Stétt með stétt - 01.05.1939, Side 30

Stétt með stétt - 01.05.1939, Side 30
barnanna, sem alast upp á mölinni og aldrei hafa tækifæri til að kynnast þeim leyndardómum, sem dvöl í íslenzkri sveit að vor- eða sumarlagi opnar mann- legri sál, — og aldrei fá að teyga hið tæra loft hinna íslenzku dala. — Þessi börn fara á mis við hin djúptæku áhrif, sem mörgum manninum hafa verið ar- ineldur til æfiloka. I Sjálfstæðisflokknum eru hinir fá- tækustu borgarar þjóðfélagsins, ekki síður en hinir ríku. Þeirra börn eiga rétt til þess, ekki síður en önnur, að þeim sé opnaðar leiðir að þeim lind- um, sem hverjum manni eru dýrmæt- astar, hvort sem um andlegan eða lík- amlegan þroska er að ræða. Hver leið verður valin til að verja því fé, sem inn kann að koma, fátækum verkamönnum og fjölskyldum þeirra til góða, fer eftir því, hve einhuga Reyk- víkingar verða um það að leggja því máli lið. Ég hefi hallazt að þeirri hugmynd, að Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér fyr- ir fjársöfnun 1. maí ár hvert, í því skyni að koma upp sumarheimilum í fegurstu sveitum landsins fyrir börn verka- manna. Slík heimili eru nokkur til nú þegar. En þau fullnægja hvergi þörf- inni, og henni verður kannske aldrei fullnægt. En því fleiri sem þau verða, því færri mannsefni kunna að fara for- görðum. Og okkar litla og fátæka þjóð- félag hefir ekki efni á því, að nokkurt þeirra fari það. Hver veit, hversu mörg mannsefni drukkna nú innan hins þrönga sjón- deildarhrings götunnar. Hver veit, hve- nær þar er að finna lítinn dreng eða litla stúlku, sem eiga fólginn í sér hæfi- leikann til að fletta blaði í sögu þjóðar- innar, ef sjóndeildarhringur þeirra yrði víkkaður, áður en þessi hæfileiki hefir orðið götunni að bráð. Sjálfstæðismenn og konur! Hugsið til þessara barna, og einkum nú í dag. Leggið fram ykkar skerf til þess, að hægt verði að gefa sem flestum þeirra tækifæri — á einhvern hátt — til að komast burtu af götunni — út í sól- skinið. Andrés G. Þormar. 16

x

Stétt með stétt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stétt með stétt
https://timarit.is/publication/1741

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.