Stétt með stétt - 01.05.1939, Side 17
muna að gæta. Hinni nauðsynlegu ein-
ingu verkalýðssamtakanna hefir þann-
ig verið fórnað á altari flokkshagsmuna
og pólitískrar valdastreitu einstakra
manna. Þeir menn, sem þannig hafa
farið að ráði sínu, hafa árum saman
reynt að telja verkamönnum trú um
það, að Sjálfstæðisflokkurinn væri
verkalýðsfjandsamlegur auðvaldsflokk-
ur, vegna þess að hann hefir haldið því
fram, að allar stéttir í þjóðfélaginu ættu
að vinna í bróðurlegri einingu að hin-
um sameiginlegu vandamálum íslenzku
þjóðarinnar. Af sömu ástæðum hafa
sjálfstæðisverkamenn verið hundeltir
innan sinna eigin vébanda af hinum
hálaunuðu erindrekum erlendra öfga-
flokka. Verkalýðssamtökin voru sá vett-
vangur, sem þessir menn höfðu valið
sér til þess að tryggja sér valdatöku
sína á Islandi. Fyrir þessi þjóðfélags-
legu mein varð að ná áður en í óefni
var komið.
Af þessum ástæðum vaknaði sú spurn-
ing hjá mér, eftir að ég rataði af þeim
villigötum, sem ég hafði lengi verið á,
hvort ekki mundi gerlegt að sameina þá
verkamenn, sem fylgdu stefnu Sjálf-
stæðisflokksins í þjóðmálum og treyst-
ust til þess að taka upp ótrauða baráttu
gegn þeim utanaðkomandi skaðræðis-
öflum, sem því miður allt of lengi höfðu
fengið að leika lausbeizluð innan sam-
taka hins vinnulúna verkamanns. Ég
ákvað því að reyna, hvort ekki væru
möguleikar fyrir hendi að stofna fé-
lag með þeim sjálfstæðisverkamönnum,
sem ég gat náð til. Átti ég síðan tal um
þessa fyrirætlun mína við ýmsa ágæta
Sjálfstæðismenn úr hópi verkamanna,
sem góðfúslega buðust til þess, að leggja
fram krafta sína til styrktar þessu máli.
Þann 24. marz s.l. ár var svo fundur
haldinn í Varðarhúsinu með liðlega
tuttugu verkamönnum, til þess að ræða
um endanlega stofnun félagsins. Eftir
að farið höfðu fram nokkrar umræður
um málið, var samþykkt að kjósa
þriggja manna undirbúningsnefnd, er
semja skyldi tillögur um lög félagsins
og því næst boða til stofnfundar þess.
í nefnd þessa voru kosnir: Sigurður
Halldórsson, form., Magnús Ólafsson og
Sigurður Guðbrandsson. — Nefndin
lauk störfum á mjög skömmum tíma,
enda- boðaði hún til stofnfundar félags-
ins að fimm dögum liðnum, eða 29.
marz 1938.
Á stofnfundi félagsins mættu 36
verkamenn, en í dag skiptir tala félags-
manna hundruðum. Og þó vantar mik-
ið á að allir þeir verkamenn og sjómenn,
sem fylgja stefnu Sjálfstæðisflokksins,
hafi látið innrita sig í Málfundafélagið
Óðinn. En vonandi láta þeir sig ekki
vanta mikið lengur í hópinn. — Á þess-
um fundi voru lög félagsins samþykkt
og kosin stjórn til næsta aðalfundar, er
haldinn skyldi í janúar 1939. í stjórn
félagsins voru þessir menn kosnir:
Sigurður Halldórsson, form.,
Magnús Ólafsson, varaform.,
Hans A. Guðmundsson, ritari,
Ingvi Hannesson, gjaldkeri, og
Sigurður Guðbrandsson, meðstj.
En samkvæmt tilmælum Hans A. Guð-
mundssonar var hann leystur frá stjórn-
arstörfum eftir einn mánuð, en í hans
stað kom Axel Guðmundsson og gegndi
hann síðan ritarastörfum félagsins til
næsta aðalfundar.
II.
I þessari grein gefst ekki tækifæri til
þess, að lýsa starfsemi Málfundafélags-
3