Fréttablaðið - 10.12.2022, Síða 98
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
*Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti.
Gildir ekki ofan á önnur tilboð, Simba eða af
sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður
virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma.
AF ÖLLUM
VÖRUM*
LÝKUR Á MÁNUDAG
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
EKKI MISSA AF
ÞESSU
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
ninarichter@frettabladid.is
Hönnuðurinn Arnór Bogason bað
á dögunum gervigreindarforritið
ChatGPT að yrkja fyrir sig jólalaga-
texta á íslensku. „Fólk er mikið að
tjá sig um jólalög á Twitter þessa
dagana á sama tíma og ChatGPT fór
í loftið. Mér datt hreinlega í hug að
sameina þetta tvennt og biðja snjall-
mennið að semja fyrir mig jólalag á
íslensku,“ segir Arnór.
Jólaþess er nýyrði sem kemur
fyrir í textanum. Aðspurður hvort
að Arnór hafi séð það áður, segir
hann svo ekki vera. Varðandi nafn
á ljóðið svarar hann að Jólahendur
höndum gæti verið ágætis nafn. n
Snjallmenni yrkir um jólin
Jólahendur höndum
Jólin koma snemma
Hérna í bænum
Allir eru glaðir
Og ljúfir að sjá
Kertaljósin líða
Á björtum jólamönnum
Og allir eru að syngja
Með jólahendur höndum
Jólin eru hér
Og jólasveinar
Ertu til í jólatrénu
Eða hjá okkur hér
Það er eins og himinn
Á jóladag
Allt er svo fallegt
Og fjölskyldan saman
Jólin eru hér
Og jólahamingjan
Ég hlakka til að syngja
Með þér á jólatónleikum
Jólin eru hér
Það er tími til að gefast
Og njóta jólaþess
Með fjölskyldu og vinum
Ilmur Kristjánsdóttir hefur
ekki áhuga á stjörnustjarfa á
sviðinu í Hörpu í kvöld. Hún
segist reyna að minnka við-
burðinn í huganum enda sé
um gríðarlega stóran viðburð
að ræða. Þó líði henni alltaf
vel á sviðinu.
ninarichter@frettabladid.is
Evrópska kvikmyndaakademían
hefur veitt Evrópsku kvikmynda-
verðlaunin árlega frá árinu 1988.
Verðlaun eru veitt í 19 f lokkum,
og eins og nafnið gefur til kynna,
bundin við evrópska kvikmynda-
gerð og evrópska framleiðendur,
leikstjóra og leikara.
Þetta er í fyrsta sinn sem verð-
launin eru afhent á Íslandi. Ilmur
Kristjánsdóttir og Hugleikur Dags-
son eru kynnar á sviði Hörpu í kvöld
og er von á 700 erlendum gestum til
landsins og 100 meðlimum heims-
pressunnar til viðbótar.
Aðspurð hvernig tilstandið legg-
ist í Ilmi, svarar hún. „Við Hulli
erum alltaf að reyna að minnka
þetta í huganum. Svo mætum við í
Hörpu og þá er komið fleira fólk og
f leiri tæki og maður áttar sig á því
hvað þetta er stórt,“ segir hún. „Við
erum þannig að reyna að minnka
þetta og ímynda okkur að við séum
að skemmta á árshátíð og að þetta
skipti ekki svo miklu máli,“ segir
leikkonan og hlær.
„En það er alltaf eins að koma upp
á svið. Maður situr úti í sal og hugs-
ar, uh – hvernig ætli sé að vera uppi á
þessu sviði? Svo kemur maður upp á
svið og þá á maður bara heima þar,“
segir Ilmur.
Aðspurð um helstu áskoranir,
til dæmis hvort að öryggisgæslan
á svæðinu sé ströng, svarar hún:
„Það er öryggisgæsla, auðvitað átti
maður von á því líka. En það er verið
að passa allt og manni líður bara vel
með það.“
Margir verða stjörnustjarfir í
kringum ofurfræga einstaklinga.
Ilmur kveðst þó ekki kvíða slíku.
„Ég veit það ekki. Það verður bara
að koma í ljós. Síðan er bara gaman
að finna að við erum ein lítil evr-
ópsk kvikmyndafjölskylda. Ég held
að sú tilfinning eigi eftir að koma
mörgum á óvart, hvað þetta er lítið
og heimilislegt,“ segir Ilmur.
Leikkonan vill ekki gefa upp neitt
um eftirlætismynd í hópi tilnefndra.
„Ég má ekki segja það. En ég held
að allir haldi svolítið upp á Triangle
of Sadness,“ svarar hún.
Verðlaunin eru afhent í 35. sinn
um helgina. Til ársins 1997 voru
verðlaunin kölluð Felix-verð-
launin, með tilvísun í verðlauna-
gripinn sem var seinna skipt út.
Síðast voru verðlaunin afhent 11.
desember 2021 í Berlín og í f lokki
bestu myndar bar sigur af hólmi
Quo Vadis, Aida. Anthony Hopkins
fékk aðalverðlaun sem besti leikari
í aðalhlutverki og Jasna Đuričić fékk
verðlaun sem besta leikkonan.
Rússneskum kvikmyndum hefur
verið úthýst frá verðlaununum í ár
sem viðbragð við innrásinni í Úkra-
ínu. Nokkrar tilnefndra mynda tak-
ast á við stef sem tengjast stríði og
heimsfaraldri. n
Lítil og heimilisleg evrópsk
kvikmyndafjölskylda
Ilmur Kristjánsdóttir og Hugleikur Dagsson kynna af sviðinu á Evrópsku
kvikmyndaverðlaununum í Hörpu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
„Ég er með þrjár fréttir sem eru
algjörlega fréttir vikunnar,“ segir
Aðalsteinn.
„Númer eitt er stóra myndbanda-
málið hjá slökkviliðinu á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta hefur tekið
yfir alla umræðu og sú staðreynd
að það séu einhverjir millistjórn-
endur hjá slökkviliðinu sem þurfa
að kaupa eitthvað Onlyfans vídjó til
að bregðast við einhverri nafnlausri
ábendingu, hlýtur að vera algjört
einsdæmi.
Athyglin sem þetta hefur vakið
setur í samhengi hvað það er sem
vekur áhuga fólks. Á sama tíma eru
risastórar kjaraviðræður í gangi
á Íslandi sem féllu, í umræðunni,
algjörlega í skuggann af þessu dóna-
vídjói.
Númer tvö eru vinslitin í verka-
lýðsfélögunum. Það eru bara ein-
hverjar vikur síðan það birtust air-
brushaðar myndir af leiðtogunum
þremur, Vilhjálmi, Sólveigu og
Ragnari.
Nú virðist bara búið að stroka Villa
út. Ég held að það sé miklu stærri
frétt heldur en við áttum okkur
endilega á núna. Af því að þau þrjú
hafa algjörlega leitt alla umræðu um
baráttu verkalýðshreyfingarinnar í
heild. Ég held að áhrifa þessara vin-
slita muni gæta lengi.
Svo er það þriðja sem
tengist þessu líka: Það
er hækkun á húsaleigu
hjá henni Brynju Bjarna-
dóttur. Þetta af hjúpaði
algjörlega fyrir öllum hver
staðan í þessu
þ j ó ð f é l a g i
e r . Þ e i r
sem eiga,
þeir eiga
ros a leg a
mikið og þeir sem eiga ekki
neitt geta aldrei eignast neitt.
Í þessu máli kjarnaðist margra
ára umræða um það hvernig
samfélagið er að þróast. Og
svona fréttir sem vekja upp til-
finningu eða mannlegan
skilning á virkni
s a m f é l a g s i n s ,
þær er u svo
stórar. Þetta var
klárlega þannig
frétt.“ n
Fordæmalaust mál dónamyndbands
n Frétt vikunnar
Aðalsteinn Kjartansson,
blaðamaður á Stundinni
64 Lífið 10. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ