Stétt með stétt

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stétt með stétt - 01.05.1939, Qupperneq 16

Stétt með stétt - 01.05.1939, Qupperneq 16
Málfundafélagið »Óðinn«, félag Sjálfstæðisverkamanna i. Hverjar voru hinar raunverulegu or- sakir þess, að Málfundafélagið Óðinn var stofnað ? Þannig munu margir spyrja, sem láta sér annt um stefnu Sjálfstæðisflokksins í þjóðmálum okk- ar Islendinga, en standa að öðru leyti utan við stéttarsamtök verkamanna. En til þess að svara spurningu sem þessari, svo að fullnægjandi sé, yrði óhjákvæmi- legt að rekja sögu verkalýðshreyfing- arinnar frá því að hún hófst hér á landi og fram á þennan dag. Ætla ég mér ekki þá ofraun að segja þá sögu í stuttri grein, en læt nægja að taka fram eftirfarandi: Hið upprunalega takmark með stofn- un hinna mörgu og margvíslegu verka- lýðsfélaga hér á landi var að sameina alla verkamenn til varnar hagsmunum þeirra innan þjóðfélagsins, meðal ann- ars með því að berjast fyrir sanngjörn- um og viðunanlegum vinnulaunum og bættum atvinnuskilyrðum. Grundvall- aratriði verkalýðssamtakanna áttu því ekkert skylt við stjórnmálalega flokka- drætti né pólitíska valdastreitu ein- stakra manna. Verkamenn hafa, eins og raunar allar aðrar stéttir í landinu, skipzt mjög í flokka um hinar ýmsu þjóðmálastefnur landsins. I þeim efn- um gat því ekki um nein samtök eða einn vilja verið að ræða; öll stjórnmála- barátta innan vébanda verkalýðsins hlaut því að leiða til þess eins, að tvístra verkalýðnum í hagsmunabaráttu hans. Nú er það hins vegar kunnugra en frá þurfi að segja, að á síðari árum hafa Sigurður Halldórsson. risið hér upp ýmsir stjórnmálaflokkar, sem bundið hafa tilveru sína við hags- muni einstakra stétta þjóðfélagsins. Meðal annars hafa undanfarin níu ár verið hér starfandi tveir stjórnmála- flokkar, sem telja sig eingöngu starfa með hagsmuni verkamanna fyrir aug- um. Þetta hefir leitt til þess, að margir af leiðandi mönnum þessara flokka hafa náð því að tryggja sér fótfestu innan verkalýðssamtakanna, þó að þeir að öðru leyti stæðu á öndverðum meið við verkamenn í hagsmunabaráttunni. Á mjög skömmum tíma hafa hinir svokölluðu stéttarflokkar náð að sá ill- gresi haturs og öfundar ekki aðeins milli sveitafólksins annars vegar og kaupstaðarbúa hins vegar, heldur einn- ig milli einstaklinganna í stéttarfélög- unum, sem hljóta þó að hafa sömu hags- 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Stétt með stétt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stétt með stétt
https://timarit.is/publication/1741

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.