki kvíða slíku. „Ég veit það ekki. Það verður bara að koma í ljós. Síðan er bara gaman að finna að við erum ein lítil evr- ópsk kvikmyndafjölskylda. Ég held að sú tilfinning eigi eftir að koma mörgum á óvart, hvað þetta er lítið og heimilislegt,“ segir Ilmur. Leikkonan vill ekki gefa upp neitt um eftirlætismynd í hópi tilnefndra. „Ég má ekki segja það. En ég held að allir haldi svolítið upp á Triangle of Sadness,“ svarar hún. Verðlaunin eru afhent í 35. sinn um helgina. Til ársins 1997 voru verðlaunin kölluð Felix-verð- launin, með tilvísun í verðlauna- gripinn sem var seinna skipt út. Síðast voru verðlaunin afhent 11. desember 2021 í Berlín og í f lokki bestu myndar bar sigur af hólmi Quo Vadis, Aida. Anthony Hopkins fékk aðalverðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki og Jasna Đuričić fékk verðlaun sem besta leikkonan. Rússneskum kvikmyndum hefur verið úthýst frá verðlaununum í ár sem viðbragð við innrásinni í Úkra- ínu. Nokkrar tilnefndra mynda tak- ast á við stef sem tengjast stríði og heimsfaraldri. n Lítil og heimilisleg evrópsk kvikmyndafjölskylda Ilmur Kristjánsdóttir og Hugleikur Dagsson kynna af sviðinu á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum í Hörpu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON „Ég er með þrjár fréttir sem eru algjörlega fréttir vikunnar,“ segir Aðalsteinn. „Númer eitt er stóra myndbanda- málið hjá slökkviliðinu á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta hefur tekið yfir alla umræðu og sú staðreynd að það séu einhverjir millistjórn- endur hjá slökkviliðinu sem þurfa að kaupa eitthvað Onlyfans vídjó til að bregðast við einhverri nafnlausri ábendingu, hlýtur að vera algjört einsdæmi. Athyglin sem þetta hefur vakið setur í samhengi hvað það er sem vekur áhuga fólks. Á sama tíma eru risastórar kjaraviðræður í gangi á Íslandi sem féllu, í umræðunni, algjörlega í skuggann af þessu dóna- vídjói. Númer tvö eru vinslitin í verka- lýðsfélögunum. Það eru bara ein- hverjar vikur síðan það birtust air- brushaðar myndir af leiðtogunum þremur, Vilhjálmi, Sólveigu og Ragnari. Nú virðist bara búið að stroka Villa út. Ég held að það sé miklu stærri frétt heldur en við áttum okkur endilega á núna. Af því að þau þrjú hafa algjörlega leitt alla umræðu um baráttu verkalýðshreyfingarinnar í heild. Ég held að áhrifa þessara vin- slita muni gæta lengi. Svo er það þriðja sem tengist þessu líka: Það er hækkun á húsaleigu hjá henni Brynju Bjarna- dóttur. Þetta af hjúpaði algjörlega fyrir öllum hver staðan í þessu þ j ó ð f é l a g i e r . Þ e i r sem eiga, þeir eiga ros a leg a mikið og þeir sem eiga ekki neitt geta aldrei eignast neitt. Í þessu máli kjarnaðist margra ára umræða um það hvernig samfélagið er að þróast. Og svona fréttir sem vekja upp til- finningu eða mannlegan skilning á virkni s a m f é l a g s i n s , þær er u svo stórar. Þetta var klárlega þannig frétt.“ n Fordæmalaust mál dónamyndbands n Frétt vikunnar Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni 64 Lífið 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.