Stétt með stétt - 01.05.1939, Síða 22

Stétt með stétt - 01.05.1939, Síða 22
kaup. Óðinn lítur svo á, að betri sé samúð og samvinna milli verkamanna og atvinnuveitenda, heldur en sundrung og illvilji. Óðinn lítur svo á, að verka- menn og atvinnurekendur séu samstarfs- menn með fullkominni verkaskiptingu í framleiðslunni. Ef öðrumaðilanum vegni vel, þá eigi hinum líka að vegna vel. Og ef miður gangi hjá öðrum, þá eigi hinn að hjálpa til eftir getu. 3. Húsnæðismál: Óðinn vonast til þess, að horfið verði að byggingu smárra, heppilegra húsa fyrir verka- menn, sem þeir geti eignazt sjálfir. Hús- in verða að vera sæmileg en ódýr, og góð lánskjör, líkt og var með hugmynd- inni um byggingarfélag Sjálfstæðis- verkamanna. Verkamannabústaðir þeir, sem reistir hafa verið, hafa reynzt of dýrir í stofnkostnaði og allt of dýrir í rekstri, svo verkamenn geta ekki notið þeirra. Verkamenn eru mótfallnir póli- tískum leigukassabyggingum í fjárrétt- arstíl. Þeir vilja vera frjálsir í sínu eig- in húsi, þó lítið sé. 4. 'Verzlunarmál. Óðinn vill alger- lega frjálsa verzlun. Hann vill samvinnu við smákaupmenn, ef þeir sýna sann- girni í viðskiptum. Óðinn er andvígur sérréttindum kaupfélaganna. Og þeim kaupfélögum, sem eru í höndum kom- múnista, vill hann berjast á móti, og eng- in skipti við þau hafa. 5. Útgerð: Óðinn hefir hug á því, að gera tilraun til stofnunar útgerðar með stórum Dieselvélaskipum. Hefir verið rætt um það, að stofnað væri hlutafélag með þátttöku Óðins, félags- manna hans og annara Sjálfstæðis- manna. Hefir komið fram sú hugmynd, að ágóði sá, er kynni að verða af sam- komum okkar 1. maí nú og hér eftir, renni allur til slíkrar útgerðar. Óðinn lítur svo á, að þjóðin öll verði að starfa með óbiiandi kjarki að hverskonar fram förum, hvernig svo sem útlitið er, og að nú sé tími til að sækja djarft fram. Bar- lómur og kyrrstaða er algerlega and- stæð Óðinsmönnum. 6. Garðrækt. Óðinn hefir mikinn hug á að efla garðrækt, sem hann lítur á bæði sem hagsmunamál og heilbrigð- ismál. En Óðinn bendir á, að heppileg garðlönd vantar, þó þau séu næg í bæj- arlandinu. Og garðlöndin eru allt of hátt leigð. Það er beinn hagur fyrir bæjar- félagið, að reykvískir verkamenn fram- leiði sem mest af grænmeti, því ekki þarf að láta peninga út úr bænum fyrir það, sem þeir framleiða. 7. Óðirrn hefir mikinn hug á að gefa út blað til að túlka áhugamál sín. Hann sér líka nauðsyn þess, að berjast gegn undirróðri kommúnista og öllu þeirra eyðileggingarstarfi. Verkamönnum er nauðsynlegt að eiga sitt eigið blað, til að geta leiðrétt hverskonar misskilning, sem fram getur komið. 8. Menntun: Verkamenn æskja menntunar, sem þeir flestir hafa farið á mis við. Þeim er ljóst, að menntun er máttur, og því meiri menntun sem þeir geta öðlazt, þess færari eru þeir til að inna af hendi hlutverk sitt í þjóðfélag- inu, sér og þjóðinni til blessunar. Óð- insmenn hafa hug á, að fá góða fræði- menn til að halda fyrirlestra fyrir sig og aðra verkamenn, og eins aðra þá fræðslu, sem ekki kostar mikið fé eða tíma. En Óðinn er andstæður þeirri sníkjumenning, sem fyrir áhrif komm- únista hefir fest hér ískyggilegar ræt- ur, þá menning, sem elur upp í ungling- unum fyrirlitning á vinnu. 9. ÞegnskylcLuvinna og unglingarnir: Óðinn lítur svo á, að hér, í hinu nær ó- 8

x

Stétt með stétt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stétt með stétt
https://timarit.is/publication/1741

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.