Stétt með stétt - 01.05.1941, Side 21
STÉTT MEÐ STÉTT
17
greina hana og hrista, því sandur var
í henni og oft ábótavant um fleira.
Petta var um aldamótin og kaupið
var 15 au. um tímann fyrir konur
og 25 au. fyrir karla. Eitt sinn er
Tryggvi gamli Gunnarsson hafði um-
fcjón með því verki er vioí unnum að,
hélt hún áfram, benti Tryggvi karl-
mönnum á það, að við konurnar vær-
um handfljótari við fiskinn en þeir,
því verkin sýndu merkin og hækkaði
kaupið okkar upp í 17 au. og þótti
það ekki lítil búbót, því þá var hver
eyrir hnitmiðaður og peningar mjög
af skornum skammti manna á meðal
og mikils virði«.
Mér eru minnisstæðar margar eyr-
arvinnukonur er bárui kola og salt-
pokana á bakinu og gáfu körlunum
þar ekkert eftir, þá voru þær ekkí
slakari við vatnsburðinn, fisk- og tau-
þvottinn, pakkasauminn, móvinnsl-
unp, breiða og taka saman, stafla o.
s. frv. Allar ættu þær það sameigin-
legt uffl fram karlmennina, að hafa
einnig á sinni könnu margvísleg heim-
ilisstörf auk vinnunnar utan heimilis.
Það er ekki, fjarri lagi að mörg verka-
konan hafi sömu sögu að segja ennþá,
en þeir er mu,na tvenna tímana, vita
að einhver munur var þó á þægind-
um þá Otg nú, og að allt er nú hægt
að fá í búð, eða svo hefur verið und-
anfarið, er nöfnum tjáir að nefna, en
heimilin uro.u hér áður að treysta svo
mjög á sjálf sig í flestum. greinum og
kom þar mest til kasta konunnar.
Hvað er þessi Soffía að lofsyngja
vinnuna og verkakonuna núna, er
vinnan er vaxin okkur upp yfir höf-
uð, vistarstúlkur og kaupakonur eru
Mikið úrval af allskonar
snmarskófatnaði
°g
sokknm.
Stefán Gunnarsson
Skóverzlun. Austurstræti 12.
VÖRPUGARN
LINUGARN
BINDIGARN
Ennfr. BOTNVÖRPUR stórar ogsmáar
jafnan fyrirliggjandi.
Hf. Hampiðjan
Símar 4390 — 4536. Símn.: Hampiðja.
að hverfa úr sögunni og peningarnir
vaða uppi? Svarið iiggur beint við
því fyrra. Vinnan er í eðli sínu jafn
göfgandi og góð, hvort hún er mikii
ipða lítil, og hægt er að svara því síð-
ara á þann veg: Að hver og ein verð-
ur að ráða það við sjálfa sig, hvað
hollast og happadrýgst muni reynast
henni og þá þjóðinni hvað störf henn-
ar snertir og kjör. S. M. 0.